Sólöld - 20.07.1918, Blaðsíða 6

Sólöld - 20.07.1918, Blaðsíða 6
4 SÓLÖLD. Til Sólaldarbarna Islenzk börn í Vesturheimi! Oft hefir v'.kur langað til þess að eiga ykkar eigið blað; sérstakt Mað sem þið gætuð kailað blaðlS ykkar. Séra Steingrímur Thorláksson og séra B. B. Jónsson gáfu einu sinni út barnablað, þó það væri aðallega fyrir trúmál þá var þar margt skemtilegt og fróð- legt. Bn það stóð ekki nema stutta stund; liefir iíklega ekki fengið nógu mikla útbreiðslu til þess að bera sig. þeir eiga samt þakkir fyrir þetta; þeir voru fyrstu mennirnir hér fyrir vestan til þess að skilja það að börnin þurftu að hafa sitt eigið blað. En vér vonum að þetta nýja barnablað—Sól- öld—geti lifað lengi og orðið tii þess að gleðja börnin, skemta þeim og fræða þau. Sólöld littla Voraldardóttir vill reyna að vera vinur barnanna; hana langar til þess að þau hlakki til dagsins þegar pósturinn kemur ineð blaðið þeirra; hana langar til að komast helzt inn á hvert heimili, og ef þið hjálpið til þess þá getur hún það- “Segir ekki klukkan tikka, tikka, mamma!” Óli var nú orðinn þriggja ára. En hann gat ekki skilið, að hann væri bæði þriggja ára, eins og sumir sögðu honum, og' á fjórða árinu, eins og aðr- ir sögðu. Gleymdi hann því fljótt, hve gamall hann var. —“Litli Sögumaðurinn. Tunnan og pollurinn Pabbi hans Munda litla hafði komið heim með stóra tunnu sem hann ætlaði að brjóta út botnana og hafa fyrir eldhússtromp. Hann hafði skilið hana eftir á hlaðinu rétt fyrir framan bæjardyrnar, svo fór hann inn að borða og að því búnu út í fjós að mjólka. Á meðan hann var úti í fjósinu fór Mundi litli að leika sér að því að velta tunnunni til og frá. Hann var ósköp lítill en tunnan stór eins og þið sjá- ið á myndinni, en samt gat har n velt henni dálítið með því að spyrna fast í og neyta allra krafta. Og hann var sterkur, hann Mundi litli; þið megið trúa því. En hann hafði ekkert munað eftir því að Hvað sagði klukkan ? Eitt var það, sem Óla langaði oft að fá að vita. ]’að var, hvað klultkan segði. Sumir sögðu, að bun segði tikk, tikk, sumir tikka, tikka, en þetta skildi Óii ekki og vildi fá betri skýringu. Var honum þá eagt, a þegar klukkan segði tikk, tikk, þá segði hún í raun og veru þekk, þekk eða þekkur, þekk- ur, og væri hún að biðja hann að vcra þægur, en þegan hún segði tika, tikka, þá vœri það sama og þakka, þakka, og væri hún að þakka honum fyrir, að hann væri góður drengur. Ef Óli vildi fá að vita, hvont hann væri talinn góður drengur, þá spurði hann: “Ilvað segir klukk- an núna?” pegar hann ætlaði að biðja um bi’auð- bita, þá hóf hann oft mál sitt á þessa leið: hann var nýkomin í spáný föt. gráan jakka og hvítleitar buxur, og var ósköp fínn, því hann ætlaði að fara að heimsækja hana Gjddu frænku sína á Grænubrekku. Alt í einu dalt honum það í hug að velta tunnunni ofan hólinn sem bærinn var bygð- ur á og niður í poll sem þar var. Og hann spyrnti í af öllum kröftum, og loksins húrraði tunnan niður brekkuna, og Mundi horfði á eftir. ‘ ‘ Bamp, bamp! ’ ’ sagði í vatninu þegar tunnan hlassaðist ofan í það og Mundi ldó. Svo mundi liann eftir því að hann var í nýjum fötum og þcgan hann leit á buxurnar sínar sá hann að þær voru allar eitt forarstykki á hnjánum. Og Mundi fór að skæla. Nú kom pabbi hans og spurði hvað á gengi:

x

Sólöld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sólöld
https://timarit.is/publication/538

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.