Nýja Ísland - 01.11.1904, Qupperneq 10

Nýja Ísland - 01.11.1904, Qupperneq 10
48 kom liann til fátæks læknisefnis og skildi 1000 íranka eftir á kaminunni þegar hann fór. Hann kostaði útgáfu vísinda- rita; hann reyndi að stofna skóla o. s. frv. Til þess að gefa vísinda-heimkynni sínu meira gildi gekk hann í heilagt hjónaband, því hann kunni miður við að láta ást- meyjar sínar — sem hann skifti oft um — taka á móti gestum. Hjónabandið stóð í eitt ár, en það mátti líka heita að það væri ein stórhátíð frá upphafi til enda. Þegar Saint Simon komst að því að hinn frægi rithöfundur, frú de Stael1) var orðin ekkja, fókk hann skilnað við konu sína. Hann fór á fund frúarinnar og bað hennar á þessa leið: „Þér frú, eruð merkasta kona aldarinnar, eg er merkasti inaður hennar; við bæði hljótum að geta búið til enn þá merkara barn“. Sumir segja, að hann hafi stungið upp á að halda brúð- kaupið i loftfari. Ekki vildi frú Stael gift- ast honum, en gamnaði sér mjög út af þessu. Sumir segja, að hún hafl gengið inn á tilraunina með barnið, en að sonur þeirra hafi að eins orðið eins og fólk flest og ekkert meira. Árið 1803 gaf Saint Simon út fyrstu bókina eftir sig, er hót: „Bréf frá borgara í Gent“. Þar leggur hann til að allir íbúar Norðurálfunnar kjósi ráð, sem sam- anstandi af 12 vísindamönnum og 9 lista- mönnum; það á að heita Newtons ráðið, til heiðurs uppgötvara þyngdarlögmálsins. !) Fædd í Paris 1766. Bonaparte gerði liana útlæga 1802, af því hún hafði skrifað liart um hann og gert hann hlægilegan. í ritum sinum rcðst hún á siðferðis-hlcypidóma mannfélagsins. Háu dó í París 1817. Þessi stofnun átti að haldast við með al- mennum samskotum, svo að það gæti al- gerlega óháð unnið að framförum menn- ingarinnar. Allar stéttir eru skildar að leggja sinn skerf til þessa, því þær eru allar þurfandi fyrir framför í vísindum. Alstaðar vill hann að reist séu musteri fyrir Newton, sem fann það lögmál, er stjórnar öllum heiminum. Yísindamenn- irnir eiga að vera prestar þessarar nýju heimstrúar og skýra þyngdarlögmálið íyrir mannkyninu. Það kemur þegar í Ijós í þessum bréfum, að Saint Simon sér, að heimurinn saman- stendur af tveimur flokkum: eignamönnum og eignalausum mönnum. Ilann sér að stríðið voflr yflr. Þess vegna kallar hann vísindin til bjargar. Frjóangarnir tii kerfls- ins, sem hann seinna fram setti, koma þegar í ljós í þessari fyrstu bók hans. Nú ferðaðist hann um England, og þegar hann kemur aftur til Parísar er hann orð- inn algerlega félaus maður. Hátíðahöld og gjafir höfðu gleypt aleigu hans. Þetta var um 1805. Upp frá þessu er líf hans látlaus barátta gegn sulti og seiru. En þessi barátta hefir ef til vill komið honum til að gefa sig meir við alvarlegum störf- um. Fátæktin noyddi hamr til að fara að semja rit. En það er fremur hryggilegt, að hugsa sór þennan gáfumann, sem berst fyrir velferð mannkynsins, stöðugt þjást af megnu hungri. [Framh.j. „Nýja ísland11 kostar 10 aura tölublaðið. Utgefandi og ábyrgðarrnaður: ÞORV. ÞORVAHÐSSON, prcntari. PrentBiB. Þorv; ÞorvarðsBonur.

x

Nýja Ísland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja Ísland
https://timarit.is/publication/533

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.