Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1905, Qupperneq 11

Ægir - 01.11.1905, Qupperneq 11
ÆGIR. 51 Hættuleg sprenging í Suezskurðinum. Flest útlend blöð liafa nú um nokkurn tíma talað mikið um sprengingu sem ger- hefir verið i Suezskurðinum, Hinn 5. sept. í haust — sama daginn sem hin 5 nörsku síldarskip ráku á land á Sigluíirði, — rákust 2 gufuskip saman Suenzskurðinum og lilaust svo mikið af að annað gufuskipið »Chatham« frá Eng- landi sökk til botns lilaðið með 80 smá- lestum og sprengitundri (Dynamit). Skips- skrokkurinn lá eðlilega í veginum fyrir allri umferð um skurðinn, og var að síð- ustu tekið það ráð að sprengja hann hurtu með rafurmagni sem skyldi vera leytt eftir 3 kílometra löngum þræði. Fyrir sprenginguna voru allar lifandi verur fjarlægðar skipskrokkinn um 3 míl- ur, og í bænum Port Said sem einmitt liggur 3 mílur (danskar) frá staðnum fóru allir íbúarnir út fyrir bæinn. Þrátt fyrir allar varúðarreglur og einangrun tókst 35 fréttariturum ýmsra blaða að nálgast skipið um H/2 mílu. Þeir heyrðu ákaflega mik- inn hvell, og sáu að jörð og sjór þyrlaðist upp í 2000 feta háann kúlumyndaðann stöpul, upp af staðnum þar sem skipið lá. Skurð- urinn eyðilagðist að eins á 200 faðma löng- um vegi, og ætlast var á, að hann mundi verða fær til umferða að vikufresti. Mesta flskiþjóð heimsins eru Japanar. Mönnum reiknast til, að um 3 millíónir manna í Japan liafi atvinnu við fiskiveiðar, og skip þeirra og bátar, sem stunda fiskiveiðar, eru talin um 400 þús. Fiskiveiðar þeirra hafa hér um bil tvöfaldast 10 síðustu ár. Það er engin furða þótt þeir eigi völ á duglegum sjóliðsmönnum, ef á þarf að halda, þar sem er úr svo stórum hóp að velja. (Fish Trades Gazette), Balmagnsljós undir Litla-Belti. Hreyfing álsins. Um tíma hefir það vakið mjög mikla eftirtekt að Danir eru að gera tilraun til að stemma stigu við að állinn leiti til hafs úr Litla-Belti í Dan- mörku. Það þykir fullsannað að állinn hverfi burtu úr Austursjónum þegar hann er fullvaxinn, gegnum Bellin og út í Atlants- haf, þar sem liann gýtur hrognunum í haf- inu milli íslands og Skotlands, og leiti þaðan svo ekki aftur til sama staðar. Eggin verða að hinum svo nefuda glerál, sem berasl með strauinunum upp að ströndinnL smj'gur liann svo þaðan inn í firði og voga. Þegar hann er svo orðinn þroskaður og einhvers virði til manneldis, fer hann aftur út í Atlantshaf. Á þennan hátt hverf- ur í burtu mjög mikið fé sem annars gæti verið notað. Állinn er liræddur við ljós, hann þorir ekki einu sinni að láta bera á sér í tungls- ljósi. Það er því verið að útbúa rafmagns- ljósvegg á botninum í Litla-Belti, sem stemmi stigu við burtför álsins og flæmir liann inn í álakvíarnar. Yfir þvert sundið er lagður þráður á botninum með liðugum 50 rafmagnsglóðalömpum, sem fá Ijósmagn sitt frá »Dynamoe«, sem er uppsliltur öðru megin. Þetta á að standa þangað til í miðjum nóv., þá er ætlað að göngu álsins sé lokið, Ef fyrirtækið heppnast, er gert ráð fyrir að gera samskonar tilraunir annars- staðar, við Eyrarsund, Limafjörð, Stóra- Belti og viðar, og er búist við, að þetta hafi mjög mikla þýðingu fyrir álafiskiveið- arnar í Danmörku eftirleiðis, sem er svo mikil tekjugiein fyrir landið. (Eftir »Politiken«). Frönsk flskiveiðanefnd. M. Thomson, hermálaráðherra Frakka, hefir tjáð það opinberlega; að fiskiveiðar þeirra í ár hafi gefið slæman árangur. Hann

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.