Ný þjóðmál - 22.10.1976, Síða 1
MÁLGAGN JAFNAÐAR- OG SAMVINNUMANNA •
Samþykkt framkvæmdastjórnar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna:
Aflfsir landsfundinum
og leggur niður störf
Á fundi framkvæmda
stjórnar Samtaka frjáls
lyndra og vinstrimanna
þriðjudaginn 12. október
s.l. var samþykkl
einróma ályktun, þar sem
áður auglýstum lands
fundi SFV var aflýst og
því lýst yfir, að
f ramkvæmdastjórnin
legði niður störf.
er
svo-
Ályktunin
hljóðandi:
„Undanfarið hafa farið
fram innan Samtaka
frjálslyndra og vinstri
manna umræður um
framtið islenskrar vinstri
hreyfingar. Meginkjarni
umræðnanna hefur falist
i athugun á þeim leiðum
sem færastar þykja til að
vinna að upphaflegu
markmiði Samtakanna,
þ.e. að stuðla að samein-
ingu vinstri aflanna í
landinu. Framkvæmda-
stjórn Samtakanna hefur
verið aðalvettvangur
þessara umræðna og hef-
ur hún á fundi sinum 12.
október 1976 komist
einróma að eftirfarandi
niðurstöðum:
1. Þótt framkvæmda-
stjórn sé einhuga um
mikilvægi hins upphaf-
lega markmiðs, ríkja
skiptar skoðanir um leiðir
til að vinna að þvi og ólíkt
mat á hverjar séu ákjós-
anlegastar.
2. Þessi þróun hefur
það í för með sér að
farsælast þykir, eins og
nú er komið, að hver ein-
ing Samtakanna — þing-
flokkur, kjördæma-
sambönd, flokksfélög og
einstaklingar — vinni að
framgangi þessa mark-
miðs í næstu framtíð á
sinum starfsvettvangi og
í samræmi við það sem
hver aðili telur ákjósan-
legast.
3. í samræmi við fyrr-
greindar niðurstöður tel-
ur framkvæmdastjórnin
rétt að fela þingflokki
meðferð þeirra sam-
eiginlegu verkefna, sem
sinna þarf, og visar sér-
málum til meðferðar
hinna einstöku skipulags
eininga.
4. Til að auðvelda öllum
hlutaðeigandi aðilum að
lögun að nýjum aðstæð
um leggur framkvæmda
stjórnin niður störf oc
aflýsir áður auglýsturr
landsfundi."
SJÁ GREINAR UM MÁLID Á BLS. 2, 3. 4, 5. 7 OG Á BAKSÍÐU
Aðalfundur SFV í Reykjavík:
Einar Hannesson
endurkjörinn
Aðalfundur SFV-félagsins f
Reykjavik var haldinn 4.
október s.l. i félagsheimili
prentara.
Stjórn Samtakanna i
Reykjavik er nú þannig skipuð:
Formaður Einar Hannesson,
fulltrúi, varaformaður Eirikur
M. Valsson, skýrsluvélamaður,
ritari Asa Kristin Jóhannsdótt-
ir, skrifstofumaður, gjaldkeri
Þorleifur G. Sigurðsson, pipu-
lagningamaður.
M eðs t j ór n e n d ur : Alfreð
Gislason, læknir, Guðmundur
Bergsson, sjómaður, Margrét
Auðunsdóttir, starfsstúlka, Arni
Markússon, verkstjóri og
Steinunn Finnbogadóttir, vara-
borgarfulltrúi.
Varastjórn: Gunnar
Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri, Jón Sigurðsson, rafvirki,
Helgi Brynjólfsson, vélstjóri,
Rannveig Jónsdóttir, kennari,
Einar Þorsteinn Asgeirsson,
arkitekt, Ægir Hafberg,
viðskiptafræðingur og Sólveig
Kjartansdóttir, verslunar-
maður.
Endurskoðendur: Björn
Jónsson, skrifstofumaður og
Höskuldur Egilsson,
verslunarmaður.
Eftirfarandi tillaga var
samþykkt samhljóða á aðal-
fundinum:
„Vegna þeirra viðhorfa, sem
upp hafa komið i sambandi við
Framhald á bls 5.
Vinningsnúmer í
síðasta flokknum
Happdrætti Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna
1976 er nú lokið/ og fara vinningsnúmerin í fjórða
flokki/ sem verið hafa innsigluð/ hér á eftir: 1.
vinningur nr. 130, 2. vinningur nr. 253, 3. vinningur nr.
240,4. vinningur nr. 391,5. vinningur nr. 252.
Ný Þjóðmál færa þeim f jölmörgu, sem unnið hafa
að dugnaði að happdrættinu, bestu þakkir fyrir vel
unnið og árangursríkt starf.
Karvel Pálmason um kjör fjárveitinganefndar:
Alþýðubandalagið rauf
samkomulagið frá 1974
Við kosningu i fjárveitinganefnd Alþingis s.l.
þriðjudag gerðust þau tíðindi, að fulltrúa Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna, Karvel Pálmasyni, var
bolað úr nefndinni. Alþýðubandalagið, sem átt hefur
samstarf við samtökin um kosningu i fjárveitinga-
nefnd síðustu tvö árin, sleit þvi samstarfi og stillti upp
eitt sér. Þar með var Ijóst, að Samtökin gætu ekki
komið að manni i nefndina, þótt einmitt hefði verið
fjölgað i fjárveitinganefnd árið 1974 til þess að
tryggja öllum þingflokkum fulltrúa í nefndinni.
Aður en gengið var til kjörs
fjárveitinganefndar s.l. þriðjudag
kvaddi Karvel Pálmason sér
hljóðs utan dagskrár og gerði þar
að umtalsefni væntanlegt kjör.
Rakti hann gang mála haustið
1974, þegar fjölgað var i fjárveit-
inganefnd til þess að allir þing-
flokkar gætu átt þar fulltrúa. Nú
væri Alþýðubandalagið hins veg-
ar að rjúfa það samkomulag, sem
þá hefði verið gert, og sem
tryggði fulltrúum allra þing-
flokka setu i fjárveitinganefnd.
Bæði árið 1974 og 1975 hefðu Al-
þýðubandalagið og Samtökin
stillt upp sameiginlegum lista, og
það samkomulag hefði átt að
gilda út kjörtimabilið. Nú hygðist
Alþýðubandalagið hins vegar
beita þingstyrk sinum til að fá tvo
menn kjörna og útiloka þannig
Samtökin frá fjárveitinganefnd.
1 framhaldi af þessu varpaði
Karvel fram fyrirspurnum til for-
sætisráðherra um það samkomu-
lag, sem gert var 1974.
1 ræðu forsætisráðherra kom
fram, að hann teldi forsendur
samkomulagsins frá 1974 enn fyr-
ir hendi. Það væri hins vegar á
valdi sijórnarandstöðuflokkanna
sjálfra hvort þeir fengju allir full-
trúa i fjárveitinganefnd, eins og
verið hefði, eða ekki. Stjórnar-
flokkarnir myndu ekki hafa af-
skipti af bvi.
Eftir verulegar umræður var
loks gengið til kjörs fjárveitinga-
nefndar en Karvel Pálmason lýsti
þvi yfir fyrir hönd þingflokks
Samtakanna. að hann mvndi ekki
taka þátt i nefndarkjörinu eins og
málum væri nú komið.
Þær breytingar urðu á skipan
manna i fjárveitir.ganefnd að
Helgi Seljan var kjörinn i stað
Karvels. Þá skipti Alþýðuflokk-
urinn um fulltrúa. Var það Sig-
hvatur Björgvinsson. sem kom i
stað Jóns Armanns Héðinssonar.
Starfsliði sagt upp
Vcgna hins erfiða fjárhags-
ástands Samtakanna var
ákveðið í lok september að
segja starfsfólki, þ.e. Eliasi
Snæland Jónssyni, ritstjóra, og
Sigurlaugu Guðmundsdóttur,
skrifstofustúlku, upp störfum
frá 1. október s.l. Jafnframt
færði framkvæmdastjórnin
þcim bcstu þakkir fyrir frábær
störf.
Eins og fram kom i siðasta
blaði þurftu Samtökin að flytja
úr húsnæðinu að Ingólfsstræti 1S
um siðustu mánaðarmót. Skrif-
stoía þingflokks Samtakanna er
hi’.is vegar áfram að Yonar-
slra'ti S.