Ægir - 01.05.1926, Side 5
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFJELAGS ÍSLANDS.
19. árg.
Reykjavik, Mai 1926.
Nr. 5.
Vetrarvertið á Suðurlandi
1926.
Vertíðin sem nú er að enda má frekar
teljast góð og hagstæð á Suðurlandi hvað
veðráttu og aiia snertir.
I Sandgerði byrjaði vertíðin strax 2.
janúar eins og vant er, bæði af bátum
frá Faxaflóa og sömuleiðis flestum stærri
bátum af Vesturlandi, þó komu margir
þeirra nokkru seinna. Strax i byrjun ver-
tiðar var fiskur komin á vanaleg lóða-
mið og tíðin mátti teljast frekar hag-
stæð, enda hafa róðrardagar verið ó-
venjnmargir yfir vertíðina og hefir því
útgerðarkostnaðurinn verið mikill, bæði
hvað olíu og beitu snertir.
Mestan hluta vertíðarinnar gengu 19
netabátar frá Sandgerði, auk þess héldu
þar til nokkrir stærri bátar frá Akranesi
að nokkru leyti, en söltuðu afla sinn um
borð og lögðu bann upp annaðhvort í
Reykjavík eða Akranesi. Afli þeirra báta
er því ekki talinn með Sandgerðisafla
heldur þar, sem fiskurinn er lagður á
land.
Alls hefir vertiðaraflinn i Sandgerði
verið 4894 skpd. á mófi 3000 skpd. á
sama tíma í fyrra.
Frá Iveflavík hafa gengið 16 mótorbát-
ar og auk þess um tíma nokkrir ára-
bátar, en bátarnir þaðan eru flestir nokk-
uð stærri en Sandgerðisbálarnir, enda er
aflinn á þeim nokkuð bærri en hjá hin-
um. Auk þess fiskuðu árabátarnir þaðan
vel um tíma í þorskanet, þar á grunn-
miðum. Vertíðaraflinn í Iveflavík er 6160
skpd. á móti 5300 í fyrra.
Frá Akranesi hefir fiskast vel á ver-
tíðinni, bæði á báta þá, sem stunduðu
veiðar þaðan að heiman og eins frá Sand-
gerði, enda var töluverð fiskigengd um
tima á innmiðum í Faxabugt. Auk þess
sem saltað var af fiski á Akranesi og
talið er með í skýrslum, var mikið selt
nýtt þaðan eftir hendinni, bæði til Rvik-
ur og Borgarfjarðar.
Vertíðaraflinn á Akranesi var 2661 skpd.
á móti 1502 í fyrra.
Aftur á móti hefir vertiðin orðið fölu-
vert rýrari en í fyrra í öllum veiðstöðv-
unum á sunnanverðum Reykjanesskag-
anum, og hafa brim dregið mikið úr
sjósókn manna í þeim veiðistöðvum,
enda hafa suðlægir vindar verið aðal-
vindáttin á vertíðinni, t. d. hafa ekki
aflast nema 129 skpd. í Höfnum á sex
opin skip, sem þaðan gengu, og eru þó
þrjú af þeim áttæringar. Sömuleíðis hefi-
ir aflinn algerlega brugðist í ár i jafn-
aflasælli veiðistöð og i Garðinum. — 1
Grindavík er alt að því meðalvertíð, en
tæplega það á Stokkseyri og Eyrarbakka.
Til Vestmannaeyja gekk netafiskur ó-
venjulega seint, og var veðrátta þar óhag-
stæð allan fyrri hluta vetrarvertíðar, en
seinni parturinn var allgóður, og verður
vertíðin þar í góðu meðallagi.
Á Sandi og í ólafsvík hefir verið á-