Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1905, Page 6

Ægir - 01.10.1905, Page 6
38 ÆGIR. »Eg verð í London nokkra daga, en lerðast svo um England og Skotland lil að kynna mér fyrirkomulagið á euskum og skotskum íiskiveiðum, og fyrirkomulag á fiskisölu þeirra, og þetta bj7st eg við að verði nóg verkefni fyrir mig þangað lil í Jan. í vetur. Að því búnu kynni eg mér eftir föngum fyrirkomulagið á fiskiveiðum Þjóðverja, Svía, Norðmanna, Hollendinga, Frakka og Dana, og á leiðinni heim fer eg um Bandaríkin í N.-Ameríku, og mun afla mér þar þeirrar þekkingar sem eg get fengið; og þar eð þetta er mjög umfangs- mikið verk, mikið að sjá og læra, get eg ekki gert ráð fyrir að koma heim fyr en í árslok 1906«. Fiskiveiðarnar fyrir Austurlandi hafa í sumar verið mjög rýrar, enginn fjörðurinn öðrum betri. Fiskitregða befir eins og skiljanlegt er verið aðalorsökin, en þar við hefir bætzt beitidejvsi og ógæftir, hvorttveggja í meira lagi. Engin síld fisk- ast inntjarða til beitu, svo teljandi befir verið, mestan part ársins. Hæst aflaupphæð á róðrarbáta mun vera náiægt 40 skpd.; á Reyðarfirði einn bát- ur45 skpd. Til samanburðar má geta þess, að í fyrra sumar munu nokkrir bátar hafa fiskað yfir 100 skpd. og var þá jafng'óður afli alstaðar fyrir Austurlandi eins og hann er nú lítill. Afli á mótorbáta er þó undantekning, hann er á llesta mjög góður. Hæstur afli mun vera um 200- skpd. á mótorbát .1. Arnesens verzlunarstjóra á Eskifirði o. II. Mótorbátur St. Th. Jónssonar kaupmanns á Seyðisfirði o. fl. hefir fiskað um 180 skpd. Bátur Páls Arnasonar s. st. 110 skpd. og svo aðrir bátar minna. Þetta ætti að vera nægilegl til að sýna mönnúm yfirburði mótorbátanna og ber öllum dug- andi mönnum, sem fiskiveiðar stunda á opnum bátum, sem fyrst að færa sér slíkt í nyt. Fiskigufuskipin, sem hafa stundað veið- ar frá Austurlandi, bafa einnig fengið lít- inn afla. Skip A. Friis útgerðarmanns frá Alasundi, sem gerð voru út frá Seyðisfirði í júlí og ágústmán., fiskuðu vfirleitt bezt. »Elin« O. Wathnes erfingja fiskaði 8000 af tiski og 3500 tunnur af sild í »flotvörpu«, »Víkingur« (sama útgerð) 22000 af fiski, »Aurora« 20000 af fiski og 300 tunnur af síld í reknet, líka tilheyrandi O. Watlines erfingjum. »Súlan«, gufuskip kaupm. Ií. Hjálm- arssonar á Mjóafirði, hefir einnig tiskað i minna meðallagi. Af skipunum, sem gerð voru út frá Austurlandi og stunduðu sildarveiði fyrir Norðurlandi, fiskaði »Albatros« bezl, 5000 tunnur i flotvörpu. »Albatros« tilheyrir konsúl Falk i Stavanger, en stundar hér veiðar undir nafni kaupmanns Imslands á Sevðisfirði. Þetta skip sigldi á land við Melrakkasléttu i byrjun septembermánaðar, en náðist strax út aftur óskemt. »Atlas«, annað skip konsúl Falks, fiskaði c. 2000 tunnur af síld, líka í flot- vörpu fyrir Norðurlandi. Bæði þessi fyr nefndu skip fiskuðu með botnvörpu á vetrarvertíðinni og fram á sumarið, en atlinn varð fremur litinn. Norsku /iskimennirnir, sem Þorsteinn Jónsson kaupm. í Borgarfirði réði lil sin og fleiri annara á Austurlandi frá norðan- verðum Noregi til íiskiveiða á opnum bátum, fóru flestir út með báta sína aftur seinast í sept. síðastl. Veiðiskapurinn halði gengið fremur illa hjá þeim eins og öðrum, svo llestir fóru með lítinn ágóða, og fleiri með skuldir. Kvartað böfðu þeir undan að bátar þeirra væru stórir og örðugir í langræðinu fyrir Austtjörðum. Flestir kunnu þeir vel við

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.