Ægir

Volume

Ægir - 01.09.1907, Page 8

Ægir - 01.09.1907, Page 8
32 Æ G I R. Verð á síld er eflir því sem frézt hefir dágott. Botnvörpuskipin, sem heima eiga liér, liafa fiskað mjög lítið í sumar, vart fyrir útgjörðarkostnaði, og gufubáturinn »Geraldine« eign Th. Jen- sen kaupm. og íleiri, sem fiskað hefur með lóðum, hefur einnig fengið lítinn alla. Skýrsla um fiskafla við New-Foumlland síðastl. ár er nú út komin og gefur mjög nákvæmar upplýsingar um allan afla þar á liðnu ári og verðmæti hans. Fiskimið- in við New-Foundland eru, eins og menn vita, stærstu í lieimi og ná yfir um 20 breiddarstig um 300 mílur danskar eða frá George-Bank til fninnis Hudsonsflóa. Út- íluttur íiskur hefur uumið 7,907,474 doll. eða hér urn bil 39^/4 mill. lcr. Mestallur fiskurinn var saltaður óg þurltaður og sendur til Brasilíu, Portugal, Italíu, Spán- ar og Englands. Útfluttur nýr fiskur nam að eins 280 doll. eða hér um hil 1064 kr. Margar tilraunir hafa verið gjörðar með sendingu á nýjum fiski í ís, en það hefur jafnan gefist misjafnlega af því vegurinn hefur verið langur, sem llytja þurfti. I New-Foundland verkar hver maður sinn íisk sjálfur, gæðin á fiskinum verða því mismunandi eftir því sem hver er vandvirkur. Síldaraflinn þar hefur í all orðið 146000 tunnur eða 344,195 dollara virði = 1,290,- 730 lcr. Mest hefur selst lil Bandaríkjanna þar saltað i lest um 46,000 tnr. Iátið í ís 33,000 tnr. en 67,000 tnr. hafa verið salt- aðar í tunnur og flutt til Canada, þess má geta, að við New-Foundland er aðalálierzl- an lögð við þorskfiskið, en síldveiði er þar lítið slunduð, og í skýrslum þessum hvet- ur stjórnin til að gjörð sé meiri gangskör að síldveiðinni. Eftir því sem skýrt er frá er þar mjög mikið af síld alstaðar við strendurnar, en enn þá er veiðin að eins stunduð á Ijörðum og víkum upp við land- steina. Það sem vantar, er regluleg rek- netaveiði segja skýrslurnar. Hvalveiðin, sem fyrir nokkrum árum byrjaði þar svo vel og gaf mjög mikinn arð, virðist nú vera í stórri hnignun eins annarsstaðar svo livalveiðafélögin liaía nú tapað stórfé. Skýrslan yfir hvalveiðina síðustu 3 árin er svona: Ár. Útgjörðir. Hvalir. Lýsi, gallon. 1904 14 1275 1,788,304 1905 17 892 1.259,082 1906 14 429 537,011 (The Fish Trades Gazette). Nýtt síldveiðafélag. Fyrir nokkru síðan gátum vér þess, að fundið var upp nýtt veiðarfæri til að fislca síld, sem væri nokkurs konar varpa eins og hotnvarpa, er mætti hafa svo djúpt og grunt í sjónum sem vildi. Nú hefur félag myndast i Harhurg á Þýzkalandi, er ætlar að reyna þessa að- ferð með gufuskipi og ef það hepnast, þá að láta stunda þannig lagaða veiði með fieiri gufuskipum. Árangurinn af þessari tilraun verður gaman að heyra. Frá byrjun júlí í fyrra til sama tíma i ár hafa Þjóðverjar mist mjög mikið af síld- arskipum og veiðarfærum. 14 skip liala farist alveg með 72 manna, eða 12 kúttarar og 2 gufuskip. Netatjónið hefur einnig orðið mikið, einkum í stormum í okt. s.l. liaust, Aðeins eitt félag, Neptun-félagið í Emden tapaði netum, sem nam 150,000 kr. og Bremen-félagið fyrir 120,000 kr. og önnur félög lilutfallslega. Síldarskipafloti Þjóðverja er nú sem stendur 228 skip, en öll fiskiskip þaðan eru 182 gufuskip með 2100 manns og 441 seglskip með 4334 mönnum. The Fish Trades Gezette. Prentsmiöjan Gutenberg.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.