Ægir - 01.12.1927, Blaðsíða 14
266
ÆGIR
fengið. Tillögurnar samþyktar tneð öllum
greiddum atkvæðum.
3. Bryggjugerð í Keflavík.
Framsögu hafði Árni Geir Þóroddsson
og reifaði málið með því að lýsa erfið-
leikum Keflvíkinga við afgreiðslu skipa
— við ferming og afferming. Eftir eng-
ar umræður var borin upp eftirfarandi
tillaga:
Fjórðungsþingið skorar á stjórn Fiski-
félags íslands, að beita sér fyrir þvi, að
rannsakað verði hið fyrsta bryggjustæði
í Keflavík. Samþykt með öllum greidd-
um atkvæðum.
4. „Snurrevaad“.
Málshefjandi: Gísli Magnússon reifaði
málið með ræðu; um það urðu allsnarp-
ar umræður; með „snurrevaad“ mælti
auk frummælanda, forseti Kr. Bergsson.
Eftir að allflestir höfðu tekið til máls og
sumir oftar en einu sinni, kom fram til-
laga um að fresta umræðum um þetta
mál og kjósa þriggja manna nefnd, og
var hún samþykt með öllum atkvæðum.
Kosningu hlutu: Gísli Magnússon 8
atkv., Bjarni Ólafsson (i atkv. og Stefán
Sigurfinnsson (5 atlcv.
Með því að fyrsta málinu á dagskrá
var frestað þar til síðar, kom fram til-
laga urn að kjósa í það nefnd, og var hún
samþykt með öllum atkvæðum.
Kosningu hlutu: Sigurjón Jónsson 6
atkv., Sveinbj. Oddsson 4 atkv. og Stefán
Sigurfinnsson 4 atkv.
Fundi slitið — og frestað lil næsta dags
kl. 10 f. h.
Hinn 5. dag nóvember var fundur
Fjórðungsþingsins settur á sama stað og
áður, i Kaupþingssalnum.
5. Lendingabætur.
Málshefjandi: Eyjólfur Jónsson, og
lagði hann fram eftirfarandi tillögur:
a) Fjórðungsþingið mælir eindregið
með því við Fiskifélagið, að veitt verði
ríflegt fé til lendingabóta.
b) Fjórðungsþingið mælir ineð því til
Fiskiþingsins, að veitt verði frá Fiskifél.
íslands, alt að 3000 kr. til endurbóta
bryggju í Lambhússundi á Akranesi.
6. Snurrevaad“.
Nefnd sú sem kosin var til að íhuga
þetta mál gat ekki komið sér saman um
tillögu —- heldui' klofnaði.
Meirihlutinn: Gísli Magnússon og
Bjarni Ólafsson, lögðu til eftirfarandi
tillögu:
„Að ekki sé enn tímabært að gera
frekari ráðstafanir til að banna veiði með
„snurrevaad“ í landh., en þegar er orðið“.
Minnihlutinn: Stefán Sigurfinnsson,
leggur til eftirfarandi tillögu:
„Að enn sé ekki tímabært að gera
frekari ráðstafanir til breytinga á lögum
frá 1923 „um bann gegn dragnótaveiðum
í landhelgi" þar til fengin er frekari
reynsla urn notkun „snurrevaada“.
Gengið var til atkvæða um framanrit-
aðar tillögur og féllu þær báðar með
jöfnum atkvæðum, 4 gegn 4.
7. Erindrekastarfið i Sunnlandinga-
fjórðungi.
Nefnd sú, sem kosin var í gær i er-
indrekamálinu, hafi lokið störfum sín-
um og kom sér saman um eftirfarandi
tillögur:
a) Fjórðungsþing' Sunnlendingafjórð-
ungs lítur svo á, að erindrekastarfið í
Sunnlendingafjórðungi hafi verið vanrækt
og getur ekki fallist á, að skrifstofu Fiski-
félagsins hafi verið ofvaxið að fram-
kvæma það samkv. meiningu og vilja
undanfarandi Fiskiþinga. Fyrir þvi skor-
ar Fjórðungsþingið á stjórn Fiskifélags
íslands, að láta skrifstofustjóra félagsins
ferðasl á milli deildanna, sem erindreka
nú þegar.
b) Fjórðungsþing Sunnlendingaf jórð-