Ægir

Volume

Ægir - 01.05.1925, Page 5

Ægir - 01.05.1925, Page 5
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS. 18. árg. Reykjavik, Mai 1925. Nr. 5. Mannskaðar þeir hinir miklu, sem hin siðustu ár liafa orðið hér við land, sýna mönnum greinilega, að hér þarf á allri varúð að halda þar sem sjór er stund- aður á þeim tíma árs, sem allra veðra er von. Á siðasta aðalfundi Fiskifélagsins voru hin miklu sjótjón og mannamissir til umræðu og var nefnd kosin, til að reyna að finna upp ráð til þess að afstýra sjó- slysum í framtíðinni. Fiskimenn geta með réttu sagt, hverju getur nefnd áork- að, sem ræðir slíkt stórmál í hlýrri stofu, veit lítið um vinnu okkar og strit en er það þó fullljóst, að engin klukkustund má falla úr hjá fiskimönnum, eigí þeir að geta greitt kostnað við útgerðina og haft eitthvað afgangs til viðurværis. Fessi spurning er lauluétt en henni má þó svara. Nefndin hefir nú haldið nokkra fundi og þar eð sumir hafa þá trú, að björg- unarskip mundi koma hér að notum, hata fyrirspurnir verið gerðar til útlanda um björgunarskip og þeirra búnað og hefir orðið til þess, að fyrverandi full- trúi í dönsku flotamálastjórninni kom- mandör Saxild, hefir lofað að aðstoða nefndina í þeim atriðum, er varða björg- unarfyrirtæki. Það mál hefir meðal helztu þjóða Norðurálfunnar þótt svo mikils- varðandi, að það hefir verið rætt á al- þjóðafundum (Congress), og hefir Com- mandör Saxild mætt fyrir hönd þjóðar sinnar, í Hollandi, Belgíu, Frakklandi og Englandi og þær sendiferðir sanna, að hann hefir vit á málinu, þar eð aðrir geta ekki komið til greina til slíkra sendi- fara. Annað, sem reynt verður að byggja eitthvað á, er að rannsaka ástæður til sjóslysa, ef verða mætti, að eitthvað yrði tekið upp, sem abótavant hati verið og það átt hlutdeild í slysi, verði auðið að grafast fyrir það. Forstjóri Veðurathug- anastofunnar hefir komið á fund uefnd- arinnar, gefið sínar góðu skýringar um ýms atriði, og er þar fús til að veita sína aðsloð. Næstkomandi febrúar verð- ur nefndin að leggja fram á Fiskiþingi skýrslu um gerðir sinar og framkvæmd- ir. Skýrslan verður til reiðu, það er skrifslofuverk, en framkvæmdir verða hjá nefndinni engar, þvi hvorki hefir hún fé né annan stuðning lil þeirra og er að eins ne/nd. Eg vil nú leyf'a mér að fara nokkrum orðum um þetta björgunarmál og bið menn athuga það vel, að það verður um miðjan Jebrúar 1926, sem ne/ndarálit- ið verður lagt fram. Róðrar hér syðra byrja um 4. janúar ár hvert í Sandgerði. Fangað sækja bát- ar úr öðrum héruðum, ekki fáir. Laugardaginn 7. febrúar s. ]. fórst móturbáturinn »Solveig« á Stafnesskerj- um og druknuðu þar 6 menn. Þessi bátur var á rangri leið og munu skip-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.