Ný þjóðmál - 28.06.1974, Síða 12

Ný þjóðmál - 28.06.1974, Síða 12
VIÐTAKANDI: Rætt við launþega um kosningarnar og F-listann Feigðarspárnar um F-listann rætast ekki IXi Nú nýlega hitti blaðið að máli Svein Gama- lielsson, verkamann, formann Framsóknar- félags Kópavogs. Hann tók að sér að svara fá- einum spurningum. — Hvernig lizt þér Sveinn á hinn nýja bæjarstjórnarmeiri- hluta Ihalds og Framsóknar i Kópavogi? — Eins og ég hef þegar látið i ljósi á fulltruarráðsfundi i félagi minu, var ég mjög andvigur myndun þessa meirihluta, og ég vil ekki fara dult með það. Að minum dómi voru einkum tvær Helgi Brynjólfsson F-listinn er listi launa- fólks í landinu — segir Helgi Brynjólfsson Helgi Brynjólfsson starfsmaður Áburðarverk- smiðju Rikisins: Sp.: Hvað vilt þú segja um þaö samstarf, sem tekist hefur um F listann? Sv.: Að minum dómi er þarna um visir að stórum jafnaðar- og samvinnuflokk, og við þær kosningar sem framundan eru, I mun ráða úrslitum hvort F- listinn fær minnst 5 menn kjörna, hvort hér verður vinstri stjórn eöa ekki. Ég kýs F- listann vegna þess að hann er listi launafólks. segir Sveinn Gamalíelsson, verkamaður, formaður Framsóknarfélags Kópavogs mikilvægar ástæður fyrir þvi, að svona átti ekki að fara að. í fyrsta lagi er á það að lita, að Alþýöubandalagið vann i bæjar- stjórnarkosningunum á dögunum einn nýjan bæjar- fulltrúa og átti af þeim sökum nokkurn siðferðilegan rétt á að fá aðild að meirihluta. 1 öðru lagi hefði átt að taka tillit til þess, aö Framsóknarmenn höfðu við kosningarnar sam- starf við Samtökin um framboð. Samtökin eru mótfallin sam- vinnu við ihaldið. Með Ihalds- samvinnunni hafa bæjar- fulltrúar Framsóknarflokksins nú orðið til þess að rjúfa samstarfið við Samtökin. Af þeim sökum hljóta nú fjöl- margir að hætta að treysta á orðheldni þessara Framsóknar- fulltrúa eftirleiðis. — Nú er það svo, að Hannibal Valdimarsson er ekki lengur i framboði fyrir Samtökin. Heldurðu að það geti verið satt, sem andstæðingarnir segja, að þess vegna séu Samtökin dauðadæmd? — Nei, siður en svo. Hannibal hefuf ekki sagt sig úr Samtökunum, og allir helstu fylgismenn hEips eru enn I kjöri fyrir þau. Ég vil ekki gera litið úr Hannibal og starfi hans fyrr og siðar, en samt er það nú svo, að maöur kemur I manns stað. — Hvernig lizt þér svo á kosningahorfurnar? — Samtökin eru löngu búin að sanna tilverurétt sinn, það gerðu þau eftirminnilega i slðustu alþingiskosningum, þrátt fyrir feigðarspár þá. Enn heyrast feigðarspár, en þær Sveinn Gamalielsson munu ekki rætast. Ef Samtökin vinna ekki drjúgan sigur nú, verður ekki unnt að mynda nýja vinstri stjórn eftir kosningar, eins og Alþýðuflokkurinn er nú á sig kominn. Með F-listanum er kominn til sögunnar endur- nýjaöur jafnaðarmannaflokkur og þvi stendur næst raunveru- legum jafnaðarmönnum og auðvitaö fjöldamörgum ungum kjósendum að greiða þessum lista atkvæði sitt. Framsóknarforystan hefur brugðist framsóknarstefnunni — segir Björn Einarsson, húsasmiður A dögunum hittum við að máli Björn Einarsson, húsasmið, og lögöum fyrir hann örfáar spurningar. — Þú hefur um skeið starfað i Framsóknarflokknum, Björn. Hvers vegna hyggst þú nú styðja F-listann? — Mér finnst að forysta Framsóknarflokksins haii gjörsamlega yfirgefið hina raunverulegu framsóknar- stefnu, eins og hún var og á að vera. Þar er um að ræða stefnu, sem er grundvölluð á samvinnu og jöfnuði. F-listinn hefur hins - vegar tekið þessa stefnu upp. — Hver telur þú að sé forsenda nýrrar vinstri stjórnar? — Framsókn getur ekki bætt við sig mönnum i þessum kosningum, það er alveg öruggt. Alþýðubandalagið hefur að visu allsterka stöðu I Reykjavik, en bætir þó ekki við sig mönnum. Eini möguleikinn til þess að unnt verði að mynda nýja og betri vinstri stjórn nú að loknum kosningum er, að F- listinn fái mjög verulegt fylgi. í raun og veru er helst hægt að búast við þvi að fylgisaukning til vinstri komi á F-listann. — Litur þú á F-Iistann sem lista launþega? — Ef til vill hefði verið æski- legt, að fleiri forystumenn launþega hefðu verið mjög ofarlega á listanum, en samt sem áður er greinilegri laun- þegasvipur á þessum lista en öðrum framboðslistum I Reykjavik nú. — Hvernig hefur þér likað við vinstri stjórnina? — Mér hefur fallið vel við hana, en þó hefur mér ekki fundist henni ganga nægilega vel I glimunni viö efnahags- vandann, þar hefur vantað ákveðnari stefnu. Akvarðanir i þessum málum hafa yfirleitt verið teknar á siðustu stundu, og festu hefur skort. Liklega hefur stjórnin verið helzt til háð atvinnurekendavaldinu, þrátt fyrir allt, og þar hafa áhrif atvinnurekenda I Framsóknar- flokknum komið við sögu. » r -■; Björn Einarsson STÉTTVÍSIR LA UNÞEGAR MUNU KJÓSA F-LISTANN — segir Steinþór Jóhannsson, nemi í húsgagnaiðn Steinþór Jóhannsson Viö hittum að máli Steinþór Jóhannsson, nema i húsgagnaiðn og formann félags nema i þeirri iðngrein. — Nú er ekki langt siðan gerðir voru nýir kjara- samningar, þar sem þið fenguð allverulegar kjarabætur. Hvernig heidurðu að þeim kjarabótum reiði af, ef Ihaldið næði nú völdum? — Við næstsiðustu kjar- samningá, þ.e. á valdatim- um viðreisnarstjórnarinnar, neituöu húsgagnasmiða- meistarar I Reykjavik aö semja um kjör nema. Astæðan til þess var aö visu kannski ekki fyrst og fremst sú að hægri stjórn var við völd, en samt verður að telja vfst, að mun erfiðara verði að ná fram kjarabótum næst, ef ný viðreisn verður þá tekin við. — Hvernig finnst þér horfa um iðnfræðsluna? — A valdatimum vinstri stjórnarinnar hefur verið unnið að endurbótum á iðnfræðslunni. Nú starfar nefnd að endur- skoðun i ðnfræðs 1 u 1 ög- gjafarinnar. Stórstigar fram- farir hafa enn ekki orðið á þessu sviði, en Iðnnemasambandið er búið að móta drög að tillögum um breytingu á iðnfræðslunni, frá meistarakerfi yfir I verk- námsskóla. Þesar fyrirhuguðu breytingar eiga tvimælalaust að fagna meiri skilningi hjá núverandi stjórnvöldum heldur en um var að ræða undir viöreisn. — Hvað finnst þér skynsam- legast af launþegum að gera nú i kosningunum? — Stettvisir launþegar hljóta tvimælalaust að sjá sér mikinn hag i þvi að kjósa F-listann við þessar kosningar, — ef þeir eru vinstri sinnaðir. eins nu vera ætti. A F-listanum eru einmitt ýmsir fulltrúar launþega, menn, sem hafa m.a. starfað innan verkalýðshreyfingar- innar og hafa drjúga reynslu af gerö kjarasamninga og verka- lýösbaráttu yfirleitt. Ekki virðast nú likur á að Alþýðu- bandalagið eða Framsókn bæti neitt viö i kosningunum, og þvi er það forsenda nýrrar vinstri stjórnar, að F-listinn fái ekki færri þingmenn en siðast.

x

Ný þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.