Ný þjóðmál - 04.03.1975, Síða 1

Ný þjóðmál - 04.03.1975, Síða 1
DEILURNAR UM LAUN ALÞJNGISMANNA — BAKSlÐA NÝ ÞJÓÐMÁL Afgreiðsla Nýrra þjóðmála er að Ingólfs- stræti 18, Reykjavik, simi 19920. Ritstjóri blaðsins hefur aðsetur að Vonarstræti 8, sími 12002. Rætt við Steinunni i opnu blaðsins i dag er viðtal við Steinunni Finnboga- dóttur, varaborgar- fulltrúa, um borgar- málin og starfsað- stöðu hennar á þeim vettvangi. Lóðaleiga í Gjábakka smávægileg Svo sem kunnugt er hafa nokkrir aðilar lóðir á leigu i Gjá- bakkalandi á Þing- völlum, og hafa þar sumarbústaði. I sambandi viö rikis- reikninginn 1972, sem nýlega hefur verið lagður fram með athugasemdum yfirskoðunar- manna, kemur fram, að yfir- skoðunarmenn óskuðu m.a. svara við eftirfarandi spurningu: Hverjar eru leigu- tekjur af sumarhúsalóðum i Gjábakkalandi? í svarinu kemur fram, að eftirfarandi aðilar greiða eftir- farandi lóðaleigu: Bárður Danielsson, verkfræð- ingur, 2000 krónur. Gunnar J. Möller, hrl., 2000 krónur. Kanney eétursdótlir og systur, 2000 krónur. Óli Barðdal, sjómaður, 2000 krónur. Ingvar N. Pálsson, fram- kvæmdastjóri, 2000 krónur. Sigriður Einarsdóttir, skv. gömlum samningi, 150 krónur. Samtals voru þvi leigugjöld vegna lóða i Gjábakkalandi á árinu 1972 12.150 krónur. Það virðist þvi ekki dýrt landið á „helgasta stað” þjóðarinnar. 2. árg. —Þriðjudagur 4. mars — 9. tbl. NÝ ÞJÓÐMÁL Ný þjóðmál koma út vikulega. Útgáfudagur blaðs- ins er þriðjudagur. Ný þjóðmál fást á blaðsölustöðum, og i afgreiðslunni að Ingólfsstræti 18. NIÐ URSTAÐA KJA RARÁÐSTEFNU 4.S.Í. : Verkalfðsfélögin afli sér strax verkfallsheimildar A Kjararáðstefnu verkalýðsfélaga innan AI- þýðusambands islands, sem haldin var i gær, var skorað á öll verkalýðsfélögin að afla sér nú þegar heimildar til verkfallsboðunar, og vera reiðubúin að beita þeirri heimild innan skamms ef atvinnu- rekendur og rikisstjórnin sjá ekki að sér i efna- liags- og kjaramálunum. Er þvi lýst yfir i á- lyktun, sem ráðstefnan samþykkti í gærkvöldi, að nú væri langlundargeð verkalýðshreyfingarinnar þrotiö.' Ráðstefna þessi var haldin til þess að ákveöa næstu skref verkalýðsfélaganna innan Al- þýðusambandsins i samninga- málunum, en hingað til heíur ekkert miðað i samkomulags- átt. Rikisstjórnin hefur neitað að semja um skattalækkanir, sem verkalýðshreyfingin gæti metið til jafns við kauphækkun, og vinnuveitendur hafa ekki iagt fram neitt raunhæft tilboð um kjarabætur. Niðurstaða kjararáðstefnunn- ar, sem lauk i nótt, var i megin- atriðum sú, að nú þyrfti verka- iýðshreyfingin að sameinast til allsiierjarátaks i þvi skyni að knýja fram kjarabætur og ná sem fyrst þeim kaupmætti sem um var samið i siðustu kjara- samningum. Þess vegna voru aðildarfélög Alþýðusambands-{ ins hvött til að afla sér nú þegar | heimildar til að boða til verk-[ falls. 1 framhaidi af þessari sam-l þykkt má búast við, að haldnirj verði fundir i hinúm ýmsu verkalýðsfélögum á næstu dög- um, þar sem samningamálin [ verða rædd og stjórnum félag- anna veitt umboð til verkfalls- boðunar. Það mun svo ráðast af afstöðu ! atvinnurekenda og rikisstjórnar i hvort, og hvenær, verkalýðsfé-1 lögin neyðast til að beita þeirri heimild. Upphitun méðalhúss með otíu kostar 15-20 þúsund á mánuði: Helmingur dagvinnulauna verkamanns í olíuhitun! Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi felldi allar til- lögur stjórnarandstöðunnar um hækkun á þeim styrk, sem veittur er til að jafna hitunarkostnað meðal landsmanna. Þar á meðal var felld tillaga frá Karvel Pálmasyni um að elli- og örorkulif- eyrisþegar hlytu tvöfaldan styrk. Rikisstjórnin gerði uppftaf- lega ráð fyrir, að oliustyrkurinn yrði áfram óbreyttur i krónutölu —- þ.e. 7.200.00 krónur. 1 meðför- um þingsins var þetta þó hækk- að i 8.200.00 krónur, en allar til- lögur um frekari hækkun felld- ar. Stjórnarfrumvarpið gerði ráð fyrir, að áfram myndi eitt sölu- skattsstig renna til þessa verk- efnis. En jafnframt var gert ráð fyrir, að hluti af þessum tekjum skyldu fara til að styrkja raf- veitur ,,að þvi marki, sem þær nota oliu sem orkugjafa til framleiðslu rafmagns til hitun- ar ibúða á sölusvæði sinu” og einnig „til orkusjóðs til jarð- hitarannsókna og hitaveitu- framkvæmda”. Tillögur Karvels 1 umræðunum um frum- varpið, sem var afgreitt sem lög frá Alþingi fyrir helgina, lagði Karvel Pálmason fram breytingartillögur. Þar var annars vegar gert ráð fyrir að allt það fé, sem kæmi inn með álagningu eins söluskattsstigs, og tekjur vegna 20% sérstaks gjalds á heitt vatn frá hitaveit- um, yrði notað til að jafna hitunarkostnaðinn, en engu af þessu fjármagni yrði veitt til hitaveituframkvæmda eða ann- arra slikra verkefna. Jafnframt lagði hann til að styrkur til elli- og örorkulifeyrisþega yrði tvö- faldur sá styrkur, sem aðrir fengju. Þessar tillögur voru allar felldar. SVIikil hækkun olíu. I ræðu Karvels Pálmasonar i neðri deild s.l. fimmtudag kom fram, að frá þvi lögin um ráð- stafanir til að draga úr áhrifum oliuverðhækkana á hitunar- kostnað ibúða voru samþykkt i april i fyrra, þá hafi oliuverðið hækkað um 8.50 krónur á hvern einasta litra af oliu. Þess vegna væri furðulegt að rikisstjórnin hygðist ekki hækka verulega þann styrk, sem greiddur yrði til þeirra sem verða að hita upp hús sin að öllu leyti með oliu. Það kostaði i dag 15-20 þúsund krónur á mánuði fyrir ibúðar- eiganda venjulegs ibúðarhús- næðis að hita upp hús sitt. Það væri um helmingur af mánaðar- kaupi verkamanns miðað við dagvinnutima. Vildi vt'ila 120D-1 100 milljólltt' Til samanburðar benti hann j á, að jafnvel þótt gjaldskrá hita- [ veitunnar i Reykjavik yrði [ hækkuð um 30% frá þvi, sem hún þá var, þá yrði hitunar- j kostnaðurinn i Reykjavik samt j sem áður aðeins um þriðjungur þess, sem er á þeim svæðum, þar sem hita þarf upp með oliu.j Hann taldi þvi, að mun meira þyrfti að gera til að jafna hit- unarkostnað en rikisstjórnin stefndi að. Flytti hann þvi til- lögu um, að 20% gjald yrði lagt á gjaldskrár hitaveitna, en það myndi gefa 220-230 milljónir króna i tekjur. Andvirði eins söluskattsstigs væri 1000-1100 milljónir króna, þannig að sam- an gerði þetta 12-13 hundruð milliónir. Miðað við reynslu siðasta árs virðist rikisstjórnin nú aðeins stefna að þvi að greiða 700-800 milljónir króna i oliustyrk á Framhald á 7. siðu. — Stjórnarmeirihlutinn felldi tillögu um aukinn jöfnuð í húsahitunarmálum, og bættan hlut elli- og örorkulífeyrisþega VÉSTEINN ÓLASON SKRIFAR UM Z-MALID — SJÁ OPNU

x

Ný þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.