Ægir - 01.07.1905, Qupperneq 6
2
ÆGIR.
Fiskigrunnin kringum landið eru að
minnsta kostí um 1600 Q mílur og eins
og gefur að skilja ættu þau að vera sem
mest notuð af okkur sjálfum, þar sem við
eigum margfalt betri aðstöðu livað snertir
nærveru þeirra, og við ættum að geta fært
okkur þau svo vel sjálfir í nyt, að við
gælum ílutt útlendingum okkar eigin fisk,
fiskaðun af okkur sjálfum, á okkar mið-
um, á eigin skipum, i stað þess sem þeir
nú sækja hann mest hingað sjálíir og ekki
ósjaldan þar að auki fara i bága við
lands lög og rjett með yfirgangi sínum og
ofbeldi.
Það ætti því að vera áhugamál hvers
einlægs íslendings, sem ann þjóð sinni,
hvort heldur er bóndi eða fiskimaður,
yfirmaður eða undirgefmn, þingmaður
eða þjónn, að stuðla að því, að þeir lands-
menn, sem að einhverju levti hafa fiski-
veiðarnar sem atvinnu gera sér þær sem
arðvænlegastar, svo þessi atvinnuvegur,
sem hefir svo ákaflega mikla þýðingu
fyrir framtíð landsins, geti blómgast og'
tekið sem mest um framförum.
Óðum nálgast sá tími. sem ísland
tengist enn fastar við umheiminn, og
margir útlendir stói'gróðamenn bíða þess
með óþreyju að það verði sem fyrst, því að
með rilsímasambandinu hyggja þeir, að
þeir hafi lykilinn í hendi sjer að fjársjóð-
um íslands þ. e. fiskiveiðunum, þess
vegna verðum við að gjöra hvað mögu-
legt er, og stvðja að því, að margra alda
úrelt fyrirkomulag á þessum atvinnuvegi
verði endurbætt, og fært í það horf, sem
aðrar þjóðir halá gjört hjá sér, og álíta
að sje skilyrði fyrir varanlegum framför-
um; sem er samvinna bygð á fjárfram-
lögum og lærdórnsríkum bendingum og
uppörfun þings og stjórnar.
Það er flestum kunnugt að nokkur
byggðarlög, sem næst liggja samgöngunum
og hafa bezt skilyrði fyrir því, að færa sjer
nýjár og betri aðferðir við fiskiveiðarnar
í nyt og hafa mest orðið fyrir áhrifum
menningarinnar, hafa á skömmum tirna
lekið furðu miklum framförum, þó
þessir staðir hafi engin betri skil-
yrði frá náttúrunnar hendi en fjöldi
annara. Mörg byggðarlög við fiskiauðg-
ustu strendur landsins lifa vic fátækt og
volæði.
Þetta er eitt meðal annars dæmi
þess, bve mikil vöntun er á leiðbein-
ingum, og' bvað mikið vantar á, að
fiskiveiðarnar sjeu almennilega stund-
aðar með þekkingu og' dugnaði.
Pjer fiskimenn og sjómenn! Yður er
þetta rit ætlað, það á að vera ykkur leið-
arvísir og málsvari, það á að leiðbeina
og styðja að öllu því. sem getur orðið
ykkar atvinnuveg til þrifa og framfara,
að öllu því, sem getur stutt aðykkar sam-
eiginlegri velgengni; það á að vera tals-
maður yðar þegar þjer eruð önnum kafn-
ir á hafi úti og hafið ekki tíma til umsvifa;
það á að upplýsa yður sem búið á út-
kjálkum og' annesjum, þar sem auður-
inn er annarsvegar, en því miður oft
vanþekking og fátækt hinsvegar. Öll þau
málefni, sem að einhverju leyti geta stutt
að framförum í fiskiveiðunum, veiðiað-
ferðinni, hagnýtingu, verkun o. íl. verður
rækilega rætt og' útlistað, hafandi fyrir
augum bæði útlent og innlent, sem gefur
leiðbeiningar og upplýsingar í því efni.
Myndir verða við og við hafðar í
blaðinu, bæði þær sem snerta veiðarfæri
veiðiaðferðir, skipa og' bátalag o. 11. og
höfum vjer fengið lofun mikilsháttar
manna eins og capt. Drechsel og ritstjóra
»Norsk Fiskeritidendecc M. Barclay til að
aðstoða oss í því efni. Ennfremur mun-
um vjer taka smávegis fræðandi og' skemt-
andi greinir, sem að einhverju leyti eru
þess verðar að þeim sje gaumur geflnn.
Jafnframt gjörum vjer oss far um að