Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1920, Blaðsíða 5

Ægir - 01.04.1920, Blaðsíða 5
ÆGIR 37 á skrifstofunni, en 1. apríl tók skipstjóri Kristján Bergsson við. Ákveðið er að skrifstofan starfi til 1. júlí. 13. Leiðarljósin í Sandgerði. ÍJt af ýms- u® umkvörtunum hefir forseti haft fundi með eigendum Sandgerðis og á þeim hefir ákvörðun um endurbætur vitanna verið tekin. 14. Bátabryggja á Eyrarbakka. Eyr- bekkingum hefir verið lofað, að þeim skyldí sendur maður í vor til þess að athuga þar bryggjustæði og gera kostn- ^ðaráætlun. Sömuleiðis heíir verið ráð- gei't að láta athuga hvernig lendinga- bótum á Langanesi (Skálum) yrði bezt hagað og er sú ráðstöfum gerð út af luéfi frá erindreka Austfirðingafjórðungs. Erindrekar félagsins eru nú fjórir og er« þær stöður veitlar frá 1. janúar 1920 — 31. desember 1921. Erindrekarnir eru þessir: Árni Gislason nýr, i stað Arngríms Ejarnasonar. Björn Jónsson, Akureyri. Hermann Þorsteinsson, Seyðisfirði. Horsteinn Gislason, Reykjavík, settur frá 1. júli til 31. des. 1919, veitt starfið frá 1. jan. 1920. Hinn 1. okt. sagði Ólafur Sveinsson vélfræðingur upp stöðu sinni við félagið, eQ starfaði til ársloka. Staðan hefir síð- an verið auglýst, en enginn gefið sig fram. Deildir félagsins voru um áramót 42, félagar um 18-1900. Rétta tölu er eigi auðið að tilgreina hér, þar sem fjórð- ungserindrekar enn eigi hafa sent skýrsl- Ur sinar. Sjóður félagsins er i dag (14. april:) ^ hlaupareikningi i Landsbankanum Kr. 32089,55 hJá gialdkera » 130,84 Kr. 32220,39 Er forseti hafði skýrt frá þessu var fundi slitið þar eð engar umræður urðu. Um þennan fund má segja hið sama og um aðra árs- og aðalfundi, að und- anskildum þeim, þar sem arði er úthlut- að, að fleiri mættu ekki en þurftu. Sigurjón Jónsson. Sveinbjörn Egilson. Lyfjakistill sjómanna. Eftir Steingrim Matthiasson héraðslækni. Samkvæmt ósk ritstjóra skal eg rifja upp fyrir lesendum Ægis kafla úr fyrir- lestri um sjúkrahjálp, sem eg hélt fyrir sjómenn á Akureyri veturinn 1918. —-------Búshagur sjómanna er það betri en bænda í sveit að þeir hafa lyfja- skrána um borð með hinum þarílegustu hlutum og þurfa þvi ekki að senda hrað- boða í kaupstaðinn í hvert skifti og mað- ur fær kveisu eða meiðir sig eitthvað. Heimili uppi í afdölum ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar og mundi oft koma sér vel. Eg hefi þó dálítið að athuga við lyfja- kistilinn. Fyrst og fremst það að eg vildi að fleira nytsamlegt væri í honum. Mér finst sérstaklega vanta þá hluti, sem nú skal greina; og vil eg ráða skipstjórum til að útvega sér þá: Sótthitamælir 1. Ópíumsdropar 20 grömm. Aspirin 20 skamta (á 1 gramm). Kamillute 50 grömm. Bórsýra 25 grömm. Joðáburður 50 grömm. Grisja eða sáralín 20 metrar. Grisjubindi 10 stærri (8 metra X 12 cm.)

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.