Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1905, Page 7

Ægir - 01.07.1905, Page 7
ÆGIR. 3 birta 5'mislegt smávegis, er vér frjettum eða sjáum á ferðum með »Heklu« kring um landið, sem getur haft þýðingu fyrir fiskiveiðarnar. Öllum ritgjörðum, sem snerta fiski- veiðar og farmensku verður veitt mót- töku í blaðinu, jafnframt því sem vjer óskum eftir að menn sýni oss þá velvild að styðja að útbreiðslu þess, um leið og vjer vonum að geta gjört rit þetta svo úr garði, að það geti orðið til uppbygg- ingar og útgefendum til sóma. Hvað ber oss að gera og hvað gera Norðmenn til eflingar fískiveiðunum? Það er löngu viðurkent að vér ís- lendingar verðum að miklu feyti að læra af öðrum þjóðum, við verðum fyrst að fá þaðan reynslu, sem heflr fengist þar jafnan oft fyrir ærið fé, við höfum hing- að til ekki haft efni á því að reyna sjálíir nema i sniáum stíl, því reynslan er og verður dýr, þrátt fyrir þae er oss óhjá- kvæmilegt að við sníðum okkur stakk eftir vexti, og getum því ekki hagnýtt okkur óbreyttar aðferðir annara þjóða, því margt er svo ólikt að sitt á við á hverjum stað fyrir sig. í aðal atriðunum er það sem við verðum að feta í fótspor þeirra sem lengst eru komnir, og taka þaðan alt sem getur orðið okkur að gagni, og þá er það sjálfsagt að við tökum það sem mestar likur eru til að eigi liezt við hjá oss og breytum eftir þeirri þjóð sem er oss lik- ust og atvinnuvegurinn svipaðastur. Þetta verðum við að gera í fiskiveiða- málunum. Öll þýðingar mestu málefni þjóðfélags- ins sem landinu er til heilla her landstjórn- inni að styðja af aleíli, og al' fremsta megni að stuðla til að þjóðinni gefist kost- ur á að hagnýta sér með sem hægasta móti þau meðul sem benda til þrifa og hagsælda. Fins og búnaðarmál menta- mál, samgöngumál og kirkjumál eru bor- in fyrir brjósti og styrkt af löggjöf lands- stjórn, eins er og verða fiskiveiðar og siglingar eitt stóra málið í jijóðfélaginu sem þarf umhyggju ogalúð leiðtoga lands- ins. Auðvitað verða raddir að koma frá þjóðinni sjálfri í þessa átt, en oftast eru þær svo margar og kvartanirnar marg- víslegar' að vandi er að finna þá beztu leið til bjargar og viðreysnar, þess vegna er þægilegt og um leið sjálfsagt að litast um hjá öðrum þjóðum hvernig þær liafa það og breyta svo þar eftir. Fiskíveiðamál íslands þurfa eins og nú er ástatt aðra umsjón eða umhyggju, þau þurfa alsherjar eftirlit alsherjar stjórn, og þessi atvinnugrein þarf að vera ein heild þar sem hver fjörður hver vík og hvert fiskiver er óaðskiljanlegur hluti úr og háður jöfnu etfirliti. Norðmenn eru okkur næstir. Þeirra fiskveíðar eru lifsskilyrði mikils hluta þjóðarinnar, en hvað mikið þeir leggja í sölurnar og hve mikla umhyggju þeir bera fyrir þessu lifsspursmáli sínu viljum vér sýna með eftir farandi skýrslu eða fjárveitingu rikisþingsins til þeirra. Stýrkur til eílingar fiskiveiðunum á fjárhagstímabilinu sem gildir frá 1. april 1904 til 31. marz 1905. Til stjórnar fiskiveiðanna laun stjórnendanna o. m. il. .... 01,500,00 Til útgerða á iiskirannsókna skipinu »Mikael Sarz« ..... 54,000,00 Til útgáfu á »norskum fiski- veiðaritum« ................. 8,000,00 Til prentunar og útgáfu á fiski- veiðaskýrzlum ............... 4,500,00 Flyt: 128,000,00

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.