Ný þjóðmál - 09.08.1974, Side 6
6
NY ÞJOÐMAL
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Nemendum, sem stunda eiga nám i 2.
bekk (1. námsönn), en hafa ekki lokið
prófum i einstökum námsgreinum 1.
bekkjar með fullnægjandi árangri, gefst
kostur á að sækja námskeið i reikningi,
efnafræði, bókfærslu, flatarteikningu, ís-
lenzku og ensku, ef næg þátttaka fæst.
Innritun fer fram i skrifstofu skólans dag-
ana 6. til 8. þ.m. á skrifstofutima.
m
Kópavogur-
Heimilishjdlp
Félagsmálastofnun Kópavogskaupstaðar
óskar að ráða konur til starfa við heimilis-
hjálp, hálfan eða allan daginn. x
Upplýsingar gefnar á Félagsmálastofnun-
inni, simi 4-15-70.
Félagsmálastjóri.
Auglýsing
Námskeiðsgjald verður kr. 800.- fyrir
hverja námsgrein.
Námskeiðin munu hefjast 12. ágúst og
próf byrja 26. ágúst.
Staða hjúkrunarkonu við heilsugæslustöð-
ina á Dalvik er laus til umsóknar, frá 15.
september.
Upplýsingar um stöðuna eru gefnar i heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Nemendur, sem þurfa að endurtaka próf i
öðrum námsgreinum 1. bekkjar skulu
koma til prófs á sama tima og láta innrita
sig i þau dagana 19.-21. ágúst.
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
6. ÁGtJST 1974.
Skólastjóri.
Tilboð óskast i að reisa og fullgera læknis-
móttöku i Súðavik. Byggingin er 120 ferm.
á einni hæð.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri gegn 5.000.- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 27. ágúst 1974, kl. 11:00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGAHTÚNI 7 SÍMI 26844
Laus staða
i
Stafta framkvæmdastjóra Lánasjóös fslenskra náms-
manna er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt iaunakerfi starfsmanna rikisins.
Æskiiegt er, aö umsækjandi hafi lokiö háskólaprófi og hafi
nokkra þekkingu á tölvunotkun.
Tii athugunar eru möguleikar á, aö skrifstofa Lánasjóös
islenskra námsmanna tæki jafnframt aö sér ýmis skrif-
stofustörf fyrir nefnd, er úthlutar styrkjum til jöfnunar á
námskostnaöi, sbr. lög nr. 69/1972. Yröi horfiö aö þvi ráöi,
mundu þau störf einnig falla undir umsjá framkvæmda-
stjórans.
Umsóknir um stööu þessa, ásamt ýtarlegum upplýsingum
um menntun og starfsferil, skuii hafa borist menntamáia-
ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 30. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið,
30. júli 1974.
Störf við fjarritun
Störf við fjarritun hjá Ritsimanum L
Reykjavik eru laus um næstu mánaðamót.
Góð kunnátta i ensku dönsku og vélritun
nauðsynleg.
Umsóknir sendist Póst- og simamála-
stjórninni sem fyrst.
RITSÍMASTJÓRI.
Evrópuráðið
býöur fram styrki tii framhaldsnáms starfandi og verö-
andi iönskóiakennara á árinu 1975. Stýrkirnir eru fólgnir I
greiöslu fargjalda milli landa og dvalarkostnaöar (hús-
næöi og fæöi) á styrktimanum, sem getur oröiö einn til sex
mánuöir.
Umsækjendur skulu helst vera á aldrinum 26-50 ára og
hafa stundaö kennslu viö iönskóla eöa leiöbeiningarstörf
hjá iönfyrirtæki I a.m.k. þrjú ár
Sérstök umsóknareyöublöö fást I menntamálaráöuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Umsóknir skulu hafa borist
ráöuneytinu fyrir 15. september 1974.
Menntamálaráöuneytið,
26. júli 1974.
Aðstoðarlæknar
Staða aðstoðarlæknis á Skurðlækninga-
deild Borgarspitalans er laus til umsókn-
ar.
Staðan veitist frá 1. september, til allt að
12 mánaða. Umsóknir skulu sendar yfir-
lækni, fyrir 28. ágúst, sem jafnframt veitir
frekari upplýsingar.
Reykjavik 1. ágúst 1974,
HEILBRIGÐISMÁLARAÐ REYKJA-
VÍKURBORGAR.
Nú
heiúr
stofnunin
„Þjóð-
hags-
stofnun”
Alþingi samþykkti hinn 8. mai
1974 frumvarp til laga um Þjóö-
hagsstofnun og breytingu á lög-
um nr. 93/1971 um Fram-
kvæmdastofnun rikisins. Meö
lögum þessum nr. 54 frá 21.
maf 1974), sem öðlast gildi 1.
ágúst 1974, er Þjóðhagsstofnun-
inni faliö þaö verkefni aö fylgj-
ast með árferöi og afkomu þjóö-
arbúsins, vinna aö hagrann-
sóknum og vera rfkisstjórn og
Alþingi til ráðuneytis i efna-
hagsmálum.
Lögin fela það i sér, að verk-
efni, starfslið og starfsaðstaða
hagrannsóknadeildar Fram-
kvæmdastofnunar rikisins fær-
ást frá 1. ágúst n.k. að telja til
Þjóðhagsstofnunarinnar, sem
heyrir undir forsætisráðherra,
og skipar hann forstjóra henn-
ar.
Meðal verkefna Þjóðhags-
stofnunr eru þessi talin i 2. gr.
laganna:
1) Að færa þjóðhagsreikninga.
2) Að semja þjóðhagsspar og
áætlanir.
3) Að semja og birta opinber-
lega tvisvar á ári, vor og haust,
yfirlitsskýrslur um þróun þjóð-
arbúskaparins og horfur i þeim
efnum, þar á meðal um fram-
leiðslu, neyslu, fjárfestingu,
viðskipta- og greiðslujöfnuð,
verðlag og kaupgjald, atvinnu
og tekjur almennings, afkomu
atvinnuvega og fjármál hins
opinbera. Auk þess skal stofn-
unin koma niðurstöðum athug-
ana sinna á einstökum þáttum
efnahagsmála fyrir almennings
sjónir, eftir þvi sem kostur er.
4) Að annast hagfræðilegar at-
huganir og skýrslugerð um
efnahagsmál fyrir rikisstjórn-
ina og alþjóðastofnanir á sviði
efnahagsmála, eftir þvi sem
rikisstjórnin ákveður, og fyrir
Seðlabanka Islands og Fram-
kvæmdastofnun rikisins, eftir
þvi sem um semst.
5) Að láta alþingismönnumog
nefndum Alþingis i té upplýs-
ingar og skýrslur um efnahags-
mál.
6) Að veita aðilum vinnumark-
aðarins upplýsingar um efna-
hagsmál og annast fyrir þá hag-
fræðilegar athuganir, eftir þvi
sem um semst.
Forsætisráðherra hefur skip-
að Jón Sigurðsson, hagrann-
sóknastjóra, sem verið hefur
forstöðumaður hagrannsókna-
deildar Framkvæmdastofnunar
rikisins, forstjora hinnar nýju
stofnunar.