Þjóðmál - 14.11.1973, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 14. nóvember 1973
HVATI AÐ FJOL-
SKRÚÐUGU TÓN-
LISTARLÍFI
„Oft hafa erlendir menn látið í Ijósi undrun yfir
því, að svo fámennt iand sem ísland skuli eiga Sin-
fóníuhljómsveit, að hér skuli leikin í tónleikasal ýmis
merkustu tónverk veraldar og heimskunnir túlkend-
ur tónlistar leggi hingað stundum leið sína til að
flytja íslendingum gimsteina tónlistarinnar. Telja
gestir, sem hingað koma, slíkt ótvírætt merki um
hátt menningarstig þjóðarinnar." Þetta voru orð
Andrésar Björnssonar útvarpsstjóra í marzmánuði
1970 þegar Sinfóníuhljómsveit íslands hafði starfað
í tuttugu ár. — Á nýbyrjuðu starfsári, sem verður þá
hið 23. í röðinni hittum við að máli Gunnar Guð-
mundsson, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar-
innar og ræddum stuttlega við hann um starfsemina
vetur.
Myndin hér að ofan er tekin fy-rir nokkrum árum, af Sinfoníulil>jómsveit íslamds-og Karlakórntim
Fóstbræðrum. Stjórnandinn er Ragnar Bjömsson.
Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsvertarinnar
— Verður komandi starfsár
Sinfóníuhljómsveitarinnar í
einhverju frábrugðið frá því í
fyrra?
— f aðalatriðum verður það
ekki, en þó er í vetur ráðinn
aðalhljómsveitarstjóri, Karsten
Andersen frá Björgvin, sem er
að góðu kunnur hér á landi. í
fyrra var enginn fastráðinn
hljómsveitarstjóri, en aðstoðar-
hljómsveitarstjóri var sem áð-
ur Páll P. Pálsson, en auk hans
stjómuðu 13 hljómsveitarstjór
ar einum eða fleiri tónleikum.
Þess má - og geta að hljóm-
sveitin hefur verið aukin nokk-
uð og eru fastráðnir hljóðfæra-
leikarar nú 60 að tölu. Eins og
jafnan áður munu margir
stjórnendur koma fram auk
aðalhljómsveitarstjórans og má
þar t.d. nefna Bohdan Wod-
iczko, Jussi Jalas, Vladimar
Askenazy og Róhert A. Ottós-
son. Því má skjóta hér inn í
leiðinni að Róbert mun stjórna
á tónleikum. 29. nóv. En þá
verður flutt Messías ef tir
Handel með aðstoð Filharmon-
íukórsins og einsöngvara.
— Hljómsveitin lék víða út
á Iandsbyggðinni í fyrra, verð-
ur ekki framhald á því?
— Jú, , óvenjumargar tón-
leikaferðir voru farnar víðs-
vegar um land, leikið á 13 stöð-
um. Stefnan er sú að fara með
hljómsveitina út til fólksins,
því þetta er jú Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Tónleikar verða
m.a. á Minni Borg, Akranesi,
ICeflavík, Akureyri og víðar. Af
þessu kemur fram að satrfssviö
hljómsveitarinnar er ekki ein-
skorðar við áskriftartónleika.
Haldnir eru m.a. fjölskyldutón
leikar, skólatónleikar og barna-
tónleikar sem eru fyrir 6 ára
börn og verða haldnir I sam-
vinnu við Fræðsluskrifstofuna.
Þetta er nú það helsta, en
margt er þó ótálið hvað við
kemur verkefnunum.
— Hvernig er stjórn lvljóm-
sveitarinnar skipuð?
— 1 stjórn Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar eru: Andrés
Björnsson útvarpsstjóri, Gunn-
ar Vagnsson framkv. stj. og
Árni Kristjánsson tönlistar-
stjóri. Aðalhljómsveitarstjóri
og listrænn lcðibeinandi I vet,-
ur er Karsten Andersson eins
og áður er komið fram. Ver-k-
efna- og ráðgjafanefnd er skip-
uð þessum mönnum: Árna
Kristjánssyni, Jóni Sen, Einar.i
B. Waage og Gunnari Egilson.
Aðstoðarhljömsveitarstjóri er
Páll Pampichler Pálsson.
Farmhald á bls. 11
Karsten. Andersen aðalhljómsveilarstjóri