Ægir - 01.05.1926, Qupperneq 19
Æ G I R
87
gjald á hvern háseta til jafnaðar 375 kr.
þar við bætist svo fæði, beitusild, neta-
slit m. m., sem mun verða sem næst
325 kr. á hlutinn, eða sem næst 700 kr.
á hlutinn, en meðalafli í krónum, eítir
því sem nú horfir við með fiskverð 195
kr. að frádregnu salti og- verkun (nettó),
hreint tap á hlutnum kr. 505,00x52=
kr. 26,260,00, sem verður hreint tap á
hreppsbúa yfir vetrartíðina.
Hreppstjórinn i Hafnahr., 12. maí 1926.
Ól. Ketilsson.
Til Fiskifélags lslands, Reykjavik.
Símskeyti
frá fiskifnlltrúanum á Spáni.
Barcelona1/^. Birgðir kringum 1300 tons.
Verð óbreytt. Sala dauf.
Bilbao: Birgðir síðustu vikulok 2500
tons.
Verð: íslenskur 70—89 pts., norskur
75—90 pts., enskur 80—85 pts. Litur enn
út fyrir lækkun.
Barcelona 7/s. Birgðir um 1100 tons,
verðið óbreytt. Sala dauf.
Bilbao: Birgðir taldar 2200 tons, sum-
ir giska á talsvert minna. Verð 65—85
pts. Búist við að verð lækki.
Barcelona 14/*. Birgðir um 1900 lons.
Verð hæst 83—84 pts„ sala í meðallagi
undanfarið.
Bilbao: Birgðir taldar kringum 2000
tons.
Verð óbreytt. Horfur enn versnandi.
Barcelona 2%. Birgðir kringum 1700
tons. Verð óbreytt, sala sæmilega greið.
Bilbao: Birgðir kringum 1700 tons. —
Verð 60—83 pts., horfur óbreyttar.
Mótornámskeið á Eskifírði,
Að tilhlutun hr. Hermanns Porsteins-
sonar Sðf. erindreka Fiskifélags íslands,
voru í síðastliðnum októbermánuði gjörðar
ráðstafanir til þess, að halda námskeið í
mólorfræði hjer á Austfjörðum. Var í fyrstu
ætlast til þess, að það yröi á Norðfirði,
en með því að undirritaður, ekki átti kost
á að yfirgefa vetkstæði silt, hér á Eski-
firði fyrir svo langan tima, var það að
síðustu ákveðið, að halda námskeiðið á
Eskifirði.
Skyldi það standa yfir, desember og jan-
úarmánuði. 15 nemendur gáfu sig fram,
en af 2, sem tilkynt var, að kæmu frá
Norðfirði kom einungis annar, og varð
að sætta sig við 14, þar eð menn voru þá
komnir á námskeiðið frá fjarliggjandi stöð-
um.
Námskeiðið hófst 3 desember, í barna-
skólanum á Eskifirði þar, sem fengist
hafði á leigu ein skólastofa, fyrir munn-
legu kensluna.
Kenslufyrirkomulag í munnlegri mótor-
fræði voru fyrirlestrar, sem nemendur
skrifuðu upp jafnóðum og þeir voru haldn-
ir, lærðu svo undir næsta tíma til úrlausn-
ar. Einnig gerðu nemendur íslenzku stíla
sina, um mótora, lýsingar á vélbátum,
vinnufyrirkomulag o. fl., sem að vélbátum
lýtur.
Verklega kenslan fór fram á vélaverk-
stæðinu hér á Eskifirði, og við frystihús-
mótor Sameinuðu íslenzku Verslana, einn-
ig i mótorbátum, sem til viðgerðar voru
hjá verkstæðinu.
Prófið var haldið 8—10 febrúar 1926.
Prófdóm. voru Simon Jónasson Eskif. og
Brynjólfur Einarsson Eskif. Próf tóku 12.
Eskifirði 13. marz 1926..
Friðbjörn Hólm.