Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.03.1935, Page 6
LJÓS OG SANNLEIKUR
1 i-
Nóttina eftir kom tunglið loks í ljós, en pað var
eins og eldhnöttur á himninum, og spádómurinn um
tunglmyrkvann rættist pá.
Álíka ægilegt var náttúrufyrirbrigði pað, sem var
uppfylling á peim spádómsorðum Jesú, að „stjörnurnar
myndu hrapa af himni“. Dað var stjörnuhrapið mikla pann
13. nóv. 1833, hið mikilfenglegasti stjörnuhrap, sem nokk-
urn tíma hefur átt sér stað. Prófessor Olmestead kemst
pannig að orði: „Deir sem voru svo hepnir að sjá hið
mikla stjörnuhrap um morguninn pann 13. nóv. 1833,
hafa pá séð hina mestu dýrðarsjón himneskra flugelda,
sem nokkuru sinni hefur sést frá sköpun heims“, svo
gefur hann á pessu mjög skemtilega lýsingu, sem hér
er ekki rúm fyrir. Stjörnurnar féllu eins pétt og snjór á
vetrardegi, nóttin var björt eins og dagur, allur himininn
fyltist glóandi líkömum sem féllu bæði pétt og hratt; pað
var bæði ógurleg og háleit sjón. — Sllkt hafa heimsbúar
hvorki fyr né sfðar séð. Dað var hinn síðasti mikli fyrir-
rennari hins mikla dags Drottins. Op. 6, 13—17.
Lúkas postuli bætir við frásögnina um spádóma
Jesú, eftirfarandi orðum, sem Matteus nefnir ekki: „Og
verða munu voðafyrirburðir og tákn mikil af himni. . . .
Og tákn munu verða á sólu, tungli og stjörnum og á
jörðunni angist meðal pjóðanna i ráðaleysi við dunur
hafs og brimgný; og menn munu gefa upp öndina af
ó'tta og kvíða fyrir pvf, er koma mun yfir heimsbygðina,
pvf að kraftar himnanna munu bifast“. Lúk. 21, 1 1.25.26.
Hversu margir eru ekki peir „voðafyrirburðir*, sem
vér lesum um daglega! Ægilegir skýstrokkar og flóð-
bylgjur geysa yfir lönd og höf og hafa f för með sér
dauða og eyðileggingu; eldurinn gerir fagrar borgir og
bygðir að ösku, sprengingar og námuhrun verða fjölda
manna að bana; „bylgjur hafsins munu pjóta“ — pað
er ekki einungis hið raunverulega haf, sem ókyrrist nú
meir en verið hefur nokkuru sinni áður, heldur rísa og
öldurnar hátt á hinu mikla pjóðahafi; meðal pjóðanna er