Ægir - 01.01.1914, Blaðsíða 11
ÆGIR
7
Jeg veit að þessi framburður er eigi
málfræðislega rjettur, en sjeu orðin borin
fram sem hjer segir, þá er það nóg, því
allir sjófarendur sem ensku kunna munu
skilja þau. Best er að hafa áttavita fyrir
sjer, þegar þetta er lært og bera orðin
saman við strykin, þegar búið er að læra
einn fjórðung áttavitans, kemur hitt af
sjálfu sjer.
Stærsta skip trásins áriö 1843.
Yorið 1843 hljóp skip af stokkunum í
horginni Bristol á Englandi og var það
hið mesta skip, sem til þessa hafði verið
smíðað. Hugmyndin var að láta skipið
heita »Mammoth«, en við það heiti var
hætt og skipið kallað »Great-Britain«
(Bretland hið mikla). Aft var skipið
bygt úr járni, nema þilförin, sem voru
4 hvert upp af öðru, þau voru úr við,
auk dyra og veggja í herbergjum. Lengd
skips þessa var 324 fet og var það 100
fetum lengra en hið stærsta seglskip sem
Englendingar áttu þá. Á breidd var
skipið 51 fet, 32 feta djúpt og var burð-
armagn þess 3200 smálestir. Á efsta þif-
fari voru engin hús eins og nú tíðkast
á gufuskipum, að eins var þar stjórn-
pallurinn; var þettagerttil þess, að vind-
ur stæði i sem minst, þegar skipið færi
á móti honum. 4 vatnsheldir járnveggir
skiftu lestinni í 5 hólf. Gufukatlarnir
hvildu á 10 »kjölsvinum« o: járnbitum,
sem voru 3 fet og 3 þumlungar á hæð.
Annað og þriðja þilfar var ætlað far-
þegum. Voru þar 4 stórir salir, oglengd
allra matborða var að samanlögðu 350
fet, auk þessa voru 2 stór herbergi, ætl-
uð kvenfólki eða fjölskyldum; skipsmenn
höfðu og þar íbúð sína. Rekkjur fyrir
farþega voru 360 að tölu að ótöldum
öllum legubekkjum í sölunum, sem nota
mátti í viðlögum. Kolarúmin tóku 1000
smálestir; 3 voru gufukatlarnir og tóku
þeir til samans 200 smálestir af vatni.
Vjelarnar voru 4, 250 hestkrafta =
1000 hesta kraftar. Þetta tröllaukna skip,
sem þá var kallað, gekk fyrir skrúfu en
ekki spaðahjólum; voru ýmsar breyting-
ar gerðar á skrúfum og þær endurbætt-
ar og reyndar, þar til hin rjetta fanst.
Til þess að reyna skrúfurnar, var fengið
gufuskip, sem »Archimedes« hjet. Skrúf-
urnar voru látnar á og teknar af, meðan
verið var að reyna hinar ýmsu tegundir,
og það lag valið, sem var á þeirri skrúfu,
sem knúði »Archimedes« hest áfram.
Skrúfan, sem knúði skipið, var 16 fet
að þvermáli.
Ferð þess var 12—13 mílur danskar á
vökunni, en í góðum og hagstæðum
vindi, þegar öll segl voru uppi, var ferð
þess alt að 16 milum.
Skipið hafði 6 möstur og voru rásegl
á að eins einu þeirra, á hinum voru
gaffalsegl; hæsta mastrið var 95 fet á hæð
og sjest af því, að það hefir verið lág-
siglt i samanburði við lengd þess.
Fyrir 71 ári síðan kölluðu Englending-
ingar þett skip risavaxið og horíðu á það
með aðdáun og undrun, en hvað mundu
þeir kalla það nú. Sklik skip eru eigi
framar kölluð stór.
71 ár hafa Englendingar verið að auka
stærð skipa sinna 10 sinnum, því þótt
til sjeu 2—3 45,000 smálesta skip, þá eiga
þeir eigi mörg, sem eru 32,000 smálestir,
Á morgun á hjer að stofna hið fyrsta
gutuskipafjelag á íslandi. Fáir munu lifa
eftir 70, sem muna eftir þeim degi, en
skyldi svo verða, þá er ekki ómögulegt,
að þeir þá geti sagt: »Á tveimur manns-