Ný þjóðmál - 04.03.1975, Page 4

Ný þjóðmál - 04.03.1975, Page 4
4 NÝ ÞJÓÐMÁL S/Z heitir ritgerð eftir þekkt- an franskan fræðimann og fjall- ar hann þar um andstæðu sem birtist i Islensku menningarlifi um þessar mundir þótt með nokkuð öðrum hætti sé en suður þar. Hundrað manns hefur bundist samtökum um að verja z-una eða öllu heldur endurreisa hana og menntamálaráðherra er lagstur undir feld til að ihuga hvernig við skuli bregðast. Segja má að timinn til að leggja fram þetta ávarp hundraðshöfð- ingjanna sé hyggilega valinn eftir að umhverfisvandamal rikisútvarpsins hafa verið far-. sællega ieyst. Reyndar er það svo, eins og menntamálaráðherra hefur sjálfur vakið athygli á, að hér er ekki aðeins um zað ræða heldur ýmsar fleiri breytingar á þeirri stafsetningu sem kennd hefur verið I skólum siðustu áratugi. Hugsanlegt er þvi að mennta- málaráðherra taki þann kost að fella Ur gildi einhverjar af breytingum fyrirrennara sins en ekki allar. Mér virðist að aðrar breyting- ar en þær að fella niður z skipti afarlitlu máli en mikið af gagn- rýninni á breytingarnar beinist einmitt gegn þeim. Þeir virðast t.d. hafa talsvert til sfns máls sem halda þvi fram að reglur um stóran staf og litinn séu litt eða ekki auðveldari i meðförum eftir breytinguna. t vissum til- fellum hefur verið gefið val- frelsi, mun það aðallega varða eitt orð eða tvö, svo og i/y þar sem fræðilegar forsendur fyrir greinarmun eru hæpnar. Það má vel vera rétt aö þetta val- frelsi auðveldi ekki kennslu að neinu marki og geti valdið vandræðum við skráningu á söfnum þótt hitt sé lika skiljan- legt að kennurum þyki hart að þurfa að kenna það sem engin fræðileg rök eru fyrir og jafnvel að fella nemanda vegna villu i sliku atriði. Enn fremur virðist, mér litlu máli skipta þótt gerðar yrðu tvær breytingar i átt til fyrra horfs sem tengjast niðurfellingu z,þ.e. að láta annað t-ið haldast i riti þegar tvö hafa fallið niður á undan s og halda áfram að skrifa stst i miðmynd sagnar sem hafa st I stofni, þannig að skrifa ætti þau hafa kætst og kysststen ekki þau hafa kæsl og kysst. í öllum þessum tilfellum sem nU hafa verið nefnd má finna margvisleg rök bæði með og móti en niðurstaðan skiptir svo litlu máli að ótækt er að láta þessar breytingar eyðileggja þá sem er verulega mikilvæg: af- nám z. Ég get ekki betur séð en þær röksemdir sem færðar eru fram gegn þvi að fella z-una niður séu annaðhvort harla léttvægar eða hrein og bein falsrök. 1) Uppruna og orðsifjasjónar- mið.Það er vist erfitt að finna nokkur almenn rök sem segja að stafsetning okkar skuli ganga nákvæmlega jafnlangt i þvi að segja til um uppruna orða og stafsetningin frá 1929. Vandalaust er að breyta staf- setningarreglum þannig að stafsetningin gefi miklu meiri vfsbendingar um uppruna, rita tvenns konar á, tvenns konar ö, tvenns konar eo.s.frv. En hvert er þá gildi z til að sýna upp- runa? Varla skiptir z I ending- um þar miklu máli. Það þarf ekki neina z til að mönnum sé ljóst að eitthvað meira en litið skylt muni vera með örðmynd- unum hefur lagað og lagast. Oftast er sömu sögu að segja um zi stofni. Það þarf ekki lærðan málfræðing til að láta sér detta i hug að betri og bestur muni vera af sömu rót, eða breti og breskur. Hafi menn lært um brottfall tannhljóðs á undan s (sem er ekkert flóknari regla en sU sem skýrir samlögun tann- hljóðs og s) geta þeir séð i hendi sér að 11 fyrra orðinu muni til- heyra rótinni. Litum á orðin sem hundraðshöfðingjar taka sem dæmi: gæsla, tiska og verslun.Ósannað mál er að erf- iöara sé að kenna samband þeirra þannig ritaðra við gæta, tið og verð en þótt ritað væri með z.Þau fáu orð þar sem staf- setning skiptir einhverju máli til að sýna uppruna, t.d. verslun sem gæti einnig verið komið af vara samkvæmt s-stafsetningu (og skyldi nU uppruninn vera al- veg öruggur?) hljóta að vega afar létt þegar litið er á málið i heild. 2) Skýrleikasjónarmið er skylt upprunasjónarmiði en samt dálltið annars eðlis. Hér er um það að ræða að orðmyndir sem hljóma alveg eins I talmáli eru greindar að með z en falla saman þegar henni er sleppt. 1 raun og veru gerist hér það sama I ritmálinu or talmálinu, að samhengið skýrir merking- una þannig að lesandi veit óðar við hvora af tveimur mögu- legum orðmyndum er átt. Það er t.d. afskaplega erfitt að hugsa sér setningu þar sem vafi getur leikið á hvort átt sé við' ræstaf rætasteðaaf ræsa.Þetta samfall mundi þó hverfa ef horfið yrði að þvi að láta annað t af tveimur standa þegar brott- fall verður á undan s (Það væri vitaskuld ósamkvæmni en mætti réttlæta með fagurfræði- legum og tilfinningalegum rök- um). Tökum annað dæmi sem meiri vafi gæti verið um, ger- mynd eða miðmynd af þeysa og þeytast. Hann hefur þeyst Ut i bláinn. Hér er vissulega ekki hægt að sjá innan setningar um hvora sögnina er að ræða en oft ast mundi mega sjá I viðara samhengi hvort liklegt er að maðurinn hafi farið á einhverj- um reiðskjóta, og ef svo er skiptir tvíræðnin liklega litlu máli. Það er lika litið tjón þótt menn þurfi stöku sinnum að hagræða máli sinu til að komast hjá þess konar tviræðni miðað við þau málspjöll sem valdið hefur verið I stafsetningar- kennslu með annarlegri orð- og setningaskipan i æfingum til að leggja þrautir fyrir nemendur. 3) Festusjónarmiöið. Menn telja stafsetninguna frá 1929 hafa gefistvel. Þess vegna rlði á að breyta engu I henni. Stafsetn- ingin hefur þó ekki gefist betur en svo að skólarnir urðu að gef- ast upp á að kenna að skrifa z i bamaskólum og i raun og veru hefur aðeins litill hluti nemenda I miöskólum náð tökum á henni. Það eru þvi varla ýkjur að segja að naumast hafi meira en fimmtungur þjóðarinnar tamið sér að nota z og varla nema helmingur þess hluta lært regl- urnar til hlltar. Þetta tel ég þó skipta minna máli en hitt að sá miklu hluti þjóðarinnar sem að- eins hefur lokið skyldunámi i skóla hefur ekki átt þess neinn kost að læra hina opinberu staf- setningu og hefur þetta .atriði lagst á sveif með öðrum sem hindra þennan hluta þjóðarinn- ar að láta til sin taka á opinber- um vettvangi. Hitt dreg ég ekki i efa að allir þeir hálærðu stjórar og forstöðumenn sem skipa hundraðmannaflokkinn hafi lært að skrifa z.Mörgum þeirra ogkannski öllum er áreiðanlega sU hugsun fjarlæg að þeir séu að verja menningarleg forréttindi sin með baráttu gegn afnámi z- unnar en það er mál sem þeir ættu að hugleiða betur. Ég er sammála þvi grund- vallarsjónarmiði að allmikil festa eða samhengi i stafsetn- ingu geti verið mikilvægt atriði vegna sambands við fortiðina, vegna kostnaðar við bókagerð og e.t.v. af fleiri orsökum. En ég held lika að eina skynsamlega leiðin til að forðast róttækar stökkbreytingar á stafsetningu sé að láta smám saman undan sanngjörnum óskum um breyt- ingar á stafsetningunni, og af- nám z er breyting sem engum spjöllum veldur hvorki á Utliti ritmálsins né notagildi þess. Bindi menn sig við þá hugsjón eina að breyta aldrei neinu mun óánægjan safnast fyrir og endirinn verða stafsetningar- bylting. Hundraðshöfðingjar telja að afnám z valdi glundroða en sannleikurinn er sá að z-reglan hefur valdið glundroða alveg frá 1929, ef hægt er að kalla það glundroða að sumir skrifi z þar sem aörir skrifa s. (Það er spaugilegt en i samræmi við eðli málsins að þau ,,menningar”öfl sem þurftu 30 ár til að taka upp stafsetninguna frá 1929 skuli nU vera meðal hinna áköfustu að verja hana gegn minnstu breyt- ingum, og að hin fyrri tregða þeirra að taka upp þá stafsetn- ingu skuli nU stundum heyrast notuð sem röksemd gegn þvi að breyta henni.) Glundroða i ritun s/zverður ekki Utrýmt nema á einn veg, að allir fari að skrifa s, og þannig hlýtur það að enda, en hins vegar getur menntamála- ráðherra nU lengt glundroða- timabilið um ófyrirsjáanlega framtið ef hann kýs að endur- reisa z. Ég lit svo á að röksemdirnar gegn þvl að fella z Ur ritmálinu séu falsrök og verði jafnmikil falsrök þótt hundrað sinnum hundrað skrifi undir þau. Óum- deilanlegt er hins vegar að auð- veldara verður að kenna staf- setninguna z-lausa og að timan- um sem varið hefur verið tii að kenna þannan óheillastaf má verja margfalt betur til annars konar móðurmáiskennslu. Ég hef heyrt fleiri en einn af hinum hundrað z-liðum nefna þaö sem röksemd gegn nokkr- um breytingum á Islenskri staf- setningu að hámenningarþjóðir eins og bretar og frakkar séu mjög ihaldssamar i stafsetning- armálum. Hér er verið að bera saman ósambærilega hluti. í fyrsta lagi er tunga breta og frakka greind i mállýskur á allt annan hátt en islenska en meira varðar þó liklega hitt að há- menning þessara þjóða hefur um aldir verið séreign fá- mennra forréttindahópa. Staf- setningu geta þessar þjóðir ekki breytt að neinu marki af þvi að hUn brUar hjá þeim margs kon- ar djUp sem ekki verður komist yfir annars. Ég imynda mér að flestir Islendingar séu sammála um að þessi einkenni á menn- ingu þjóða þessara séu ekki til fyrirmyndar. Vera má að menning okkar sé þó ekki eins samfelld og við vildum vera láta á slöasta ári og vafalaust þurf- um við að vera vel á verði og vinna gegn menningarlegri stéttagreiningu jafnframt þvi sem við leggjum kapp á að vernda forn verðmæti og gera þau að lifandi afli inUtiðinni. Zá sér að visu langa sögu á Islensk- um bókum en reglurnar frá 1929 eru ekki reistar á fornri staf- setningarhefð. Við glötum engu eða sáralitlu með þvi að fella z alveg burt Ur ritmálinu en á- vinningurinn er ótviræður. STEINV EKKI Á siðastliðnu vori höfðu Samtökin og Alþýðu- flokkurinn samstarf um framboð til sveitar- stjórna á ýmsum stöðum á landinu. M.a. var um sameiginlegt framboð þessara aðila að ræða i Reykjavikurborg undir merki J-listá. Á þeim lista var Björgvin Guðmundsson, fulltrúi Alþýðu- flokksins, i efsta sæti, og Steinunn Finnbogadótt- ir, fulltrúi Samtakanna, i öðru sæti. Þessi listi hlaut einn mann kjörinn. Blaðamaður Nýrra Þjóðmála ræddi um helg- ina við Steinunni Finnbogadóttur, varaborgar- fulltrúa, um afskipti hennar af borgarmálefnum að undænförnu. — Steinunn, nú ert þú vara- borgarfulltrúi J-listans I Reykjavik, þ.e. Samtakanna og Alþýðuflokksins? — Já, ég var til þess kjörin I siöustu borgarstjórnarkosning- um. Hin leiðin hans Björgvins — En það hefur vakið undrun margra, að ekkert hefur heyrst frá þér I borgarst jórn eftir kosn- ingarnar, þótt þú hafir látiö mikið að þér kveða á siðasta kjörtimabili. Hvers vegna er það? — Eins og ég sagði áðan þá er ég kjörin fyrsti varaborgarfull- trúi Björgvins Guðmundssonar, sem skipaði fyrsta sætið á J-list- anum, og samkvæmt öllu eðli- legu ætti hann þvi að kveðja mig til fundarsetu i borgarstjórn Reykjavlkur þegar hann forfall- , ast. En Björgvin valdi hina leið- ina. t lögunum um sveitarstjórnir er ákvæði, sem heimilar kjörn- um fulltrUa að fela samflokks- manni af sameiginlegum lista tveggja flokka að sitja fund i forföllum sinum, og er þetta á- kvæði sjálfsagt hugsað til að gefa svigrúm vegna einhverra ákveðinna málaflokka. En að Utiloka hinn réttkjörna vara- borgarfulltrUa er án efa ekki i anda laganna. Hins vegar virð- ist það vera i anda Björgvins Guðmundssonar, sé um sjálf- ræði hans að ræða i þessu tilviki, eða annarra þeirra, er þar halda um stjórnvölinn. — Feilur þér þetta ekkki illa? — ódrengileg framkoma fell- ur að sjálfsögðu öllum illa. Ég er þar engin undantekning. En burtséð frá þvi þá finnst mér þetta sýna félagslegan varn- þroska, og frá pólitisku sjónar- miði finnst mér það heldur ekki stjómviskulegt. Nota hvert tæki- færi til að vinna að framgangi mála — Hefur þú þá engin afskipti haft af borgarmálum frá siðustu kosningum? BERGÞÓR ATLASON: BRÉF FR Blaðinu hefur borist eftirfarandi bréf frá Bergþóri Atlasyni á Siglufirði. Siglufirði 28. febrUar „Þetta er nú ekki hægt lengur”, „eru þeir að verða vitlausir”! Þessar setningar hafa menn heyrt svo til daglega undanfarn- ar átta vikur. Það er sama við hvem talað er og alveg sama Ur hvaða stjórnmálaflokki. For- menn stjórnmálaflokkanna i þeirri stjórn, sem nU ræður rikj- um, birta grýlusögur I málgögn- um sinum til skelfingar almenn- ingi og heldur skuggalegum verkum sinum til málsbótar. Einn vinur minn, sem var tryggur maður i flokki ungra framsóknarmanna, sagði mér rétt fyrir slðustu alþingiskosn- ingar, að nU væri Framsóknar- flokkurinn kominn of langt til hægri og ætlaði hann þessvegna að kjósa þann arm flokksins, sem væri að kljUfa sig Ut Ur og hann teldi þjóna betur hugsjón- um miðjumanna og vinstri- manna. Þegar þetta var þá taldi ég þetta rangt hugsað og reyndi að telja hann ofan af þeim hægri ótta, sem hann bar til sinna fyrri félaga. Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar og þvi miður þá hefur reynslan sýnt, að þessi vinur minn hafði svo sannarlega á réttu að standa. Ég vil ekki vera ósanngjarn og þessvegna viðurkenni ég strax, að það er augljóst mál, að viö íslendingar eigum við mikla erfiðleika að striða þessa stund- ina. Hitt er svo annað mál, hversvegna voru ekki miklu fyrr gerðar ráðstafanir til að vinna á móti þeim erfiðleikum, sem við blöstu fyrir meira en heilu ári siðan? Þegar þessir blessaðir stjórnarherrar eru svo spurðir hvað þeir eiginlega ætli aö ganga langt, þá er viðkvæöið upp á eina visu:

x

Ný þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.