Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 2

Kvennasmiðjan - 25.10.1985, Side 2
-----------Kvermasmiöjan----- Uppskorið stórkost legustu atburðina í lífinu í starfi — Elín Pálmadóttir, blaðamaður Sú sem hér lítur til baka á meira en 30 ára blaðamennskuferil er handhafi blaðamanna- passa nr. 7. Táknar að aðeins sex aðrir einstaklingar á Islandi hafa lengur haft blaða- mennsku að aðalstarfi. Þar af ein kona, Mar- grét Indriðadóttir, fréttastjóri ríkisútvarps- ins, sem hóf raunar störf á Morgunblaðinu fyrir mína tíð. Ýmsar konur höföu unnið á rit- stjómum blaða áður. I reynd var reglan sú að konur gengu ekki í almenna fréttaöflun en var gjaman beitt í þýðingar, kvennasíður, dagbók og þess háttar inniverk, auk þess sem sjálf- sagt þótti að þær gripu í að vélrita fyrir rit- stjóra og aðra. Segja má að ég hafi dottið í blaðamennsk- una er ég kom heim frá París — um stundar- sakir — á árinu 1952 og hentaði vegna veik- inda í fjölskyldunni ekki að vinna stífan vinnutíma frá kl. níu til fimm. Á Vikuna vant- aði manneskju í þýðingar og mér hentaði vel aö geta haft sveigjanlegan vinnutíma. En var auðvitað fyrr en varði komin þar í þau störf sem leysa þurfti. Ekki löngu seinna tók Gísli J. Ástþórsson við ritstjóminni. Hann var fag- maður í blaðamennsku, með háskólapróf í fjölmiðlun frá Bandaríkjunum og af honum lærði ég fleira hagnýtt í þeirri grein en af nokkrum öðrum síðar. Hann kenndi mér að „brjóta um” blaðið, skrifa í afmarkað pláss, semja „lídi” með kjama málsins fyrst, búa til að telja út fyrirsagnir o.s.frv. Og það var hans hugmynd að ég gengi í Blaðamannafélag Is- lands, enda voru vikublöðin Vikan og Fálkinn á þeim tíma boðuð á blaðamannafundi og til þátttöku í stóratburðum ásamt útvarpi og dagblöðum. En við vorum bara tvö á Vikunni. Eg og Gísli sáum um allt, frágang sem annað. Þama var því 50% blaðamanna kvenkyns. Gísli stjómaði auðvitað. Sumarið 1958 gerði ritstjóri Morgunblaðsins Sigurður Bjamason boð fyrir mig. Kvað blaðið vanta vanan blaðamann (sjálfri hafði mér ekki dottið í hug að gera þetta aö ævi- starfi, enda á útleiö). Hvort ég vildi koma yfir á Morgunblaðið. Ég vildi það, þó með tveimur skilyrðum: 1) að ég lækkaði a.m.k. ekki í kaupi viö skiptin, og 2) að ég fengi að ganga í fréttastörfin alveg eins og karlmennirnir á staönum — ekki í þýðingar, kvennasíður og Velvakanda. Var nú búin að fá nóg af slíku og þóttist sjá hvernig trippin væru rekin á rit- stjórnum blaðanna. Sigurður gekk að því síðara. Síðan var kallað á framkvæmdastjóra blaösins Sigfús Jónsson, sem féllst á að greiða mér sömu laun og ég hafði fyrir, ekki byrjendalaun, enda dempt á fréttavakt á stundinni. Gaman er að geta sagt frá því aö þessi vinnuveitandi, Sigfús Jónsson, sem í framkomu var hátíðleikinn uppmálaður, þér- aði alla og var talinn af gamla skólanum, hann sá upp frá því meðan hans naut við og án þess að nokkurn tíma væri um það talað um að ég hefði ekki lægri laun í raun en strákarn- ir. Ég var t.d. ekki búin að vera lengi á staðn- um þegar hann stöðvaði mig á hraðahlaupun- um niðri í prentsmiðju og sagði rétt sí svona: „Elín, þér eruð á lægri launum en sumir strákarnir og mér sýnist þér ekki vinna minna nema síður sé. Þér hækkið um næstu mánaðamót.” Þessu hélt hann áfram þegj- andi og hljóðalaust. Og þegar um áratug síðar var boðið í tvo vana blaðamenn með yfir- borgunum hækkaði hann mín laun umyrða- laust. Fróðlegt er að rifja þetta upp þegar talað er um að hugarfarsbreyting hafi orðið varðandi jöfn laun beggja kynja á sl. aldar- fjórðungi. Mér sýnist að þessi virðulegi „gamaldags” stjórnandi hafi haft innbyggð „nútímalegri” viðhorf til þeirra mála en obb- inn af ungum stjórnendum nú. Sigfús var ekki með slíkt á vörunum, en hann framkvæmdi það af því að honum fannst það sjálfsagt rétt- lætismál. Hann væri sennilega enn á undan sinni samtíð. Á ýmsu gekk vitanlega um verkefnin framan af, ekki af ásetningi, heldur bara í önn Blaðamenn í bás 15 med 1. tölublaðið afl Baldursdóttir, Magdalena Schram og bon gærdagsins. Kvennasmiðjan sem gefin er ingin stendur gfir. dagsins og óvana. Maður þurfti því að halda vel á lofti loforðinu góða um að maður væri ráðinn í almennar fréttir. Gekk kannski full langt í því stundum að sýna að maður tæki ekki síður en karlpeningurinn svaðilfarir og erfið verkefni ef því var að skipta. En þess þurfti ekki lengi með. Þegar ísinn var brotinn þótti sjálfsagt að blaðakonur gengju í sömu störf og karlarnir. Þessi hefðbundna verka- skipting hafði bara verið kækur. Enda komu til blaðakonur sem gengu að því sem sjálf- sögðum hlut. Þó man ég eftir tilvikum þar sem afsökun var borin fram um að eitthvað væri frekar karlmannsverk á fundi blaða- manna og ritstjóra, og sú uppskar bara hlátur og athugasemd um að á þessu blaði væri ekki farið í manngreinarálit þegar störfum væri skipt. Held kannski að því hafi verið haldið fastar fram þá en er nú — af báðum aðilum. AÐ ^ El R EÐAEKKI V| El Ri \

x

Kvennasmiðjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennasmiðjan
https://timarit.is/publication/568

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.