Ægir - 01.04.1920, Qupperneq 13
ÆGIR
45
Þilskipið „Valtýr" horfið.
Þrjátíu menn farast.
Því miður eru menn nú orðnir úrkula
vonar um að þilskipið Yaltýr, eign Duus-
verzlunar, muni koma fram. Lagði það
út héðan 21. febr. og hefir skipsins
hvergi orðið vart síðan 28. febrúar. Þá
sást til skipsins frá öðrum skipum skamt
frá Vestmannaeyjum. Er talið líklegt, að
skipið haíi farist í ofsaveðrinu 28.-29.
febr. Hvergi hefir neitt rekið úr skipinu
svo menn hafi orðið varir við og er því
ekki fengin sönuun fyrir því að það hafi
farist. En útivistin er orðin svo löng,
að það er óhugsandi að skipið hafi
komist af. Vistir eða vatn hafði skipið
ekki til nema venjulegrar útiveru og
mundi hvorltveggja fyrir löngu þrotið ef
skipið væri ekki liðið undir lok.
Þrjátíu manns hefir sjórinn hernumið
úr islenzka sjómannahópnum að þessu
sinni, unga og starfsfúsa dugnaðarmenn.
Er það tilfinnanleg blóðtaka. Skipshöfn-
in sem landið á að þessu sinni á bak
að sjá var að mörgu leyti fyrirmynd.
Skipstjórinn Pétur M. Sigurðsson, hefir
verið talinn duglegasti aflamaður, sem
stjórnað hefir þilsldpi héðan úr hæ, og
þeir sem kunnugir eru starfi hans, stað-
festa þann vitnisburð. Og hann kunni að
velja sér menn. Til hans safnaðist jafn-
an úrval manna, svo að tæplega munu
nokkurn tima hafa verið saman komir
jafn duglegir menn og góðir fiskimenn
á einu skipi, eins og var á skipi þvi,
sem nú er gengið í greipar Ægis.
Hér fara á eftir nöfn skipsmanna:
Pétur M. Sigurðsson, skipstjóri, Stýri-
mannastíg 7. Kvæntur Jóhönnu Gests-
dóttur er lifir mann sinn.
Vilhjálmur Gíslason, stýrim., Bræðra-
borgarstíg 4. Ivvæntur Reginu Helga-
dóttur.
Guðmundur Jónsson, vélstjóri. Ættað-
ur að vestan en hefir átt heima i Reykja-
vík siðustu árin.
Böðvar Jónsson, matsveinn. Ættaður
af Rangárvöllum, en hefir verið búsettur
hér nokkur ár. Kvæntur og átti 1 barn.
Fyrir innan þrítugt.
Andrés M. Eggertsson frá Dýrafirði, ó-
gíftur og barnlaus en fyrirvinna fátækra
foreldra sinna. 33 ára.
Andrés Gestsson frá Keldudal. 18. ára.
Brandur Sigurðsson frá Ólafsvík. Ný-
kvæntur, 27 ára gamall.
Einar Gestsson frá Keldudal i Dýra-
firði. Iívæntur maður, 25 ára gamall.
Hann var hróðir Andrésar og voru þeir
ellistoð foreldra sinna.
Friðrik Jónsson frá Einarslóni undir
Jökli. Ókvæntur maður, 24 ára gamall.
Guðmundur Egvindsson frá Hólmavík.
33 ára.
Guðmundur Guðmundsson frá Iíeldu-
dal í Dýrafirði. Ókvæntur maður, 21
árs.
Guðmundur ísleifsson, ókvæntur mað-
ur héðan úr bænum, 39. ára.
Gisli Iíristjánsson frá Núpi i Dýra-
firði, 18 ára.
Guðmundur Pálsson frá Sandi. Ó-
kvænlur maður 24 ára gamall.
Gunnar Sveinsson frá Þingeyri við
Dýrafjörð. Búfræðingur, 24 ára.
Jón Árnason úr Hafnarfirði, 21 árs.
Jóhann Gíslason frá Selárdal við Arn-
arfjörð. 27 ára.
Jón Guðmundsson frá Mjóafirði. 23
ára.
Jósef Sigursson frá Akranesi 28 ára
gamall.
Krisiófer Bjarnason frá Akranesi 25
ára.
Iiristján Jónsson héðan úr bænum.