Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1925, Blaðsíða 10

Ægir - 01.05.1925, Blaðsíða 10
88 ÆGIR HöCundnr skýrir svo fra: Hið fyrsta, sem vakti eftirtekt mina, að alt væri ekki eins og ætti að vera er um skipasmíðar ræðir, var hve mörg skip sukku skamt frá landi og fjöldi skipa, sem hvarf með öllu og aldrei spurðist til. Eg fór að litast um á skipa- smíðastöðvum og gefa mig á tal við ýmsa, sem þar unnu, og fékk eg þá þær útskýringar, sem til fulls opnuðu augu mín og ásetti eg mér, að halda rann- sóknum mínum áfram. Eg komst að þvi, að sum hin nýju skip, sem verið var aö smíða voru ekki fremur fær að sigla sjóinn, flytja menn og vörur, en gömlu líkkisturnar, sem álitnar voru ósjó- færar og bannað að sigla. Dag einn var eg staddur á skipasmíða- stöð og litaðist þar um. Sá eg þar mörg skip í smiðum og dáðist að einu þeirra, sem setja átli á sjóinn næsta dag. Var það vandlega og' smekklega málað og gyliing mikil kringum nafn þess að aftan. Var slcip þetta hið fegursta. Við hliðina á þvi var annað skip í smíðum og var verið að festa járnplötunum (ytra borðinu). Eg gaf mig á tal við smið einn, sem var þar að vinnu og spurði hann hvort hann vissi hvað »tœring<í i járni væri. »Skyldi eg vita það«, svaraði maðurinn. »Hvernig mun standa á þvi, að sum járnhönd í þessu skipi eru hæði tærð og sprungin«, spurði eg og sýndi honum þannig gölluð bönd. Hann kann- aðist við að traust gæti þetta ekki kall- ast, en bætti við: »Plöturnar styrkja þetta og hylja«. Eg spurði hann, hvernig plöturnar væru beygðar og gataðar og skýrði hann frá þvi; geklc eg þá að plötu, sem kom- in var á sinn stað og búið var að festa með fáum nöglum og varð ekki hreyfð; eg sýndi honum að bil á milli plötunn- ar og þeirrar, sem undir var, var svo, að eg kom litla fingri á milli og spurði eg hann þá, hvort plötur ættu ekki að falla alstaðar saman til þess að ná þeim styrkleika, sem áætlaður væri. Gal hann lítið út á það, en sagði þó, að naglarnir væru látnir draga slíka smíðagalla saman. Þá spurði eg hann, hvort hann héldi ekki, að þá væri nöglunum ætlað of mikið þegar á skipið reyndi í stórsjó. Hann spurði mig þá, hvort eg væri skoðunarmaður, en eg kvað nei við, en sagði honum, að eg vissi hvað skipum líkum þessu, sem væri ætlað að fara um öll höf, væri boðið, og hvað þau yrðu að þola í rokum og stórsjó á reginhafi. Hann hélt nú áfram við vinnu sína og lét eins og hann sæi mig ekki. Rétti eg honum þá pening og sagði: »Smiðar gera menn þyrsta, hér er fyrir einu glasi af öli«. Tók hann við peningnum og virt- ist vilja hlusta á mig. Eg bað hann að koma með mér og sýndi honum gataröð á plötu; var alt tilbúið til að festa plöturnar saman með nöglum (boltum). Þegar við horfðum i gegnum naglagöt þau, sem eiga að vera svo, að naglinn mæti hvergi mótstöðu, er hann fer gegnum gatið á innri og ytri plötunni þá var hér svo, að götin stóð- ust ekki á og voru sem hálftungl eftir endilangri röðinni. Á þetta benti eg honum og spurði hann, hvernig hér væri tarið að. Sagði hann mér, að sjóð- andi naglarnir væru þvingaðir gegnum götin, og þegar þeir væru hnoðaðir, væri alt i lagi. Eg spurði hann þá hvort eng- ir eftirlitsmenn væru frá »Board og Trade« eða Lloyd, er skip lík þessu væri smíðuð, og hvort þeir gerðu engar athugasemdir er göt á plötum, sem sam- eina ætti með nöglum af ákveðinni þykt, stæðust ekki á og bersýnilegt væri að naglar væru helmingi rýrari en ættu að veia er búið væri að hnoða þá og þeir

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.