Ný þjóðmál - 28.06.1974, Qupperneq 3
NÝ ÞJQÐMÁL
3
Útgefandi: Samtök frjólslyndra og vinstri manna
Framkvæmdastjóri: Hjörtur Hjartarson
Ritstjóri og ábm.: Elías Snæland Jónsson
Ritnefnd: Einar Hannesson, Andrés Kristjánsson,
Vésteinn ólason og Kristján Bersi Ólafsson.
Ingólfsstræti 18. Sími 19920. Box 1141,_I
Mistök verða ekki
aftur tekin
Á sunnudaginn er stund örlagarikra ákvarðana.
Þá ganga kjósendur i kjörklefana og ákveða, hvort
hægristjórn eða vinstristjórn skuli fara með
málefni þjóðarinnar næsta kjörtimabil, næstu fjög-
ur árin.
Þessi ákvörðun ræður úrslitum um framtiðarkjör
islenskrar alþýðu til sjávar og sveita. Ef kjósendum
verða á þau mistök, að kalla hægristjörn yfir
þjóðina, þá verða þau mistök ekki aftur tekin. Þá
mun hægristjórn beita sömu aðferðum og ávallt
áður við lausn þess efnahagsvanda, sem við er að
etja: gengisfellingum, atvinnuleysi, sem leiða kann
á ný til landflótta, striðsaðgerðum gegn verkalýðs-
hreyfingunni, sem veiti íslendingum enn á ný
heimsmeistaratignina i verkföllum, og itrekaðri
kjaraskerðingu láglaunafólks. Þessi stefna
einkenndi siðasta kjörtimabil hægristjórnar
viðreisnarherranna, og augljóst er, að þeir Gylfi og
Geir hafa engu gleymt og ekkert lært siðan þá.
Nýtt timabil hægristjórnar mun jafnframt hefja
til vegs á ný þá ihaldspostula, sem dreymdu um 20
álbræðslur á meðan togaraflotinn grotnaði niður,
sem töldu það pólitiskt siðleysi að færa út
fiskveiðilandhelgina, og sem vildu erlenda hersetu
sem lengst. Þessir menn hafa heldur engu gleymt,
og ekkert lært.
Kjósendum þessa lands er þvi ljósara en oftast
áður, hvað það er, sem um er kosið. íslenskt
alþýðufólk veit á hverju það á von, ef það kýs yfir
sig hægri stjórn 30. júni. Sú hægri hætta, sem nú
ógnar framtiðarkjörum islenskrar alþýðu jafnt til
sjávar sem sveita er raunveruleg. Það er einungis
hægt að bægja henni frá i kjörklefanum, og þá með
þvi, að efla það stjórnmálaafl, sem er forsenda þess
að vinstriöflin geti myndað nýja rikisstjórn. Þetta
stjórnmálaafl er F-listinn. Sigur F-listans i kosn-
ingunum á sunnudaginn er eina vörn alþýðufólks
gegn hægri hættunni.
Pið eruð ein í kjör-
klefanum á sunnudag
Hljóti F-listinn 5 — 6 þingmenn kjörna á sunnu-
daginn er hægri hættunni bægt frá um sinn. Þá
verður hægt að mynda nýja rikisstjórn, sem fram-
fylgir raunverulegri vinstristefnu á öllum sviðum
þjóðlifsins, og þá ekki hvað sist i efna-
hagsmálunum.
Til þess, að F-listinn vinni slikan sigur, þurfa fjöl-
margir einlægir vinstrimenn, sem áður hafa kosið
aðra flokka, að rjúfa þau flokksbönd i þetta sinn og
styðja F-listann. Þúsundir kjósenda gerðu þetta i
siðustu kosningum, og felldu þannig hægristjórnina
frá völdum. Nú er það vinstrimanna að ákveða,
hvort sé þeim mikilvægara: að kjósa gamla
flokkinn sinn og fá hægristjórn, eða kjósa F-listann
og fá vinstristjórn sem kemur þeim stefnumálum,
sem vinstrimenn berjast mest fyrir, i framkvæmd.
íslenskir vinstrimenn! Munið, að þið eruð einir i
kjörklefanum á sunnudaginn. Látið sannfæringu
ykkar, og málefnin, ráða, en ekki fjötra gamalla
flokksbanda. Þannig getum við saman unnið þann
sigur fyrir islenska vinstristefnu, sem okkur
dreymir alla um.
ELÍAS SJSÆLAND JÓNSSON RITAR
Á DAGSKRÁ
HUGSJÓNIR ÍHALDSINS
UM HERSTÖÐ í
HVERJUM LANDSHLUTA
SJALFSTÆÐISFLOKKNUM í Reykjaneskjör-
dæmi bættist nýr liðsmaður á mánudaginn var.
Það gerðist á framboðsfundi allra flokka i
Hafnarfirði, aö Freysteinn Þorbergsson, fram-
bjóöandi Lýðræðisflokksins svonefnda i þvi
kjördæmi, lýsti yfir fylgi við Sjálfstæðisflokkinn
m.a. vegna þess, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
markað þá stefnu i herstöðvamálinu, sem hann
gæti að mestu sætt sig við.
Þetta er athyglisverð yfirlýsing vegna þess, að
Freysteinn Þorbergsson hefur á framboðs-
fundum i Reykjaneskjördæmi lagt áherslu á
langvarandi og stóraukna hersetu i landinu.
Hann h'éfur barist fyrir þvi, að komið yrði upp
herstöð i hverjum landshluta, og að Banda-
rikjamenn yrði látnir fjármagna margvislegar
framkvæmdir I landinu, sem siðan yrðu þeim
frjálsar til afnota.
Matthias A. Mathiesen fagnaði þessum nýja
liðsmanni á fundinum, og sagði yfirlysingu
Freysteins sýna það að hægra megin i stjórn-
málunum gætu menn „sameinast um hug-
sjónir”.
„Hugsjónir” ihaldsins I herátöðvamálinu er
vist sú sama, hvort sem það er á höfuðbólinu,
hjáleigunni hans Gylfa eða kotinu hans
Freysteins. Þessa aðila getur enginn sá, sem
ekki vill aukna hersetu á Islandi, kosið i alþing-
iskosningunum á sunnudaginn kemur.
102 HÆGRIMENN
YFIRGEFA FUF
í REYKJAVÍK
HLUTI AF HÆGRA ARMI Framsóknar-
flokksins I Reykjavik er nú farinn úr flokknum,
og yfir til ihaldsins. Hafa 102 félagsmenn IFUF i
Reykjavik sagt sig úr þvi félagi.
Þetta fóik er meðal þess, sem notað var siðast-
liðið haust til þess að halda þann alræmda aðal-
fund i FUF i Reykjavik, sem enn er fyrir
dómstólunum — en ein afleiðing þess fundar er
sú, að engin lögleg stjórn er i þessu félagi.
Sérstök hlutlaus rannsóknarnefnd, sem stjórn
SUF skipaði á sinum tima, komst að þeirri
niðurstöðu varðandi ennan aðalfund, að fram-
komnar ákærur um misferli við framkvæmd
aðalfundarins væru sönnuð, og fundurinn
þviólöglegur.
Rartnveig Jónsdóttir:
Láglaunavandamálið er að
miklu leyti mál kvenna
t kosningaávarpi F-listans
segir meðal annars orðrétt:
„Aðild rikisvaldsins að kjara-
ákvörðunum skal miða að þvi að
vernda og bæta kjör hinna lægst
launuðu og stuðla að þvi að
sjónarmið félagslegs réttlætis
og framfara fái að ráða. Hamla
verður gegn tilraunum hags-
munahópa til að hrifsa til sin á
kostnað annarra og hindra, að
einokunaraðstöðu sé beitt til að
féfletta neytendur.”
Þetta samræmist fyllilega
markmiðum Rauðsokka-
hreyfingarinnar, sem ég hef
starfað i frá byrjun, eða undan-
farin fjögur ár.
Það hefur verið sagt, að við
Rauðsokkar hefðum mestan
áhuga fyrir menntakonum.
Þetta er alrangt. Sannleikurinn
er sá að margar þær konur, sem
starfa hvað mest i rauðsokka-
hreyfingunni, stunda tiltölulega
vellaunuð störf og þurfa ekki að
stofna samtök til að rétta hlut
sinn að þvi leyti. Barátta okkar
hefur hingað til einkum beinst
að svokallaðri vitundar-
vakningu, þ.e.a.s. að vekja fólk
til meðvitundar um ójöfnuð
þjóðfélagsins og þá sérstaklega
það misrétti, sem konur verða
að þola vegna aldagamallar
kúgunar og úreltra hefða. Deila
má um, hver árangurinn hefur
orðið af þessari baráttu, en vist
er að umræður um jafnréttis-
mál hafa farið vaxandi á þessu
timabili.
Við viljum hjálpa til við að
rétta hlut kvenna almennt og
vinna að auknum jöfnuði.
Karlar hafa tekið þátt i þessari
baráttu og æ oftar heyrast þær
raddir að karlar séu heldur ekki
of sælir af sinum hlut.
í nýsaminni stefnuyfirlýsingu
Rauðsokkahreyfingarinnar seg-
ir m.a. að baráttan fyrir jafn-
rétti kynjanna verði ekki slitin
úr tengslum við baráttu undir-
okaðra stétta fyrir þjóðfélags-
legum jöfnuði, né heldur verði
sigur unninn I verkalýðsbarátt-
unni án virkrar þátttöku
kvenna.
Konur eru meginþorri hinna
lægst launuðu viðast hvar i
atvinnulifinu. Láglaunavanda-
málið er þvi að miklum hluta
vandamál kvenna. Margar
þeirra hafa svo lág laun, að þau
nægja þeim engan veginn til
lifsframfæris. Ef einstæðar
mæður til dæmis lifa við mann-
sæmandi kjör og geta hjálpað
börnum sinum til mennta, þá
þykirþað umtalsvert. Það hefur
til skamms tima heldur ekki
þótt nauðsynlegt, að einstæðar
mæður eða konur i láglauna-
störfum ættu þak yfir höfuðið.
Það væri spor i rétta átt til að
rétta hlut þeirra, sem skipa
láglaunahópana, ef þetta fólk
hefði forgang um fyrirgreiðslu
til að eignast eigið húsnæði á
viðráðanlegum kjörum eða
fengi aðgang að hagstæðu leigu-
húsnæði.
Fullsæmandi lif beggja kynja
verður aðeins að raunveruleika
með samvinnu einstaklingsins
og þjóðfélagsins.
t ályktunarorðum kosninga-
ávarps F-listans sem byggt er á
sameiginlegum málefnagrund-
velli Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna, Möðruvalla-
hreyfingar og Samtaka
jafnaðarmanna segir, að i
samræmi við markmið
ávarpsins og stefnu jafnaðar og
samvinnu munu aðilarnir að
kosningum ioknum beita þeim
þingstyrk, sem kjósendur ljá
þeim til að stuðla að þvi að til
valda komist rikisstjórn, sem
tekst á hendur að vinna að
framhaldi þeirra framfara-
mála, sem frafarandi vinstri
stjórn átti ólokið og ræðst i
nýjan áfanga á leið íslendinga
til þjóðfélags jafnréttis, mann-
helgi og farsældar.
FALSARÓÐUR!
Merkilegir pólitiskir áróðursmenn hafa borið
það á borð fyrir kjósendur undanfarna daga, að
sumir af frambjóðendum F-listans hafi verið i
einhverjum tengslum við Varið land. Er gengið
svo langt i þessu efni i Alþýðublaðinu s.l. mið-
vikudag, að þar er fullyrt, að Jón Baldvin Hanni-
balsson hafi verið ,,einn af forgöngumönnum
undirskriftarsöfnunarinnar „Varins lands”.
FORSENDA
VINSTRI
Með slikum ósönnum yfirlýsingum reynir i-
haldshækjan að blekkja kjósendur. Það er póli-
tiskur áróður af ómerkilegasta tagi, og er nauð-
synlegt, að kjósendur veiti þeim, sem þannig
starfa, verðuga ráðningu á sunnudaginn.
STJÓRNAR!
F-LISTINN
—EJ