Ný þjóðmál - 09.08.1974, Síða 1
NÝ
ÞJÓÐMÁL
Blaðið kemur út
vikulega. tJtgáfu-
dagur er föstudagur.
Ritstjórn og af-
greiðsla er að Ing-
ólfsstræti 18, simi
19920.
Málgagn Jafnaðar- og samvinnumanna
Lesið
Ný þjóðmál
Fæst á blaðsölu-
stöðum og að
Ingólfsstræti 18
Möguleikar
á hitaveitu
- SjA OPNU
Samþykkt
ASI um
efnahags-
aðgerðir
- SJÁ BLS. 3
Fiskirœkt i
heiminum
tífaldast til
aldamóta
- SJA OPNU
Kýpur og
helgreipar
vináttunnar
- SJÁ BAKSlÐU
í blaðinu
tJr ýmsum áttum
bls 2
Ha, ha! bls 2
Á dagskrá bls 3
Vikan sem leið bls 4
Skák bls 5
Blaðahornið bls 7
Hreint út sagt bls 7.
Stjórndrmyndnnartilrdiinirnar:
Niðurstaða um helgina?
STEFNT ER AÐ ÞVI,
að nú um helgina liggi
fyrir, hvort vænta sé já-
kvæðrar niðurstöðu í
þeim viðræðum fjögurra
flokka um myndun nýrr-
ar meirihlutasjórnar,
sem fram hefur farið að
undanförnu. Fyrsti við-
ræðufundurinn í þessari
viku var haldinn á mið-
vikudaginn, og þar
skýrðu aðilar nokkuð
ítarlega frá meginhug-
myndun sínum um
stef nugrundvöll, ekki
hvað síst í herstöðvamál-
inu og efnahagsmálun-
um. Annar fundur átti að
vera í gær, fimmtudag,
um það leyti sem Ný
Þjóðmál fóru í prentun.
Það var sem kunnugt er mið-
vikudaginn 24. júli, sem forseti
Islands, dr. Kristján Eldjárn,
fól Ólafi Jóhannessyni, forsætis-
ráðherra, að reyna stjórnar-
myndun, og fyrir nákvæmlega
hálfum mánuði — föstudaginn
26. júli — var fyrsti sameigin-
legi viðræðufundur fulltrúa
Framsóknarflokksins, Alþýðu-
bandalagsins, Samtaka frjáls-
lyndra og vinstrimanna og Al-
þýðuflokksins haldinn. Sér-
stakar undirnefndir voru
skipaðar til að ræða annars veg-
ar efnahagsmálin og hins vegar
varnarmálin, og hafa þær
haldið nokkra fundi.
A fimmtudag i siðustu viku
var haldinn sameiginlegur
fundur allra viðræðunefndanna,
og þar var ákveðið að á fundin-
um s.l. miðvikudag skyldú lögð
fram meginhugmyndir flokk-
anna um stefnugrundvöll, fyrst
og fremst i efnahagsmálum og
varnarmálum, en einnig i öör-
um málum eftir atvikum. Munu
ýmsar slikar tillögur hafa verið
lagðar fram, og er stefnt að þvi
að umræður um þær fram að og
yfir helgina leiði I ljós, hvort já-
kvæðs árangurs sé að vænta af
málefnaumræðunum.
Talið er, að stefnan i varnar-
málunum valdi meiri erfiðleik-
um i viðræðunum en aðgerðir i
efnahagsmálum. Svo sem
kunnugt er sendu stuðnings-
flokkar fráfarandi rikisstjórnar
Bandarikjamönnum ákveðnar
tillögur um framtiðarskipan
varnarmálanna, en Alþýðu-
flokkurinn hefur haft nokkuð
aðra afstöðu i þeim málum
heldur en fram kom i tillögum
rikisstjórnarinnar. Er óséð þeg-
ar þetta er skrifað, hvort hægt
veröur að brúa það bil, og jafn-
framt ná samkomulagi um
nauðsynlegar efnahagsráöstaf-
anir.
Smásölukanpmrnn Irggjast á málningarrrrksmiðjnrnar:
REYNA AÐ SKERÐA
RÉTT NEYTANDANS
Á SAMA TÍMA og hægriblöðin
Ibirtu lofgreinar um nauðsyn
verslunarmilliliðanna fyrir
þjóðfélagið nú um mánaða-
mótin, birtist almenningi
mjög gott dæmi um,
hvað slikir milliliðir geta
kostað hinn almenna neyt-
anda. Þetta kom mjög
skýrt fram i yfirstandandi bar-
áttu kaupmanna gegn sölu á
málningu til neytenda á verk-
smiðjuverði, en ef kaup-
mennirnir fengu sitt fram, þá
Iþyrftu neytendur að kaupa
málninguna á 25-30% hærra
verði en þeir geta nú sem
stendur. Vonir standa hins
vegar til, að verðlagsyfirvöld
komi i veg fyrir þessa
skerðingu á rétti neytenda.
Það gefur sérstakt tilefni til að fjalla um
hlut milliliöanna i þjóðfélaginu, að þetta
málningasölustríð komst I hámæli einmitt
um það leyti sem hægriblöðin skrifuðu lof-
pistla um gildi kaupmannastéttarinnar.
„Milliliðurinn er
mikilvægur” !
Gott dæmi um þess háttar skrif eru eftir-
farandi kaflar úr forystugrein Visis:
..Milliliðurinn er mikilvægur, hvort sem
hann er I verslun eða öðrum samgöngum.
Það er ekkert óþarft við milliliöi, þótt þeir
framleiöi ekki vörur. Það er hreinn barna-
skapur, að skipta atvinnuvegum I undir-
stöðuatvinnuvegi, sem framleiði vörur og
séu nytsamlegir, og aðra atvinnuvegi, sem
ekki framleiði neitt og séu þess vegna að
meira eða minna leyti óþarfir. En barna-
skapur af þessu tagi er furðu útbreiddur
hér á landi.
Menn ættu að hætta að tala um milliliða-
gróða eins og illa gengið fé. Menn ættu að
hætta að nota kennslubækur i reikningi, þar
sem verslun er talin óþörf iðja. Reiknings-
dæmið um kaupmanninn, sem kaupir vöru
á tiu krónur, selur hana aftur á ellefu
krónur og er talinn græða eina krónu, er
dæmi um frumstæðan hugsunarhátt f garð
verslunar. En þetta er börnunum kennt enn
þann dag I dag.”
25-30% ódýrara
frá verksmiðjunum
Um sama leyti og þetta geröist bar áköf
barátta smásölukaupmanna fyrir þvi, að
verksmiðjurnar hættu að selja neytendum
málningu beint á verksmiðjuverði þann
árangur, að forystumenn málningaverk-
smiöjanna komu saman og ákváðu að leita
eftir heimild til þess að hætta slikri sölu til
almennra neytenda.
Fyrirkomulag það, sem nú gildir, er f
sem stystu máli þannig, að neytendur geta
komiö á afgreiðslur málningaverksmiðj-
anna og keypt þar málningu á heildsölu-
verði að álögðum söluskatti. Ef neytendur
kaupa þessa málningu hins vegar hjá milli-
liönum, smásöluversluninni, þá hefur bæst
við það verö, sem þeir greiða, álagning,
sem nemur 24,5%, og svo auðvitað nokkru
meiri söluskattur en ella, þvf sölu-
skatturinn leggst á álagninguna lika.
Láta undan kaupmönnum
Eftir þrýsting frá kaupmönnunum hafa
verksmiðjurnar nú ákveðiö, aö breyta
þessu, ef samþykki verðlagsyfirvalda fæst.
Breytingin yröi þá fólgin í þvf, að verk-
smiöjurnar hættu aö selja almennum
neytendum málningu á heildsöluverði, en
seldu einungis þeim, sem hafa söluskatts-
númer, á þvl veröi.
Bréf frá verksmiðjunum þessa efnis
liggur nú fyrir hjá verðlagsstjóra, en hefur
ekki hlotið afgreiðslu þar. Hins vegar
liggur fyrir, að verksmiðjurnar geta ekki
breytt núverandi fyrirkomulagi á þann
hátt, sem að er stefnt, nema til komi sam-
þykki verðlagsyfirvalda.
Strandar á
verðlagsyfirvöldum ?
Ný Þjóðmál hafa nokkuð kannað það,
hver sé llklegust afstaða verðlagsyfirvalda
til þessarar umsóknar, og bendir ýmislegt
til þess, að þau muni telja það mikla
skerðingu á réttindum neytenda felast I
þessari breytingu, að hún muni ekki veröa
samþykkt.
Þannig bendir ýmislegt til þess, að atlaga
smásölukaupmanna muni mistakast.
Hins vegar ætti þetta dæmi aö vera
landsmönnum til umhugsunar um þaö,
hvernig milliliðirnir geta kostað neytendur
verulegar fjárhæðir. 1 þessu tilviki er
vissulega ekki hægt að taka undir með Vísi,
að „menn ættu að hætta að tala um milli-
liöagróöa eins og illa fengið fé”. Þvert á
móti.
■nm