Ný þjóðmál - 22.10.1976, Blaðsíða 1

Ný þjóðmál - 22.10.1976, Blaðsíða 1
MÁLGAGN JAFNAÐAR- OG SAMVINNUMANNA • Samþykkt framkvæmdastjórnar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna: Aflfsir landsfundinum og leggur niður störf Á fundi framkvæmda stjórnar Samtaka frjáls lyndra og vinstrimanna þriðjudaginn 12. október s.l. var samþykkl einróma ályktun, þar sem áður auglýstum lands fundi SFV var aflýst og því lýst yfir, að f ramkvæmdastjórnin legði niður störf. er svo- Ályktunin hljóðandi: „Undanfarið hafa farið fram innan Samtaka frjálslyndra og vinstri manna umræður um framtið islenskrar vinstri hreyfingar. Meginkjarni umræðnanna hefur falist i athugun á þeim leiðum sem færastar þykja til að vinna að upphaflegu markmiði Samtakanna, þ.e. að stuðla að samein- ingu vinstri aflanna í landinu. Framkvæmda- stjórn Samtakanna hefur verið aðalvettvangur þessara umræðna og hef- ur hún á fundi sinum 12. október 1976 komist einróma að eftirfarandi niðurstöðum: 1. Þótt framkvæmda- stjórn sé einhuga um mikilvægi hins upphaf- lega markmiðs, ríkja skiptar skoðanir um leiðir til að vinna að þvi og ólíkt mat á hverjar séu ákjós- anlegastar. 2. Þessi þróun hefur það í för með sér að farsælast þykir, eins og nú er komið, að hver ein- ing Samtakanna — þing- flokkur, kjördæma- sambönd, flokksfélög og einstaklingar — vinni að framgangi þessa mark- miðs í næstu framtíð á sinum starfsvettvangi og í samræmi við það sem hver aðili telur ákjósan- legast. 3. í samræmi við fyrr- greindar niðurstöður tel- ur framkvæmdastjórnin rétt að fela þingflokki meðferð þeirra sam- eiginlegu verkefna, sem sinna þarf, og visar sér- málum til meðferðar hinna einstöku skipulags eininga. 4. Til að auðvelda öllum hlutaðeigandi aðilum að lögun að nýjum aðstæð um leggur framkvæmda stjórnin niður störf oc aflýsir áður auglýsturr landsfundi." SJÁ GREINAR UM MÁLID Á BLS. 2, 3. 4, 5. 7 OG Á BAKSÍÐU Aðalfundur SFV í Reykjavík: Einar Hannesson endurkjörinn Aðalfundur SFV-félagsins f Reykjavik var haldinn 4. október s.l. i félagsheimili prentara. Stjórn Samtakanna i Reykjavik er nú þannig skipuð: Formaður Einar Hannesson, fulltrúi, varaformaður Eirikur M. Valsson, skýrsluvélamaður, ritari Asa Kristin Jóhannsdótt- ir, skrifstofumaður, gjaldkeri Þorleifur G. Sigurðsson, pipu- lagningamaður. M eðs t j ór n e n d ur : Alfreð Gislason, læknir, Guðmundur Bergsson, sjómaður, Margrét Auðunsdóttir, starfsstúlka, Arni Markússon, verkstjóri og Steinunn Finnbogadóttir, vara- borgarfulltrúi. Varastjórn: Gunnar Gunnarsson, framkvæmda- stjóri, Jón Sigurðsson, rafvirki, Helgi Brynjólfsson, vélstjóri, Rannveig Jónsdóttir, kennari, Einar Þorsteinn Asgeirsson, arkitekt, Ægir Hafberg, viðskiptafræðingur og Sólveig Kjartansdóttir, verslunar- maður. Endurskoðendur: Björn Jónsson, skrifstofumaður og Höskuldur Egilsson, verslunarmaður. Eftirfarandi tillaga var samþykkt samhljóða á aðal- fundinum: „Vegna þeirra viðhorfa, sem upp hafa komið i sambandi við Framhald á bls 5. Vinningsnúmer í síðasta flokknum Happdrætti Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna 1976 er nú lokið/ og fara vinningsnúmerin í fjórða flokki/ sem verið hafa innsigluð/ hér á eftir: 1. vinningur nr. 130, 2. vinningur nr. 253, 3. vinningur nr. 240,4. vinningur nr. 391,5. vinningur nr. 252. Ný Þjóðmál færa þeim f jölmörgu, sem unnið hafa að dugnaði að happdrættinu, bestu þakkir fyrir vel unnið og árangursríkt starf. Karvel Pálmason um kjör fjárveitinganefndar: Alþýðubandalagið rauf samkomulagið frá 1974 Við kosningu i fjárveitinganefnd Alþingis s.l. þriðjudag gerðust þau tíðindi, að fulltrúa Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, Karvel Pálmasyni, var bolað úr nefndinni. Alþýðubandalagið, sem átt hefur samstarf við samtökin um kosningu i fjárveitinga- nefnd síðustu tvö árin, sleit þvi samstarfi og stillti upp eitt sér. Þar með var Ijóst, að Samtökin gætu ekki komið að manni i nefndina, þótt einmitt hefði verið fjölgað i fjárveitinganefnd árið 1974 til þess að tryggja öllum þingflokkum fulltrúa í nefndinni. Aður en gengið var til kjörs fjárveitinganefndar s.l. þriðjudag kvaddi Karvel Pálmason sér hljóðs utan dagskrár og gerði þar að umtalsefni væntanlegt kjör. Rakti hann gang mála haustið 1974, þegar fjölgað var i fjárveit- inganefnd til þess að allir þing- flokkar gætu átt þar fulltrúa. Nú væri Alþýðubandalagið hins veg- ar að rjúfa það samkomulag, sem þá hefði verið gert, og sem tryggði fulltrúum allra þing- flokka setu i fjárveitinganefnd. Bæði árið 1974 og 1975 hefðu Al- þýðubandalagið og Samtökin stillt upp sameiginlegum lista, og það samkomulag hefði átt að gilda út kjörtimabilið. Nú hygðist Alþýðubandalagið hins vegar beita þingstyrk sinum til að fá tvo menn kjörna og útiloka þannig Samtökin frá fjárveitinganefnd. 1 framhaldi af þessu varpaði Karvel fram fyrirspurnum til for- sætisráðherra um það samkomu- lag, sem gert var 1974. 1 ræðu forsætisráðherra kom fram, að hann teldi forsendur samkomulagsins frá 1974 enn fyr- ir hendi. Það væri hins vegar á valdi sijórnarandstöðuflokkanna sjálfra hvort þeir fengju allir full- trúa i fjárveitinganefnd, eins og verið hefði, eða ekki. Stjórnar- flokkarnir myndu ekki hafa af- skipti af bvi. Eftir verulegar umræður var loks gengið til kjörs fjárveitinga- nefndar en Karvel Pálmason lýsti þvi yfir fyrir hönd þingflokks Samtakanna. að hann mvndi ekki taka þátt i nefndarkjörinu eins og málum væri nú komið. Þær breytingar urðu á skipan manna i fjárveitir.ganefnd að Helgi Seljan var kjörinn i stað Karvels. Þá skipti Alþýðuflokk- urinn um fulltrúa. Var það Sig- hvatur Björgvinsson. sem kom i stað Jóns Armanns Héðinssonar. Starfsliði sagt upp Vcgna hins erfiða fjárhags- ástands Samtakanna var ákveðið í lok september að segja starfsfólki, þ.e. Eliasi Snæland Jónssyni, ritstjóra, og Sigurlaugu Guðmundsdóttur, skrifstofustúlku, upp störfum frá 1. október s.l. Jafnframt færði framkvæmdastjórnin þcim bcstu þakkir fyrir frábær störf. Eins og fram kom i siðasta blaði þurftu Samtökin að flytja úr húsnæðinu að Ingólfsstræti 1S um siðustu mánaðarmót. Skrif- stoía þingflokks Samtakanna er hi’.is vegar áfram að Yonar- slra'ti S.

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.