Þjóðmál - 14.11.1973, Page 10

Þjóðmál - 14.11.1973, Page 10
10 Þ J Ó Ð W Á L Við hringdum í Einar Haf- berg formann Kjördæmisráðs SFV á Vestfjörðum fyrir nokkr um dögum Einar er búsettur á Flateyri og sagiðst honum svo frá: — Hér er alhvít jörð og veg- ir víða tepptir. Reitingsvinna er hér á staðnum enda fátt fólk til starfa, þar sem skólar eru byrjaðir. Unga fólkið er þar af leiðandi á bak og burt. Þátttaka héðan úr þorpinu i Núpsskóla er meiri en oft áð- ur. Einn stór bátur er gerður héð- an út, Torfi Halldórsson 150 lestir og tveir minni bátar. Afli er sæmilegur þegar gefur. Endurbætur á frystihúsinu er alltaf verið að gera sem niða að nýtízkulegri vinnubrögðum. Tvær íbúðablokkir eru 1 smið- um á vegum hreppsins og verða boðnar til kaups. Þessar bygg- ingar eru nú fokheldar. Annars er allt heldur rólegt hér um slóðir, sagði Einar að lokum. Orlof skólastjóra og kennara Þeir skólastjórar og kennarar, sem starfa við skóla, sem heimildarákvæði laga um ársorlof frá embætti eftir 5 eða 10 ára starf taka til, skulu senda menntamálaráðu- neytinu umsókn um það fyrir 1. janúar 1974, ef þeir æskja að koma til greina við veiting orlofs. 1 umsókn skal gera grein fyrir, hvernig umsækjandi hyggst verja orlofs- árinu. Er umsækjendum bent á að kynna sér lagaákvæði, er að þessu lúta. Eyðublöð undir orlofsumsóknir fást í menntamálaráðu- neytinu og eru á þau prentuð lagaákvæði þau, sem um orlof þessi gilda. Menntamálaráðuneytið, 8. nóvember 1973. LAUS STAÐA Starf minjavarðar við Árbæjarsafn er laust til umsóknar. Starfið verður veitt frá n.k. áramót- um eða síðar eftir samkomulagi. Þeir, sem hafa menntun á sviði þjóðháttarfræði, fornleifafræði eða áþekka menntun, svo og þeir, sem starfað hafa við lík söfn ganga fyrir að öðru jöfnu. Upplýsingar um starfið veitir garðyrkju- stjóri, Skúlatúni 2. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist skrifstofu borgarstjóra eigi síðar en 10. desember n.k. Borgarstjórinn í Reykjavík, 12: rtóvember 1973. " Auglýsing um skoðun léttra bifhjóla i lögsagnarumdæmi Reykjavikur Mánudaginn 12. nóv. R- i til R- 50 Þriðjudaginn 13. nóv. R- 51 — R-100 Miðvikudaginn 14. nóv. R- 101 — R-150 Fimmtudaginn 15. nóv. R- 151 — R-200 Mánudaginn 19. nóv. R- 201 — R-250 Létt bifhjól, sem bera hærra skráningarnúmer en R-300 og ekki hafa mætt til aðalskoðunar, skulu koma miðvikudaginn 21. nóvember. Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga við bifreiðaeftirlitið að Borgartúni 7, kl. 09.00 til 16.30. Sýna ber við skoðun, að lögboðin vátrygg- ing sé í gildi. Tryggingargjald ökumanns fyrir árið 1973 og skoðunargjald ber að greiða við skoðun. Skoðun hjóla, sem eru í notkun í borginni, en skrásett eru í öðrum umdæmum, fer fram fyrrnefnda daga. Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoð- unar umrædda daga, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr umferð, hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 6. nóv. 1973. Sigurjón Sigurðsson. Fjármálaráðuneytið. Tilkynning til launntknttsgreiðenda Athygli'launaskattgreiðenda skal vakin á því, að 25% dráttarvéxtir falla á launaskatt fyrir 3. ársfjórðung 1973, sé hann ekki greiddur í síðasta lagi 15. nóvember. Viðlagasjóður auglýsir Það tilkynnist hérmeð, að frá og með 1. des. n.k. lýkur ábyrgð Viðlagasjóðs á öllum húseign- um í Vestmanaeyjum, sem liggja vestan Kirkju- vegar, auk húsa við Fjólugötu, Sóleyjargötu og Smáragötu. Jafnframt hættir Viðlagasjóður allri umsjá með húsum þessum. Tjón eða skemmdir, sem á húsunum verða eftir þann tíma, eru ekki á ábyrgð Viðlagasjóðs. Húseigendum, sem eiga hús á ofannefndu svæði, ber því að taka við húsum sínum úr umsjá Viðlagasjóðs eigi síðar en 30. nóv. n.k. Húseigendur skulu taka við húsum sínumT því ástandi, sem þau eru, en fá viðgerðarkostnað bættan skv. mati. Mati á skemmdum er hinsvegar ekki lokið og verða því ýmsir að taka hús sín í sína vörslu og notkun áður en mat getur farið fram. Geta þeir þá eigi að síður hafist handa um nauðsyn- legar viðgerðir og verður kostnaður við þær þá tekinn inn í matið, enda hafi þeir haldið glögg- ar skýrslur um hvaða viðgerðir hafi verið fram- kvæmdar áður en matið fór fram og kostnað við þær. Einnig getur húseigandi þá fengið bráða- birgðalán til að standa undir viðgerðarkostn- aði, og endurgreiðist, það af bótafénu þegar matið liggur fyrir. Húseigendur á framangreindu svæði, snúi sér til skrifstofu Viðlagasjóðs í Vestmannaeyj- um og fái upplýsingar um ástand húsanna. Viðlagasjóður. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Innlausnarverð*) Flokkur Innlausnartímabil 10.000 KR. Skírteinl 1964 10.01.74—10.01.75 KR. 76.028,00 1965-2 FL. 20.01.74—20.01.75 KR. 52.489,00 1966-2. FL. 15.01.74—15.01.75 KR. 44.964,00 1968-1. 25.01.74—25.01.75 KR. 37.334,00 1968-2. FL. 25.02.74—25.02.75 KR. 35.310,00 1969-1. FL. 20.02.74—20.02.75 KR. 26.560,00 *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upp- lýsingar um skírteinin. SALA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA í 2. FLOKKI 1973 ER NÚ HAFIN HJÁ VENJULEGUM SÖLUAÐILUM. Reykjavík, 7. nóvember 1973. SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/551

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.