Ægir - 01.05.1926, Side 18
8(5
Æ G I R
Hvalveiðar við Suður-Shetland,
Hvalveiðar eru um það að hælta og
siðustu frjettir skýra frá, að tengist hafi
296,000 föt af hvalslýsi. Af þeim feng eiga
Norðmenn 209,900 föt. í fj'rra fengu þeir
182,215 föt. Veiðarnar hættu hinn 4. maí
og voru stundaðar tveim dögum lengur
en nokkurn tima áður, þar sem aldrei
hefir verið veitt lengur en til 2. maí
Afli hinna einstöku útgerðarfélaga skift-
ist þannig:
í ár í fyrra
H/f. »S)rdhavel« . 24,500 föt 22,000 föt
— »Hvalen« 25,700 - 19,500 —
— »Hektor«. . 41,500 — 34,200 —
— »Örn 11« . . 24,000 — 19,468 -
— »Falk« . . 21,300 - 18,620 —
— »Odd« . . 25,800 — 26,800 —
— »Laboremus« 23,600 — 20,200 —
— »Norge« . . 23,500 - 21,427 —
Samt. 209,900 föt 182,215 föt
Hvallýsi, sem hin norsku félög hafa
fengið við Suður-Shetland 5 síðustu árin
eru:
1926 ... ... 209,900 föt
1925 ... ... 182,215 —
1924 ... ... 124,783 —
1923 ... ... 187,187 —
1922 ... ... 184,740 —
Norsku félögin hafa haldið úli i ár 8
fljótandi bræðslustöðvum og 26 hvala-
bátum og var það eins í fyrra.
Frá öðrum löndum var haldið úti 3
fljótandi bræðslustöðvum og 9 hvalabát-
um. Hvallýsi það, sem þær fengu sam-
tals, varð 86,000 föt og er þá alt það lýsi
sem fékst við Suður-Shetland samtals
296,000 föt þetta ár.
Útbúnaður til hvalveiða hefir aldrei
verið jafngóður og síðasta úthald.
Nú er verið að útbúa nýja bræðslu-
stöð, sem á að vera fullgjör samkvæmt
samningi hinn 2. ágúst þ. á. Er það
17,500 lesta gufuskip, sem heitir »C. A.
Larsen«. Er það eign félags þess, sem
»Rosshavet« nel'nist. Úað er 547 fet á
lengd, 66 fel og 2 þuml. á breidd og 29
fet 9Vs þuml, djúpt. Hraði þess eru 10
sjómílur á klukkustund, og er það þann-
ig útbúið, að draga má hvalina á þilfar
þess og gera þá til þar.
Þrátt fyrir hinn mikla afla i ár, gizka
menn á, að verðmæti hans í peningum
verði 3—4 miljónum kr. minna en í
fyrra, sem stafar af, að gengi sterlings-
pundsins hefir lækkað og af lægra verði
á hvallýsi. (Fiskeren).
Suóur-Shetland cr á 62°—64° suður breiddar
og í byrjun maí er par vetur byrjaöur.
Skýrsla
yflr flgkafla í Hatnalireppi vetrar-
vertíðina 1926.
Frá 2. febrúar til 11. mai 1926 varð
aflinn: 91 skpd. þorskur, 28 skpd. smá-
fiskur og 9Va skpd. ýsa.
Eg hefi ekki getað fundið ástæður til
að vera að senda aflaský^rslur héðan úr
Hafnahreppi fyrir hverja viku, þar sem
að kalla má að aldrei fengist til soðs
alla vertíðina. Og er mér óhætt að full-
yrða, að önnur eins ördéyðu-vertíð hefir
aldrei komið hér áður, siðan Hafnahrepp-
ur b)7gðist og farið var að stunda hér
sjóróðra.
Héðan gengu 5 skip lil fiskiveiða á
þessari vetrarvertið, þrír áttæringar, eitt
sexmannafar og eitt fjögramannafar, en
afli samtals á öll skipin, eins og skýrsl-
an sýnir 128V3 skpd., sem skiftist í 52
staði (hluti). Meðalþyngd á hvern hlut
verðar þvi 2 skpd. 176 pund, en kaup-