Ný þjóðmál - 04.03.1975, Side 8

Ný þjóðmál - 04.03.1975, Side 8
HVERNIG VERÐUR ÚTVARPSRÁÐIÐ ? — SJA OPNU VIDTAKANDI: Kaup og kjör þingmanna Þingfararkaupsnefnd Alþingis hélt fund með blaðamönnum s.l. föstudag, og ræddi þar um kaup og kjör alþingismanna. Þegar hefur verið fjallað itarlega um þennan blaðamannafund i fjölmiðlum og skal hann þv! ekki rakinn hér sér- staklega, en hins vegar dregið saman i stuttu máli kjarni þeirra upplýsinga og sjónarmiða sem þar kemur fram. A blaðamannafundinum voru þingmennirnir Sverrir Hermanns- son, sem er formaður nefndarinnar, Ingvar Gislason, Friðjón Þórðarson, Eggert G. Þorsteinsson, Helgi Seljan og Sigurlaug Bjarnadóttir, og auk þess Friðjón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Alþingis. A blaðamannafundinum komu m.a. fram eftirfarandi upp- lýsingar um kaup og kjör alþingismanna um þessar mundir: 1. LAUN Samkvæmt ákvörðun á s.l. ári taka alþingismenn laun eftir B-6 flokki i launakerfi opinberra starfsmanna. Þau laun eru nú 117.421.00 krónur. 2. HÚSALEIGA Þingmenn, sem lögheimiii hafa utan Reykjavikur, fá húsaleigu- styrk, sem nú er 23.000.00 á mánuði, meðan þing stendur. 3. FÆÐISPENINGAR Þingmenn, sem búsettir eru utan Reykjavikur, fá fæðispeninga yfir þingtimann, sem nú eru 1140krónur á dag. Þingmenn, sem eiga lögheimili i Reykjavik en eru þingmenn fyrir kjördæmi úti á landi, fá hálfa dagpeninga i þinghléum. 1. FERDAKOSTNAÐUR Sérhver alþingismaður fær ákveðna fjárhæð árlega til þess að ferðast innan kjördæmis sins. Þessi upphæð er nú 200.000 krónur Auk þess greiðir Alþingi kostnað þingmanna við að komast til Dings og frá þingi, jafnt við setningu og slit Alþingis sem i þinghléi. Þá fær sérhver þingmaður greiddan kostnað við „nauðsynlegar” ferðir, allt að 24 á ári. Þessi kostnaður er greiddur eftir reikningi. 5. SÍMAKOSTNAÐUR Hver þingmaður fær greitt afnotagjald eins sima, og auk þess umframsimtöl þess sima og langlinusamtöl. 6. ÖNNUR LAUN Þingmaður, sem er starfsmaður rikisins eða rikisstofnunar, og sem getur aðeins gegnt þvi starfi sinu milli þinga, heldur 30% af launum sinum i þeirri stöðu, og fær þau til viðbótar við þingfarar- kaup sitt. Geti þingmaður mætt daglega til vinnu i starfi sinu hjá rikinu eða rikisstofnun, þá hlýtur hann 60% af launum sinum fyrir það starf. 7. LAUN FYRIR NEFNDARSTÖRF Þingnefndir — þ.e. nefndir, sem starfa i þinginu yfir þingtimann — eru ólaunaðir. Miliiþinganefndir eru hins vegar yfirleitt launaðar. Auk þess eru þingmenn auðvitað i ýmsum nefndum og ráðum á vegum rikisins. Þannig kemur fram i opinberum skýrslum, að á árinu 1973 hlutu 36 þingmenn samtals 5.5 milljónir króna i láun íýrir nefndarstörf á vegum rikisins. Þetta ár voru sam- tals 2201 maður i slikum nefndum og fengu þeir samtals- 82,4 milljónir i laun. 1 þeim umræðum, sem fram hafa farið að undanförnu um kaup og kjör'alþingismanna, hafa ákveðin atriði einkum valdið deilum. Þessi atriði eru: 1. ÁKVEÐA SJÁLFIR LAUNIN Alþingismenn ákveða sjálfir kaup og kjör: þingfararkaupsnefnd Alþingis fjallar um þessi mál i samræmi við lög um þingfararkaup alþingismanna. Ýmsir telja eðiilegra, að Kjaradómur f jalli um laun aiþingismanna, eins og opinberra starfsmanna. Um þetta eru skiptar skoðanir á þingi, og óvist hvort samþykkt verður að fela Kjaradómi þetta verkefni. Á blaðamannafundinum i siðustu viku töldu nokkrir nefndarmenn i Þingfararkaupsnefnd, að sennilega yrðu kjör þingmanna enn betri ef Kjaradómur ákvæði þau. Framhald á 7. siðu. Helstu deilumálin OÞORFHÆKKUN SÖL USKA TTSINS Rikisstjórnin hefur enn hækkað söluskattinn, að þessu sinni i 20%. Hækkun söluskattsins nú var rökstudd með þvi, að afla þyrfti nýs fjármagns til þess að standa að sjálfsögðum greiðslum vegna náttúruhamfaranna i Neskaupstað. Þingmenn Samtakanna á þingi bentu hins vegar á, að þessi hækkun söluskattsins væri algjörlega óþörf i þessu skyni, og gerðu tillögur um aðrar leiðir til þess að afla Viðlagasjóði þess fjármagns, sem til þarf, en sú tillaga var felld. Þingmenn Samtakanna, og þingmenn Alþýðuflokksins í neðri deild, greiddu atkvæði gegn hækkun söluskattsins, og sömuleiðis Eðvarð Sigurðsson, þingmaður Alþýðubandalagsins. Aðrir þingmenn I deildinni greiddu ýmist atkvæði með hækkuninni, eða sátu hjá. í efri deild greiddi einungis Geir Gunnarsson, þingmaður Alþýðubanda- lagsins, atkvæði gegn hækkun söluskattsins. Karvel 1 umræðum um málið i neðri deild s.l. fimmtudag gagnrýndi Karvel Pálma- son meðferð málsins af hálfu rikis- stjórnarinnar, og sagði, að „samráð i oeim skilningi, sem ég legg i það orð, hafa ekki verið höfð við stjórnarandstöðuna ’ ’. Hann lagði áherslu á, að Samtökin teldu að „það bæri að bæta Norðfirðingum það tjón, sem þar átti sér stað, á sama hátt og gert var vegna tjónanna i Vestmannaeyjum”, en hins vegar væri ágreiningur við rikisstjórnina um leiðir þær, sem hún hefði valið, og Samtökin hefðu bent á aðrar leiðir, sem þau teldu affara- sælli, en þær fælu i sér að framlengja gildistima þess söluskattsstigs, sem hingað til hefur runnið i Viðlagasjóð, en veita siðan til viðbótar 500 milljónum úr rikissjóði. Þessi fjárveiting kæmi i stað sölu- skattshækkunar, og yrði henni mætt með niðurskurði rfkis- útgjalda. Flutti Karvelum þetta tillögu ásamt Gylfa Þ. Gislasyni. Karvel sagði, að það væri auövitað spurning, hvort það væri réttlætanlegt að skatt- leggja allan almenning i landinu, og þá elli- og örorku- lifeyrisþega jafnt sem aðra, til þess að bæta t.d. það tjón, sem oliufélögin hefðu orðið fyrir. Hann liti á þau sem gróðafyrir- tæki, sem ættu sjálf að bera það tjón, sem þau kynnu að verða fyrir, og væri það allt annars eðlis en það tjón, sem Norð- firðingar sjálfir hefðu mátt þola, og sem auðvitað ætti að bæta. Hann sagði alla sammála um að framlengja gildistima þess söluskattsstigs, sem hingað til hefur íunnið i Viðlagasjóð. „En hinu eru menn andvigir, að I þvi ástandi, sem nú rikir i þjóðfélaginu: kaupgjald er bundið og þrýst hefur verið niður á lægsta stig launakjörum hjá' láglaunafólki og öllum almenningi, sé bætt á álögum á þetta fólk. Það má vera, að þeir einstaklingar i þjóðfélaginu, hvort sem það er á Alþingi eða annars staðar, sem eru á tvö- földum topplaunum I starfi, þyki litið muna um eitt sölu- skattsstig til hækkunar frá þvi sem nú er. En þann, sem er á elli- eða örorkullfeyrisbótum, eða þann láglaunamann, sem ekki hefur nema 40 þúsund krónur I mánaðakaup, munar um að bæta einu söluskattsstigi viö hvern einasta matarbita, sem hann lætur ofan i sig. Það er þessa aðila, sem munar fyrst og fremst um það, sem hér er verið að gera”, sagði Karvel. Þá benti hann á afstöðu verkalýðshreyfingarinnar, og sagði að nú, þegar samninga- viðræður um nýja kjara- samninga stæðu yfir, væri það ögrun við verkalýðshreyfinguna að samþykkja söluskattshækk- un — ögrun, sem gæti haft af- drifarikar afleiðingar. Karvel Itrekaði siðan, að hann væri andvigur þeirri leið, sem rikisstjórnin vildi fara, og myndi greiða atkvæði gegn henni. Eins og áður segir voru aliar breytingartillögur Samtakanna og annarra stjórnarandstæð- inga felldar, og söluskatturinn siðan hækkaður um eitt stig. FRA LA UNPEGASAMTÖK UNUM Verka lýðsfélag Borgarness á móti járnblendi- verksmiðjunni Aðalfundur Verkalýðsfélags Borgarness var haldinn 23. febrúar s.I., og kom fram I skýrslu stjórnar, að starfsemin var með mesta móti á árinu 1974 og að fjárhagur félagsins er góður. Félagsmenn eru nú rúm- lega 300 talsins. Stjórn félagsins var sjálfkjör- in, og skipa hana: Jón A. Egg- ertsson, formaður, Anna Maria Guðbjartsdóttir, ritari, Ingi- björg Magnúsdóttir, gjaldkeri, Baldur Jónsson, fjármálaritari, Þorgeir Guðmundsson, varafor- maður, Guðleif B. Andrésdóttir, vararitari, Agnar Ólafsson, varagjaldkeri, og Sigurður Eiðsson, varafjármálaritari. A aðalfundinum, sem var fjöl- sóttur, var m.a. samþykkt eftir- farandi ályktun: „Aöalfundur Verkalýðsfélags Borgarness, haldinn 23. feb. 1975, lýsir yfir andstöðu við fyr- irhugaða byggingu málm- blendiverksmiðju á Grundar- tanga I Hvalfirði, vegna þeirrar miklu mengunarhættu, sem af verksmiðjunni stafar. Auk þess hefur verið sýnt fram á það að nægjanlegur markaður er fyrir raforku frá Sigöldu, t.d. til húsahitunar, þó svo að verk- smiðjan komi ekki til, og er þvi mun skynsamlegra að nýta raf- orkuna á þann hátt og spara með þvi gjaldeyri I staö þess að selja verksmiðjunni raforkuna á lágu verði”. 1859 félagar eru i Einingu Eins og frá var skýrt i siðasta blaði, hélt Verkalýðsfélagið Eining á Akureyri aðalfund 23. febrúar s.l„ og var þar m.a. samþykkt einróma álytkun um kjaramál sem birt var I síðustu viku. A aðalfundinum var einnig lýst stjórnarkjöri, en sem kunn- ugt er fór A-listinn með mikinn sigur af hólmi í kosningunum i félaginu, og eru eftirtaldir menn þvi I stjórn félagsins: Jón Helgason, formaöur, Þorsteinn Jónatansson, varaformaður, Sigrún Bjarnadóttir, ritari, Jakobina Magnúsdóttir, gjald- keri, ólöf V. Jónasdóttir, Sigriö- ur Pálmadóttir og Þórarinn Þorbjarnarson, meðstjórnend- ur. I frétt frá félaginu um aðal- fundinn segir m.a.: „Félagssvæði Einingar tekur yfir Akureyrarkaupstað, Dal- vikurkaupstað, Ólafsfjarðar- kaupstað, Eyjafjarðarsýslu og Svalbarðsstrandarhrepp i Suðu- Þingeyjarsýslu. Félagatala nú eftir aðalfund er 1859, og mun Eining vera langfjölmennasta verkalýðsfélagið utan Reykja- vikur. Félagatalan skiptist þannig eftir kynjum, að konur eru 1082 en karlar 777. Aðeins fá ár eru síðan karlar voru til muna fleiri en konur, en hlut- fallstala kvenna hefur stórauk- ist með hverju ári að undan- fömu. Það kom fram i skýrslu for- manns á aðalfundinum, að helsta nýbreytni i starfi félags- ins á liðnu ári var sú, að i fyrsta skipti I sögu félagsins efndi það til orlofsferöar fyrir félagsfólk, og var sú ferð að nokkru greidd af orlofssjóði félagsins, en hann greiðir einnig verulegan hluta af rekstrarkostnaði þriggja or- lofshúsa, sem félagið á að Illugastöðum i Fnjóskadal. Rekstrarafgangur hjá sjóðum félagsins varð á árinu 3.7 millj. kr., og bókfærðar eignir I árslok kr. 18.4 milljónir. A árinu nutu alls 101 félagsmaður dagpen- inga úr sjúkrasjóði félagsins, samtals kr. 2.7 millj. Þá voru greiddir 27 fæðingarstyrkir og Framhald á bls. 7. SVIPMYNDIR FRÁ SO VÉTRÍKJUNUM - SJÁ ÞRIÐJU SÍÐU

x

Ný þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.