Ægir - 01.07.1906, Blaðsíða 11
ÆGIR.
7
í»Fiskeriberntningen for 1901—92«,bls.
246, er þess getið, að við rannsóknirnar á
»Diönu« 1898 og 1899 hefir fundist þorskur
við Asturland, kominn að gotum, fyrri
hluta maimán., en ekki nefnt, hve mikil
brögð voru að þvi.
Þegar eg fór um Austurland 1898, var
það að eins á tveim stöðum að menn
þóttust hafa tekið eftir óhrygndum þorski,
sem sé i Borgarfirði og Mjóafirði, á síð-
ari staðnum þó því að eins, að fiskur
kæmi snemma vors (fyrir miðjan ein-
mánuð). — Það er því allmerkilegt, að
maður nokkur í Sej'ðisíirði, Friðbjörn
Holm að nafni, veiddi í vor frá 6. til 11.
maí 60 þorska í net þar í firðinum innar-
lega, er flestir voru ógotnir, nokkrir með
hrognum, sem farin voru að losna (óæt),
en flestir með sviljum. Samtimis lagði
annar maður þar lóð, en varð ekki var
við fisk. Hvort nú þesskonar óhrygndur
eða hrygnandi netafiskur gangi að jafnaði
i firðina eystra á vorin, er ekki gott að
vita að svo stöddu; en ekki er líklegt að
mikil brögð séu að því, úr því að aldrei
hefir orðið vart við ung þorskseiði þar úti
fyrir á »Thor«. Má vera að svona got-
fiskhlaup komi stundum sunnan með, frá
hinu eiginlega hrygningarsvæði fyrir suð-
urströndinni.
Orsökin til þess að þorskurinn gýtur
aðallega á svæðinu frá Hornafirði að
Aðalvik (sérstaklega milli Dyrhólaeyjar og
Snæfellsness) er óefað sú, að aðeins á þvi
svæði er sjávarhitinn nægilegur fyrir hrygn-
inguna, og að hrygningin fer seinna fram
norðurmeð Vesturlandi, hlýtur að stafa af
því, að hitinn er ekki fyrri orðinn nægi-
legur þar. Alt fram til aprílloka er hitinn
í sjónum úti fyrir Vestfjörðum mjög lágur,
kringum 1° að eins, en síðari hluta marz
er hitinn í sjónum milli Vestmannaeyja og
Reykjaness þegar orðinn 4—6° C.
Kverkunarvél.
í »Norsk Fiskeritidende«, 5. h. 1906, er
sagt frá og sýnd mynd af kverkunarvél,
vél til að kverka síld með. Vélin er ný-
lega fnndin upp í Noregi og Bryns Jærn-
stöberi pr. Kristiania hefir keypt einkaleyfið
til að smíða hana. Hún er knúin áfram
með vélaafli og á að geta kverkað 48000
síldir, eða nærri því 140 tunnur, álOtím-
um. Vélin er lítið reynd enn þá og því
eigi gott að vita, hvernig hún muni gefast.
Kostur er það talinn að síldin muni ekki
merjast við kverkunina, en það er einkum
sagt mikils uni vert, þegar um íslenzka
(norðlenzka sumarsild) er að ræða, því
að hún er svo veik fyrir.
Um verð á vélinni er ekki getið.
B. Sœm.
Skýrsla
Bjarna Sæmundssonar um rannsóknir
hans á fiskiveiðum, er nú komin út. Er
hún að vanda mjög fróðleg og sýnir vand-
virkni hans og athygli. Er sjómönnum
nauðsyn að lesa hana. Hér í blaðinu
birtist ágrip af því er hann ritar um lifn-
aðarhætti þorska.
Dagfari
segir að mokfiski hafi verið á Austfjörð-
um í júnímánuði. Getur hann þess að
vélabátur hafi fengið 1200 fiska væna á
hálfum sólarhring. Vélabátur frá Svina-
skála fekk hátt á annað þúsund fiska á
einni nótt. En tveir vélabátar frá Kon-
ráði Hjálmarssyni á Brekku í Mjóafirði
fengu fjörutíu og fimm skippund á rúmri
viku. — Síldarveiði var og nokkur i
Reyðarfirði.