Sólöld - 20.07.1918, Side 8
6
SÓLÖLD.
“Eg kalla nú þetta ekki mikið frægðarverk, ”
sagði þriðja músin. “Ég fór inn í eldhús einn
morgun og mætti kisu á eldhúsborðinu. Hún var
að stela fiskstirtlu. Eg tók í annan endann á
stirtlunni og togaði hana af kisu. Aumingja kisa
labbaði sneypt inn í baðstofu. ”
“Að þið skuluð vera að goi’ta af þessu, ” sagði
sú fjórða. “Eg fór inn í baðstofu og upp í rúmið
sem kisa lá í, og þá varð hún hrædd og flýði. ”
“Kallið þið þetta svo sem frægð, ” sagði fimta
músin. “Yitið þið ekki, að kötturinn er mesta rag-
geit. Ég mætti honum á búrgólfinu um daginn og
réði undir eins á hann. Eftir stutta stund lagði
kisa á flótta, auðvitað öll blá og blóðug eftir viður-
eignina. ’ ’
Gömul mús lá út í horni og hafði hlustað á
samtalið. Nú reis hún upp og mælti:
“það vita nú allar mýs, að kötturinn er okkar
versti óvinur- Ef þið eruð ekki hræddari við
hann en þið segið, þá vill kannske einhver yltkar
bregða sér inn í búrið og drepa hann.”
Mýsnar þögðu og gutu hovnauga hver til anna-
arar.
“það væri ef til vill vissara, að tvær færu, því
kisa er dutlungafull og beitir klónum kannske bet-
ur nú en áður. ”
Engin mús svaraði.
“Kannske þið skreppið þá allar. pið verðið
þá fljótari.
Mýsnar þögðu.
“Nú! Ætlið þið ekki að fara?”
Loks svaraði músin sem þóttist liafa rekið
köttinn á flótta, í óvenju mjóum rómi:
“það er ekki víst að kisa sé í búrinu núna, þótt
hún væri það, þegar ég hitti hana. ”
Kisa hafði setið við holudyrnar og hlustað á
alt masið. Nú gall hún fram í:
“Urrr. Iíérna er ég. Komið þið, ef þið
þorið.
Óðara en kisa lét heyra til sín þutu mýsnar
út í afkima og' ranghala, sem voru til og frá um
búrvegginn, og þorðu ekki að láta sjá sig nærri
búrholunni í marga daga.
—“Litli Sögumaðurinn.
Úr heimi barnanna
Á fimtudaginn var afrnæ'i lítillar stúlku sem
heitir Margrét Miller og á heima í Winnipeg. Hún
er þriggja ára gömul og vai’ að leika sér á Rauðár
bakkanum skamt frá St. Johns stræti. Alt í einu
varð henni fótaskprtur og datt ofan í ána; straum-
urinn tók hana og hún var rétt að segja drukknuð;
en lítill drengur sem heitir Gordon Browning og er
10 ára, heyrði til hennar; hann kastaði sér út í ána,
náði í kjólinn hennar Margrétar litlu og bjargaði
henni . Stjórnin ætlar að láta veita Browning litla
heiðurspening úr gulli fyrir þel.ta snarræði.
120 börn voru sýnd í vikunni sem leið á gras-
fleti hjá kirkju hér í•Winnipeg; fallegasta barnið
fékk verðlaun; það var 12 mánaða g'ömul stúlka
sem heitir Ruby Wilson að 499 Warsaw Ave, Ruby
litla var 30 pund á þyngd.
þessi börn hafa útskrifast úr efstu VIII deild
barnaskólanna í Winnipeg. Getur vel skeð að
þau séu fleiri; sum nöfnin eru svo skæld og' afbök-
uð að ómögulegt er að vita hvort þau eru íslenzk
eða eitthvað annað.
Frá Wellington skólanum.
Einar Einarsson (með heiðri) Jóhanna Berg-
þórsson, Margrét Gíslason, Lára Johnson, María
Sölvason, Bergþóra Jónsson.
Frá Greenway skólanum
Ólavía Markússon (með heiðri) Margrét Skag-
fjörð-
Frá Principal Sparling' skólanum.
Vilhjálmur Jóharinesson, Helgi Johnson, Karl
Kristjánsson, Friðrik Magnússon, Lína Ólafsson,
Edward Preece, Elín Sigurðsson, Ilarold Stcphen-
son, Vilfrid Sveinsson, Ágústa þórðarson, Arina
Bjarnason, Guðmundur Erlendsson, Frank llall-
dórsson (öll með heiðri), Emtlía Júlíus, Bjarni
Bjarnason, Thor. Melsted, þóra Pálsson.
Frá Mulvey skólynum.
Sigríður Eggertson, Vilborg Jobnson (báðar
með heiðri), Páll Johnson, Vilfrid Goodman, Ingi-
björg Johnston.
Frá Maple Leaf skólanum.
Jón Bildfell, þóra Gíslason, Margrét Skaptason,
Kristján Snidal, öll mcð heiðri; Friðrik Magnússon,
])orsteinn Magnússon, þorvaldur Pétursson, Jörgen
Cryer.
Frá John M. King skóla .
Violet Johnson.
Frá Laura Secord skóla.
Margrét Jóhannson, Jón Marteinsson, Elísabet
Pétursson (öll með heiðri).