Alþýðublaðið - 16.06.1923, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 16.06.1923, Blaðsíða 2
Landsspítalino. II. 3>Peningana oða líðð.< Þess er ekki að dyljast, að *vo er nú komið í landsspítala- málinu, að annaðhvort verður að fórna þeim peningum, sem þarf til þess að koma upp landspítal- anum, eða því lífi, sem vöntunin á honum íærir að forgöiðum. Ástandið hefir tekið á sig ræn- ingagervi og heimtar >pening- ana eða lifið.< Bölið, sem leiðir af vöntuninni á stórum og vönduðum spítala fyrir alt landið, er eð minsta kosti þrenns konar. Fyrst eru vandræðin fyrir sjúklingana. Það verður ekki töl- um talið það tjón, bæði fjártjón og fjörtjón, sem þeir bíða við spítalaleysið, eigi að eins sjúkl- ingar héðan úr Reykjavík, sem þarfnast sjúkrahúsvistar, en verða vegna óláanleiks á henni að verðá af henni sér oft og tíðum til aukins heilsutjóns og jafnvel stundum líftjóns, heldur og sjúkl- ingar víðs vegar utan af land- inu, er eigi geta fengið heilsu- bót þar í heimahúsum eða sjúkra- skýlum og leita þvf hingað, þar sem bezt eru lækniráðin, en verða að bíða löngum tfmum eftir að rúm losni á spítala, svo að þeir geti fengið læknisaðgerð. Þá er og þröngin á spftölunum, sem hér eru, oftast svo inikil, að mikið má vera, ef það tefur ekki fyrir bata sumra sjúkdóma þar, og veldur auk þess þvf, áð sjúklingar verða að fara þaðan oft áður en þeim er fullbatnað og fara þannig á mis við þá aðhlynning í batnandanum, sem að eins er fáanleg á spftölum og þarí til þess, að heilsubatinn verði fijótur og góður. í öðru lagi er það, að lækna- vísindi og læknanám hlýtur að fara á mis við mikinn ávinning vfyrir það, hve spítalakostur er lélegur hér, þar sem læknavf > indamenn stunda og kenna fræði sfn og lækhaefni lanásins stunda nám sitt og þurfa að geta fengið æfingu í rannsókn og meðferð á sjúkdómum og lærdóm í störf- um, er þeir verða að gegna að ioknu námi. Kveður svo ramt að þessu, að hver sá,'sem lokið hefir læknáprófi hér, verður að fara til útlanda að afla sér frek- ari þekkingar og það á ekki óalgengari fyrirbrigðum en barns: fæðingar eru, áður en þeir geta tekið að sér læknisstörf hér. Er að þessu bæði fjártjón og tíma- þörf fyrir þá. Líku máli gegnir um margt flaira áhrærandi iækna- kenslu og nám og þörfina á landsspítala, þótt hér verði ekki talið nú. í þriðja lagi er tapið á þeirri vinnu, sem verkalýðurinn fer á mis við fyrir það, að dregið er að ráðast í byggingu spítalans. öll sú vinna, sem bygging slíks stórhýsis, sem spítalinn verður að vera, hefir í för með sér, mundi á æskilegan hátt bæta úr atvinnuleysi því, sem æ meir gerir vart við sig í landinu og i að nokkru leyti stafar áf mis- Kreyns-Tindlar: Lti Traviata Phoeuix Aspasía Oarinen eg margar aðrar tóbákstegundir, KaupfélafliB. skilinni spársemi, þegar dregið er að láta vinna lífsnauðsynleg verk eins og það, sem hér er urn að ræða. Þetta þrenns koDar böl, setn stafar því, að vanrækt er að reisa landsspítalann, veldur þannig tjóni á andlegu og líkamlegu lffi í lándinu, sem á engan hátt varður dregið í efa að sé rneira Stfidentar og Hamsnni ■ Skrifstofustjóri Alþingis, hr. Jón Sigurðsson, hefir þýtt frægustu sögu Hamsuns: »Pan<, og gefið þýðinguna tii ágóða fyrir stúdentagarðinn. Bókin verður gefin út í sumar í tölusettri útgáfu, prentuð á úrvals- pappír; kápan •litprentuð; frágangur mjög vandaður. Áskriftarverð er kr. 12,00. Fyllið út áskriftarseðilinn og sendið hann hið fyrsta, því að áskriftasöfnun véiður bráðum hætt. Til happdrættisneindarinnar, Mensa Áeademica, Beybjavík. Sendið mér burðargjaldslaust, gegn gréiðslu andvirðis (kr. 12,00) við móttöku, ..... eint. of >Pan< eftir Knut Hamsun í þýð- ingu Jóns Sigurðssonar, skrifstofustjóra Alþingis. Nafn: ................................:.............. Staða: ........................... Heimili: ......................... Áipýðubrauðgerfiin framleiðir að allrá dómi beztu bvauðin í bænum, Notar að eins bezta mjöl og hveiti frá þektum erlendum mylnum og aðrar vérur frá helztu firmum í Ameríku, Englandi, Danmörku og Hollandi. Alt efni til brauð- og köku- gerðar, smátt og stórt, eru beztu vörutegundimar, |sem á heimsmarkaðinum fást.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.