Dagur - 21.07.1998, Qupperneq 4

Dagur - 21.07.1998, Qupperneq 4
4 - ÞRIBJUDAGUR 21. JÚLÍ 1998 AKUREYRI NORÐURLAND Breskir hermemi af- hjúpa mtnnisvarða Mmnisvarði iini veru breskra hermanna í Eyjafirði á stríðsánm- um settur upp að nýju á Molahaugnahálsi. Minnisvarði um veru breskra hermanna í Eyjafjrði á stríðsár- unum var afhjúpaður á Mold- haugnahálsi síðastliðinn föstu- dag. Hér er um að ræða skot- hylki á stöpli, sem þeir A. D. Andrews og L. Shannon afhjúp- uðu, en þeir voru í herliði Breta í Eyjafirði á árunum 1940 til 1942. Hreppsnefnd Glæsibæjar- hrepps og Sögufélag Eyjaíjarðar höfðu samvinnu um að koma þessum varða upp að nýju, en á þessum stað stóð minnisvarðinn frá því skömmu eftir stríð, allt þar til fyrir tuttugu árum. A minnisvarðanum eru skráð nöfn alls 26 foringja í hernum sem voru í Eyjafirði. Lengi var trú Eyfirðinga sú að skothylkið á Moldhaugnahálsi væri til minn- ingar um hermenn sem létust þar í bílslysi árið 1942. En nú hefur hinsvegar annað komið á daginn. Bresku hermennirnir lifðu allir af vist sína á Islandi og kúlan var sett upp til að minnast veru þeirra á þessum slóðum, en ekki til að minnast þeirra sem slíkra. Þeir A. D. Andrews og L. Shannon komu hingað til lands meðal annars til að rilja upp vist sína á Islandi. Sem áður sagði af- hjúpðu þeir minnsvarðann og í samkomu í Þelamerkurskóla þar á eftir riljuðu þeir síðan upp sitt- hvað um Islandsdvöl sína fyrir bráðum að verða sextíu árum. -SBS. Þeir A. D. Andrews og L. Shannon, Grasfijókom- um fjölgar ef Mtnar í veðri Lítið mælist af frjókornum í gildru Náttúrufræðistofnunar á Akureyri. Dagana 6. til 11. júli voru það fyrst og fremst frjókorn gras- og rósaættar. Haldist norðanáttin um sinn má búast við svipuðu ástandi áfram. Strax og hlýnar mun grasfrjókornum hins vegar Ijölga til muna. Fjókornin sem fundust í gildrunni voru gras, stör, rósa- ætt, fura og greni, brjóstagras, túnsúra og af sveipjurtarætt. GG Söngvökur í Minj asafiiskirkju SKOÐANIR BRYNJÓLFS Hvar eru sjóðvélamar? í kvöld, 21. júlí klukkan 21.00, verður söngvaka í Minjasafns- kirkjunni á Akureyri. A söngvöku eru flutt sýnishorn úr íslenskri tónlistarsögu, svo sem rímur, tví- undasöngur, sálmar og eldri og yngri sönglög. Flytjendur í kvöld eru Kristjana Arngrímsdóttir og Hjörleifur Hjartarson, meðlimir í Tjarnarkvartettinum. Aðgangur kostar 700 krónur. Söngvökur eru haldnar í Minjasafnskirkjunni öll þriðju- dags- og fimmtudagskvöld í júlí- Og ágústmánuði. GG Ég átti erindi í göngugötuna og þar var mikill mannljöldi vegna sólarbirtu í götunni. Mikið var um söluborð og viðskipti nokkur. A leið minni þarna um hitti ég mann sem rekur verslun og hann hafði uppi við mig þá spurningu sem er yfirskriftin yfír þessum pistli. Hann benti mér á að þessi lögbrot blöstu við sýslu- manninum úr glugganum á skrifstofu hans. Hann taldi líka að starfsmönnum virðisauka- skattsdeildar skattstofunnar ætti að vera þetta Ijóst, þar sem þeir fara þarna um daglega. Undirrit- aður hugleiddi ferð sem hann fór á virðisaukaskattsdeild skatt- stofunnar þar sem fulltrúi þar hafnaði réttum og sanngjörnum nótum af því að afgreiðslufólki hafði láðst að setja strimil úr sjóðvél við nótuna. Hann hafði að vísu lög og reglugerð að styðj- ast við. Ekki er frítt við þá tilfinningu hjá undirrituðum að á honum hafi verið brotin jafnræðisreglan þegar hann hugleiðir að þessi háttur á viðskiptum í göngugöt- unni er ekki alveg nýr. Hann er búinn að vera í mörg ár. í LANDNÁMI HELGA MAGRA Hvað er til ráða? Knattspyrnuunnendur á Akur- eyri hafa ekki átt sjö dagana sælu í sumar, Akureyrarliðin KA og Þór sem leika í 1. deild hafa verið arfaslök og því miður engar líkur á því að þau komist upp í úrvalsdeild knattspyrnunnar að þessari leiktíð lokinni, og þó er hálft mótið eftir enn. KA er nú í 8. sæti með 9 stig og Þór í því 9. með 5 stig, eða í öðru fallsætinu. Lið KA virðist m.a. vera brennt þeim stimpii að geta ekki haldið forystu í leik í 90 mínútur, en í nokkrum leikjum hefur forystan glatast á síðustu mínútunum niður í jafntefli eða tap. Liðin leika saman næsta fimmtudags- kvöld klukkan 20.00 og sá leikur kann einfaldlega að skera úr um það hvort liðanna fellur í 2. deild, og þá líklega með Kópa- vogsliðinu HK, þó Akureyringar beri vissulega þá von í brjósti að það verði ekki hlutskipti liðs frá höfuðstað Norðurlands. Þetta er fimmta leiktímabilið sem úrvals- deildin skartar ekki liði frá Akur- eyri og það er því allt of langt tímabil sem Akureyrarlið hefur ekki verið meðal þeirra 10 bestu. Þá komu allt að 1.000 manns á völlinn, jafnvel þó kalt væri í veðri eins og hefur verið að und- anförnu, en nú kemur kannski 10. hluti þess Ijölda til að horfa á. Auðvitað á fólk ýmis önnur áhugamál sem talca sinn tíma, en það er langt frá því að vera ein- hlít skýring á þeirri dræmu að- sókn sem hefur verið £ sumar. Og svo þurfa Akureyringar að sýna „sínum mönnum" stuðning með því að mæta á völlinn, en ekki hara að agnúast út í bæ yfir slælegum árangri. Til að sjá bestu lið landsins leika þurfa Ak- ureyringar enn um sinn að aka til Ólafsfjarðar og horfa þar á gestina leika við Leiftur, sem margir kalla útlendingaherdeild- ina af skiljanlegum ástæðum. Það eru aðeins 9 ár síðan KA fagnaði íslandsmeistaratitli með sigri á Keflavíkurliðinu í æsispennandi lokaumferð og að- eins 6 ár síðan liðið lék til úrslita í bikarkeppninni í knattspyrnu gegn Val, en tapaði eftir dramat- íska lokamínútu. Það hefur oft á tíðum verið nefnt sem ástæða fyrir slæmu gengi Akureyrarliðanna að æf- ingaaðstaða sé slæm, hér vanti gervigrasvöll eða yfirbyggt íþróttahús; sem nú er reyndar í sjónmáli. I vor komu vellir mjög vel undan vetri og hægt var að spila á þeim óvenju snemma, en þrátt fyrir það horfum við knatt- spyrnuunnendur fram á enn eitt magurt knattspyrnusumarið. Það vekur upp efasemdir um að ástæðunnar sé að Ieita til æf- ingaaðstöðunnar heldur til starfsins í yngri flokkunum. Margir þeir sem æfa í yngri flokkunum æfa einnig handbolta eða körfubolta á veturna og byrja ekki í knattspyrnunni fyrr en komið er fram í byrjun júnímán- aðar. Knattspyrnumótum hinna yngri lýkur um miðan ágústmán- uð og þá hætta margir æfingum og fara að búa sig undir vetrar íþróttirnar. Með öðrum orðum, það er ekki spilað og æft nema í tvo og hálfan mánuð og svo dett- ur mörgum í hug að gera jafn- framt kröfur til árangurs, jafnvel sigurs á viðlíka mótum. A ESSO- mótinu í 5. flokki, sem haldið er hér árlega, náði enginn flokkur heimamanna því að komast í verðlaunasæti, voru reyndar all- langt frá því, og því miður kem- ur það þeim sem til þekkja ekki á óvart. Það er líka umhugsunar- efni hvort rétt sé að sami þjálfari sé t.d. hjá þeim yngri í knatt- spyrnunni á sumrin og t.d. í handbolta á vetrum. Hann held- ur þá iðkendum að handboltan- um fram eftir öllu vori og gerir síðan kröfu til að þeir mæti á handboltaæfingar strax í byrjun september þegar æfingar hefjast. Hann er ekki að berjast um þá yngri við einhvern annan þjálf- ara, heldur við sjálfan sig, því miður. Því hefur oft verið haldið fram að árangur meistaraflokks félaga í knattspyrnu endurspeglist í yngri flokkunum. Þegar meist- araflokki gengur vel, þá komu hinir yngri frekar til að horfa á, og fyllast þeim metnaði sem er nauðsynlegur, raunar undirrót starfsins. Knattspyrnudeildir Ak- ureyrarfélaganna hafa verið og eru eflaust skuldum vafðar, en það þarf að efla árangurinn á vellinum, komast í úrvalsdeild, og það strax!! Það kostar pen- inga, eins og allt annað í þessu þjóðfélagi, en þá verður að fá. Til þess þurfa gegnir menn í félög- unum að stilla saman sína strengi. Oft hefur verið þörf, en nú er nauðsyn, meira að segja bráðnauðsyn. Afram KA og Þór! Að allra síðustu. Hafi einhver Iausn eða tillögu á hraðbergi þá er honum velkomið að tjá sig hér á þessum síðum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.