Ný þjóðmál - 28.06.1974, Qupperneq 11

Ný þjóðmál - 28.06.1974, Qupperneq 11
NÝ ÞJÓÐMÁL 11 Rætt við launþega um kosningarnar og F-listann Fulltrúar láglauna- fólks er í meirihluta á F-listanum — segir Guðjón Sveinsson, verslunarmaður Nýlega kom blaðið að máli við Guðjón Sveinsson, verslunar- mann, Reykjavik, Hann tók að sér að svara nokkrum spurn- ingum. — Hverjum augum lítur þú á F-listann, Guðjón? — Greinilegt er, að F-listinn er listi launamanna. Á F- listanum eru fulltrúar láglauna- fólks i meirihluta, og það á ekki við um neinn af listum annarra flokka. — Og þú hefur þá í hyggju að kjósa listann? — Já, mér virðist greinilegt, að þau atkvæði, sem Samtökin nú fá, muni ráða úrslitum um það, hvort hér verði áfram vinstri stjórn eða ekki. F-listinn hefur einmitt á stefnuskrá sinni að draga úr þvi hróplega ósam- ræmi, sem rlkir varðandi skattaálögur hér I landi, en segja má, að láglaunafólk og fólk með miðlungstekjur beri mestar skattabyrðar. Þá hafa Samtökin gert kröfu um endur- skoðun á rekstri rikisfyrirtækja, þannig aö komið verði á betri og ódýrari rekstri, til hagsbóta fyrir alþýöuna. Framsókn ekki heil í hermálinu Guðjón Sveinsson segir Arni Jónsson, varaformaður INSI Nýlega hittu Ný þjóð- mái á förnum vegi Árna Jónsson, vara- formann Iðnnemasam- bands íslands. Hann tók þvi vel að svara fáeinum spurningum. — Hvað viltu segja um gildi þess fyrir verkalýðs- hreyfinguna að við völd i landinu sé vinstri stjórn, eins og nú hefur verið? — Vinstri stjórnin hefur vissulega sýnt það I ýmsum verkum sinum, að hún er stjórn launþeganna, ef svo mætti að orði kveða, enda má nefna sem dæmi að hún lét lögfesta 40 stunda vinnuviku. Efling F-lis ta rts er for- senda vinstristjórnar rætt við Pétur Ingimundarson, húsgagnasmið Pétur Ingimundarson Við náðum tali af Pétri Ingimundarsyni, húsgagnasmið I Reykjavik, og spurðum hann fyrst að þvi, hvers vegna hann ætlaði að styðja F-listann. — Eini möguleikinn til þess aö fá vinstri stjórn, helst sterka vinstri stjórn, er að efla F- listann sem mest. — Nú ert þú launþegi og hefur nýlega staðið að gerð kjara- samninga. Hvernig heidurðu að ihaldið myndi leysa efnahags- vandann, sem nú er fram undan, ef það næði völdum? — A viðreisnarárunum tólf sást, hvernig ihaldið fer að þvi aö leysa sinn efnahagsvanda, og ég vona, að við fáum ekki annað eins yfir okkur aftur. Ihaldið hefur i reynd beinllnis á stefnu- skrá sinni að rýra kaup launþega stórlega, enda er Sjálfstæðisflokkurinn flokkur atvinnurekenda. Þessir atvinnurekendur vilja efla sina atvinnugrein með þvi að draga úr kaupi launþeganna. — Hvernig telur þú að leysa eigi hermálið? — Við þvi állt ég að einungis sé til eitt svar, það eigi að visa hernum skilyrðislaust úr landi. Tillögur þær, sem rikisstjórnin hefur lagt fram i málinu ganga Arni Jónsson skemmmra en ég tel heppilegt, þvi að af þeim er fullmikill fata- skiptakeimur. — Hvaða ályktanir telurðu að megi draga af undirskrifta- söfnun varins lands? — Það er erfitt um það að dæma, en I þvi sambandi kom óneitanlega I ljós, eins og menn hafi reyndar grunað, að Framsóknarflokkurinn var ekki heill i málinu, þvi fór sem fór. Ræða Baldurs Framhald af bls. 2 öllum, án okkar nýtt timaskeið atvinnuleysis og landflótta. Með þvi að kjósa F-listann velur þú áframhaldandi upp- byggingu islenskra atvinnuvega um land allt, án okkar verður lögð megin áhersla á innflutning erlends fjármagns og stóriðju útlendra auðhringa, Með þvi að kjósa F-listann velur þú áframhaldandisókn i landhelgismálinu, sem tryggir okkur 200 milna efnahagslög- sögu, án okkar kemur undan- haldsstefna viðreisnarflokk- anna, sem kom m.a. fram I smánarsamningnum við Breta frá 1961. Með þvi að kjósa F-listann velur þú náið samstarf rlkis- valdsins við verkalýðssamtök- in, án okkar verður nýtt styrjaldarástand á vinnumark- aðinum eins og á tima viðreisn- ar, þegar Islendingar áttu Evrópumet I verkföllum. Viljir þú herinn burt, kýstu F- listann, en án okkar er stórkost- leg hætta á varanlegri hersetu á íslandi. Viljir þú að Island skipi sér i sveit með hinum fjölmörgu smáu og nýfrjálsu rikjum, og að rödd landsins heyrist á alþjóða- vettvangi, velur þú F-listann, en án okkar verða íslendingar vandlega bundnir á fjórbásinn hjá Bandarikjamönnum og Efnahagsbandalagsrik junum, sem lita á smáþjóðir heims sem peð i valdatafli sinu, reiðubúin að fórna þeim fyrir betri stöðu. Já, val okkar vinstri manna i þessum kosningum er auðvelt. Og sem betur fer fáum við nú á hverri klukkustund góðar fréttir af baráttufélögum okkar um landið allt. Við erum vissir um kjördæmakosinn mann á Vest- fjörðum, sterkar likur eru á kjördæmakosnum manni á Norðurlandi eystra, og á Austurlandi og Norðurlandi vestra og viðar bera frambjóð- endur F-listans af á framboðs- fundum, og fá ótrúlega góðar undirtektir. Og nú skulum við kjósendur i Reykjavik heldur ekki láta okk- ar hlut eftir liggja. Hér stendur baráttan milli F-listans og Ihaldsins. Hér stendur baráttan um það, hvort við viljum heldur senda á þing Magnús Torfa Ólafsson, forystumann okkar nýju fylkingar, eða fulltrúa afturhalds og gróðaaflanna, Albert Guðmundsson, heildsala, af ihaldslistanum. Um þetta er barist, félagar góðir. Við getum verið stolt af þvi að styðja Magnús Torfa ólafsson. Við munum berjast af öllu afli til siðustu stundar til að tryggja kosningu hans. Sigur hans mun um leið tryggja nýja vinstri- stjórn. Sigur F-listans á sunnu- daginn kemur verður lika sigur fólksins yfir fjármálavaldinu. Kennarar í raungreinum Nokkrar kennarastööur eru lausar við Flensborgarskólann i Hafnarfiröi. Aðalkennslugreinar: Liffræði, efnafræði, stærðfræði. Skólinn nær yfir bæði gagn- fræða- og menntaskólastig og mun i haust starfa i nýju húsnæði með góðum sér- kennslustofum. Allar nánari upplýsingar veita skólastjór- inn, i sima 50560 og undirritaður i 53444. Fræðslustjórinn i Hafnarfirði. f rás tímans hefur þessi gamli málsháttur öðlazt nýja og víðtækari merkingu. öllum ætti aS vera Ijóst, aS reykjarsvæla af tóbaki veldur alvarlegri mengun en annar reykur. SannaS hefur veriS, aS tóbaksreykingar geta valdiS banvænum sjúkdómum svo sem lungnakrabbameini og hjartasjúkdómum. Bezta ráSiS til þess að komast hjá þessari hættu er aS byrja aldrei að reykja, en ef þú reykir, ættirðu aS hætta því feigðarflani sem fyrst. Rannsóknir sýna, að hjá fólki, sem hættir aS reykja, minnka jafnt og þétt líkurnar á því, að þaS verSi hjarta- og lungnasjúkdómum aS bráS.

x

Ný þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.