Ný þjóðmál - 28.06.1974, Blaðsíða 8

Ný þjóðmál - 28.06.1974, Blaðsíða 8
8 PÓSTUR OG SlMI óskar að ráða viðskiptafræðing til starfa við póstgiróstofuna sem fyrst. Laun samkvæmt núgiidandi kjarasamningi. Nánari upplýsingar verða veittar hjá forstööumanni póst- giróstofunnar og hjá starfsmannadeild. Staða ritara i Heilsuverndarstöðinni er laus til um- sóknar frá 1. júli n.k. Áskilin er starfs- reynsla og leikni i vélritun. Verslunar- skóla- eða hliðstæð menntun æskileg. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavikurborgar við borgina. Umsóknir, er tilgreina aldur, menntun og fyrri störf, sendist skrifstofu fram- kvæmdastjóra fyrir 1. júli n.k. Reykjavík, 24. júní 1974. Heilsuverndarstöð Reykjavikur Akraneskaupstaður auglýsir hér með laust til umsóknar starf bæjarstjóra með umsóknarfresti til 25. júli n.k. Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist forseta bæjarstjórnar — Daniel Ágústinussyni Háholti 7 Akranesi — sem einnig gefur nánari upplýsingar. Akranesi, 22. júni 1974. Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Skrifstofustúlka Skrifstofustarf hjá embætti flugmála- stjóra er laust til umsóknar. — Góð vélrit- unarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir, er greini aldur menntun og fyrri störf, send- ist skrifstofu flugmálastjóra á Reykjavik- urflugveili, fyrir 1. júli n.k. — Laun sam- kvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Flugmálastjórinn, Agnar Kofoed-Hansen Auglýsing um stöðu forstöðumanns Fasteignamats rikisins Fjármálaráðuneytið auglýsir hér með lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns Fasteignamats rikisins. Starfið gerir kröfu til góðra skipulags- hæfileika og nokkurrar tækniþekkingar á sviði skýrsluvélavinnslu. Nánari upplýsingar veitir fjármálaráöuneytið, tolla- og eignadeild. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknarfrestur er til 28. júni n.k. Fjármálaráðuneytið, 6. júni 1974. NÝ PJÓÐMÁL Grein Ólafs Framhald af bls 5. unnið það verk, sem þau sinntu með svo giftudrjúgum hætti um og eftir siöustu þingkosningar. Innan Möðruvallahreyfingar- innar voru menn einhuga um það, að þeir og aörir vinstri framsóknarmenn ynnu nú þarf- ast verk meö þvi að ganga til liös við Samtökin og vinstri jafnaöarmenn og reyna þannig að tryggja áfram/riðja vinstra aflið á þingi, þvi að vist er, aö án þess verða engin skilyrði til myndunar vinstri stjórnar eftir þessar kosningar. Ég skrifaöi hér að framan, að ég teldi framsóknarmenn stundum fylgjandi vinstri stjórn. En það sannast grátlega oft, aö það er ekki nema stund- um. Nærtækast verður mér dæmiö úr minni heimabyggð, Kópavogi. Hér var um 8 ára skeið ágætt samstarf framsókn- armanna og annarra vinstri manna um stjórn bæjarins. Fyrir 4 árum tókst svo að koma hér I framboð fyrir flokkinn nýj- um manni i þeim tilgangi að rjúfa þessa samstöðu vinstri manna og lyfta ihaldinu hér til valda i fyrsta sinn I sögu bæjar- ins. Nú fyrir fáum dögum var ihaldssáttmálinn endurnýjaður fyrir næstu 4 árin. 1 bæði skiptin hefur það legið ljóst fyrir, að unnt var að mynda meirihluta vinstri manna, ef framsóknar- menn hefðu viljað. En hér var það sem oft áður, aö viljann til vinstra samstarfs vantaði, og fylgiö hrundi af flokknum. Mér hefur i þessu greinar- korni orðið tiðrætt um Fram- sóknarflokkinn og öfugþróun hans. Það stafar af þvi, að mig tekur það sárt að sjá, hversu komiö er fyrir þeim flokki, sem ég hef talið minn flokk um 40 ára skeið. Mér er annt um að ná til þess fólks innan flokksins, sem litur svipuðum augum og ég á sögulega arfleifö hans og vill nokkuð á sig leggja til þess að beina honum inn á upphaf- legar brautir. Það verður um sinn aðeins gert með þvi að veita flokknum áminningu i kosningunum og styðja um leið það afl, sem eitt getur knúið flokkinn til áframhaldandi vinstra samstarfs. Hér I Reykjaneskjördæmi ættu öll hvatningarorð til vinstri framsóknarmanna i þessu efni að vera óþörf, svo augljós er staöan, en viðskulum samt rifja upp nokkur meginatriöi. Eitt mikilsverðasta málið, sem vinstri stjórnin átti ólokiö, og ný vinstri stjórn fær við að glfma strax i byrjun, er her- stöövamálið. Jón Skaftason hefur fyrir löngu gert það lýðum ljóst, að hann vill ekki láta her- inn fara og muni hvorki styðja þær tillögur, sem rikisstjórnin hefur þegar lagt fram við Bandarikjastjórn um lausn málsins, né uppsögn varnar- samningsins. Enda þótt hann styðji nýja vinstri stjórn i byrj- un, hlýtur hann að hafa þar á sama fyrirvara og fyrr, þ.e. fyrirheitum að bregða fæti fyrir eitt höfuðmál hennar og þar með fyrir stjórnina. Það er þvi ljóst, sem veröa má, að hvert einasta atkvæði, sem Fram- sóknarflokknum er greitt við þingkosningarnar hér I Reykja- neskjördæmi, er atkvæði gegn vinstri stjórn. I þessu efni breytir engu, þótt vinstri sinnar og herstöðvaandstæðingar eigi sæti neðar á listanum. Þeir fá auðvitaö engu ráðið um afstöðu Jóns, þegar á hólminn kemur, ef hann kemst á þing, en hafa látið glepjast á listann af einskærri tryggö við flokkinn. Það er einmitt þessi tryggð við flokkinn, sem veldur nú mörgum framsóknarmönnum sárum sálarkvölum, er þeir gera upp hug sinn um afstöðu til mála. Þá skyldu menn minnast þess, að flokkur er aðeins tæki til að ná ákveðnu marki, en ekki markiö sjálft. Rétt mynd flokksins birtist ekki i þvi, sem hann einu sinni var, heldur þvi sem hann nú er og i þeim mönn- um og málefnum, sem hann býður kjósendum að styðja. Hverjum kjósanda, hverjum flokksmanni ber til þess réttur og skylda að hlýða rödd sinnar eigin skynsemi og samvizku. Auglýsing fró Lánasjóði íslenzkra námsmanna um fimm ára styrki Hér með eru auglýstir til umsóknar 10 styrkir, sem veittir eru þeim, sem i vor Ijúka stúdentsprófi eða prófi frá raun- greinadeild Tækniskóla íslands og hyggj- ast hefja nám i háskóla eða tækniskóla á komandi hausti. Sá, sem hlýtur slikan styrk, heldur honum i allt að 5 ár enda leggi hann árlega fram greinargerð um námsárangur, sem lána- sjóðurinn tekur gilda. Þeir einir koma til greina, sem hlutu ágætiseinkunn eða háa fyrstu einkunn. Styrkir verða veittir til náms bæði i raun- visindum og hugvisindum. Umsóknir, ásamt afriti af prófskirteini, eiga að hafa borizt skrifstofu lánasjóðs is- lenzkra námsmanna, Hverfisgötu 21, fyrir 3. júli n.k. Skrifstofan afhendir umsóknareyðublöð og veitir allar nánari upplýsingar. Reykjavik 19. júni 1974. Lánasjóður isl. námsmanna Námsmönnum á lokastigi náms (við prófundirbúning, prófverkefni o.þ.h.) gefst kostur á að sækja um sumarlán, fyrir þá mánuði, er suníarleyfi stendur yfir, enda vinni þeir aö námi sinu þann tlma, er lánið nær til, og flyti námslokum sem þvi nemur. Umtóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu Lánasjóðsins að Hverfisgötu 21, Reykjavlk, og I sendiráðum islands er- lendis. Þeir námsmenn eða umboðsmenn námsmanna er- lendis, sem sækja vilja um sumarlán, eru beönir að snúa sér til skrifstofu sjóðsins fyrir 4. júli n.k. Reykjavík, 20. júni 1974. Lánasjóður isl. námsmanna

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.