Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.10.1905, Qupperneq 8

Ægir - 01.10.1905, Qupperneq 8
40 ÆGIR. Atlis. Máske Hull botnvörpunguni fækki dálítið hér við land fyrir bragðið. Piskikúttari „Seydisfjord44 eign Jóns kaupfjelagsstjóra Stefánssonar á Seyðis- firði, sem stundað hefir þorsk og sild- veiði fyrir Austfjörðum í sumar sökk úti fyrir Glettinganesi þann 18. sept. siðastl. Skipið var nýkomið af Seyðisfirði, el'lir innkomu úr síldartúr og var á útsiglingu. Veður var gott. Seint um kvöldið verða skipverjar varir við að kominn er mikill sjór í skipið, og er þá farið að dælun- um en þær hafa ekki við. Svo er tekið það ráð að setja út skipsbátinn og fóru allir í hann og' tóku skipið á tog á eftir og reru það áleiðis til lands, en skamt frá landi sökk það. Skip þetta var keypt i Norvegi í vetur og var með hjálparvjel (gufuvjel) og hafði ekki borið á neinum leka á því svo teljandi væri áður í sumar. Skip- stjóri var Ingimundur Einarsson ættaður af Seyðisfirði. Stýrimaður norskur, en hásetar aðrir ílestii- islenzkir, þar á með- al Sarnúel Guðmundsson hjeðan úr Reykjavík. Menn komust allir heilu og liöldnu í land. Skipið vai' vátryggt fyrir 9000 kr. og veiðarfæri og' útgjörð fyrir 3500 kr. alt í norsku ábyrgðarfjelagi, svo vonandi verður útgjörðarmaður skaðlaus af skip- tapanum. 0. Watlmes erfingjar eru að láta hyggja nýtt og vandað skip, sem á að ganga eftir fastri ferðaáætlnn milli íslands og' útlanda eins og »Egill«. Það verður full- búið og' tekur til starfa í marz n.k. Það á að heita Ottó Wntline. Síld stendur í mjög góðu verði nú á markaði utanlands, sem stafar af því að veiði hefir hrugðist við Norveg og' viðar; 25 kr. er mælt að hæst sje borg- að fyrir tunnuna af reknetasíld. Það eru því líkindi til að þeir fái mikinn á- vinning sem hezt hafa allað fyrir Norð- urlandi í sumar. íshafsfari skipstjóri Ole Nessö kom hingað lil Reykjavíkur með »Ceres«. Ilann kom frá Noregi til Austurlandsins, og þaðan með s/s »Ásgeir Ásgeirsson« til Ísaíjarð- ar, þarsem hann náði í »Ceres« til Reykjavíkur. Herra O. Nessö er kominn hingað i þeim erindum, að tala við stjórnarráðið tim lánveit- ingu þá,, er alþingi hefir veitt , honum til að stunda Ishafsveiðar liéðan frá íslandi og liytja lifandi moskusnaut á land hér, og' sem getið er um á öðrum stað hér í blaðinu. Honum lýst vel á landnám hér og' gotl til aðseturs við þessa væntanlegu veiði. Hann hyggur lieppilegast að fá 2 eða 3 menn, sem með- eigendur i fyrirtækinu. Skip með öllum útbún- aði lil veiðanna gerir hann ráð fyrir að kosti frá 15 —18,000 kr. Par með reiknað kostur og' utgerð fyrir 6 menn, sem liann hugsar sér að skilja eftir lil vetrarsetu á Austurströnd Græn- lands lil að skjóta hvíta birni, úlfa, moskusnaut refi o. fl., sem hann lelur íujög arðvænlegt, og býst hann við eftir því, sem hann þekkir til þar með gnægð veiðidýra, að slíkur leiðangur mundi geta orðið til mjög mikils hagnaðar, nmfram sjálfar sumarveiðarnar. Hann «erði í sumar 3 inánaða túr,til Græn- lands og fekk afla fyrir c. 10,000 kr. ísar voru svo miklir í norðurhöfum, að þess hefir sjaldan verið dæmi nú um nokkur ár, og það var eðli- lega lil hindrunar á veiðinni. Herra Nessö komst norður á 77° Nbrd., Gap Bismark, og' liitti þar prinsinn ai' Orleans. Hann fer heim nú með fyrstu ferð. Nokkrir skipstjórar og útgerðarmenn hér í Reykjavík og nágrenn- inu, er inælt að ætli að kaupa 2 nýja botn- vörpunga til þorskveiða í vetur. Skipin munu kosta yfir 100,000 kr. hvort. Hinir 4 botnvörpungar frá Aberdeen sem fiskuðu hér um 2 mánaða tima í sumar og seldu fisk sinn lil kaupmanns Ásg. Sigurðssonar flskuðu 2000 Skpd. fisk. Sjö síldveiðaskip ráku á land á Siglufirði í storminum þann 5. sept. 4 náðust út aftur. Heiðurssamsæti var útgerðarmanni og kaupm. Geir Zoéga haldið hér í bænum 25. f. m. af verzlunar- mannafélaginu í minningu þess að 25 ár voru þá liðin, frá því að hann byrjaði hér verzlun. Hann er nú rúmlega hálf áttræður. Hann byrjaði hér útgerð 186(5 og er hann eins og' allir vita einn hinna mestu dugandismanna, sem ísland hefir átt í þeirri greín. Hann er ern og hress enn þá, áhuginn og dugnaðurinn lítiö bilaður enn þá. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.