Dagur - 21.07.1998, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGVR 21. JÚLÍ 1998 - 3
AKUREYRI NORÐURLAND
Árangursrík söngferð til vinabæja Akureyrar
LEGSTEINAR Fáið myndalista hjá Útfararþjónustu Kirkjugarða Akureyrar MOSAIK Graníi Blágiýli < ikhbrú ÍÁpmh
I Höfðakapella Sími 461-4060 |
íslendingar eiga að
standa vörð um ís-
lensku sönglögin, þau
eru iniklar gersemar.
Tónlistakennarinn, fiðluleikar-
inn og söngvarinn Michael Jón
Clarke hefur verið bæjarlista-
maður Akureyrar í hartnær ár, og
skilar hann þeim virðingartitli á
næstunni. Hann hélt eins konar
kveðjutónleika fyrir bæjarbúa
sem bæjarlistamaður nýverið og
lék Richard Simm undir. Dómur
um þá tónleika var á þá Ieið að
þar hefði mátt heyra lofsverða
kynningu á íslenska sönglaginu.
Michael Jón hefur búið á Akur-
eyri í um aldarfjórðung og segist
vera meiri Islendingur en Breti,
þar sem hann er uppalinn, og
hér muni hann væntanlega eyða
ævikvöldinu.
„Eg fór fyrir skömmu síðan í
tónleikaferð til Norðurlandanna
og Grænlands með undirleikar-
anum Richard Simm með þver-
skurð af því sem ég taldi vera
með betri íslenskum sönglögum.
Við byrjuðum með þjóðlagi og
enduðum á nokkrum nútímalög-
um. Við ætluðum að fara til allra
vinabæja Akureyrar á Norður-
löndum en fengum aldrei nein
svör frá tveimur þeirra sem hægt
var að byggja á. Við fórum fyrst
til Vasterás í Svíþjóð, þar sem við
fengum mjög góðar móttökur,
kynntumst öllum helstu menn-
ingarforkólfum bæjarins, og
héldum tónleika í mjög
skemmtilegum sal í kastala. Það-
an lá leiðin til Randers á Jótlandi
en þar var ekki haft eins mikið
fyrir okkur og því miður fengum
við ekki að halda tónleika í tón-
leikasal bæjarins heldur í flottri
kirkju sem passaði frekar illa fyr-
ir okkar efnisskrá," segir Mic-
hael Jón Clarke.
Grænland skemnitilegast
„Það má segja að skemmtilegasti
hluti ferðarinnar hafi verið ferð-
in til Grænlands og við héldum
tónleika í Narssaq, en þar var
enginn tónleikasalur og héldum
við því tónleikana á bókasafni.
Það rúmaði ekki marga áhorf-
endur, en þeir komust fyrir, og
Frá Akureyrarmaraþoni
sönglögin, eiga íslendingar að
standa vörð.“
Árangursríkt ár sem bæjar-
listamaður
- Þegar þú lítnr til baka þetta ár
sem þú hefnr verið bæjarlista-
maður, finnst þér að þetta hafi
verið bæði ánægjulegur og árang-
ursríkur tími?
„Já, og þó ég segi sjálfur frá,
nokkuð árangursríkur, ekki síst
ferðin til vinabæjanna. Ferðin
hefði aldrei verið möguleg nema
með því að nota styrkinn sem ég
fékk sem bæjarlistamaður. Ég
hef reynt að vera til taks á þessu
ári fyrir bæinn og ekki tekið neitt
fyrir það enda hefur mér fundist
það hafa vera siðferðisleg skylda
mín. Eg stjórnaði t.d. flutningi
kórs Tónlistaskólans á Messíasi
um jólin og tók ekkert fyrir það
auk þess sem ég söng sjálfur. Á
árinu var stofnaður sönghópur
sem ég geri mér vonir um að
verði vinsæll. Hann heitir „Voces
Borealis", sem útleggst Norður-
Ijósaraddirnar, og samanstendur
af mjög vönu söngfólki. Hann
hélt debuttónleika í maímánuði.
Þetta er hópur sem getur verið
með vandað skemmtiprógramm
og upp í það að frumflytja nú-
tímatónlist.
Ég sá hvernig búið er í tón-
listahúsamálum í Vásterás og ég
lærði mikið af Svíunum hvernig
staðið var að tónleikum. Vonandi
get ég nýtt þá þekkingu hér á Ak-
ureyri. Það er mjög gott framlag
frá Akureyrarbæ til menningar-
lífsins að útnefna árlega sérstak-
an bæjarlistamann. Ég fullyrði
að á Akureyri býr margt góðra
listamanna, bærinn er mjög
Efst við Östervold í Randers, á Nordens Plads, eru þessir steinar frá öllum
vinabæjum Randers á Norðurlöndum sem tákn um norrænan samvinnu.
Steinarnir voru fluttir til Randers frá viðkomandi löndum og voru þeir af-
hjúpaðir við hátíðlega athöfn 5. október 1996. Steininn frá Akureyri er
lengst til vinstri. mynd: gg
það var mjög vel staðið að öllu
saman hjá Grænlendingunum.
Þarna var þó ekkert þoðlegt
píanó og ég gleymi ekki svipnum
á Richard þegar hann sá hljóð-
færið sem hann átti að spila á.
En það er ekki hægt að búast við
öllu í svona litlum bæjum.
Við skrifðuðum til allra vina-
bæjanna, en fengum aldrei svör
frá Lahti í Finnlandi og Álesund
í Noregi, en kannski hafi Norð-
mennirnir verið uppteknir af af-
mælishátíð bæjarins og Finnarn-
ir af íþróttum. Gæði menningar-
mála þessara bæja ráðast af því
hveijir eru þar í forsvari. Það er
greinilega mikill áhugi fyrir
menningu í Vasterás, og þar
voru móttökurnar Iíka bestar og
mestur áhuginn fyrir komu okk-
ar. Ég veitti því líka athygli að
stór fyrirtæki og verksmiðjur
taka virkan þátt í menningarlíf-
inu þar, og t.d. voru tónleikarnir
okkar styrktir af þessum fyrir-
tækjum. I Randers vantaði áhug-
ann, enda mætti enginn af for-
svarsmönnum menningarlífins á
tónleikana.“
Norræn samvinna
- Er það mat þitt eftir þessa ferð
að norræn samvinna sé meira í
orði en á borði á hátíðarstundu?
“Já því miður, og afskaplega
mikið.“
- Vakti það ekki athygli að frá
Akureyri kæmu tveir tónlista-
menn, kynntir sem Islendingar,
en með bresk nöfn?
„Ég er ekki Breti lengur og ég
segi stundum í tónlistinni, og
finnst það líka; að ég sé íslensk-
ari en margur Islendingurinn. Sá
sem tók á móti okkur í Græn-
landi var Dani. Einhverjir
spurðu hvort ég hefði átt útlend-
an föður, eða eitthvað í þá átt, en
þetta vekur sáralitla athygli er-
lendis þar sem svo mörg þjóðar-
brot búa.
Mér er t.d. ekki sama hvernig
farið er með íslensk sönglög og
þau hálfeyðilögð í söng af vest-
rænum poppáhrifum. Það hefur
verið í tísku undanfarin ár að
taka upp klassísk sönglög og
syngja þau með allt að því amer-
ískum hreim. Það er jafn alvar-
legt og að fara rangt með ljóð
eftir Jónas Hallgrímsson. Um
þessar gersemar, íslensku
Leíkir norðlenskra
liða vikuna 21. - 27. júlí
- knattspyma
Þriðjudagur 21. júlí - 3. deild/B Blönduósvöllur Hvöt:Nökkvi
Þriðjudagur 21. júlí - 3. deild/B Grenivíkurvöllur Magni:Neisti H
Miðvikud. 22. júlí - 1. deild kv./B Blönduósvöllur Hvöt:TindastólI
Miðvikud. 22. júlí 1. deild kv./B Dalvíkurvöllur Leiftur/Dalvík:ÍBA
Fimmtudagur 23. júlí - 1. deild Akureyrarvöllur Þór:KA
Fimmtudagur 23. júlí - 2. deild Sandgerðisvöllur Reynir S.:Völsungur
Föstudagur 24. júlí - 2. deild Dalvíkurvöllur DaIvík:Víðir
Föstudagur 24. júlí - 2. deild Sigluljarðarvöllur KS:Fjölnir
Föstudagur 24. júlí - 3. deild/B Blönduósvöllur Nökkvi:Magni
Föstudagur 24. júlí - 3. deild/B Hofsósvöllur Neisti H:HSÞ-b
Laugardagur 25. júlí - 2. deild Selfossvöllur Selfoss:Tindastóll
Mánudagur 27. júlí - 1. deild kvenna/B Akureyrarvöllur IBA:Hvöt
Mánudagur 27. júlí -1. deild kvenna/B Sauðárkróksvöllur Tindastóll:
Leiftur/Dalvík