Ægir - 01.06.1952, Side 25
Æ G I R
131
Flateyri.
Einungis einn bátur reri þaðan í janúar,
3 í febrúar og marz og einn þeirra þó all-
stopult, og í apríl og maí voru tveir bátar
að veiðum. Arið áður voru þrír bátar gerð-
ir út frá Flateyri. Bátarnir reru allir með
linu.
Mest voru farnir 57 (47) róðrar á ver-
tiðinni, er skiptast þannig eftir inánuðum:
Janúar 9 (10), febrúar 11 (7), marz 16
(12), apríl 15 (14), maí 6 (4).
Afli var skárri en næstu vertíð á undan,
einkum var góður steinbítsafli um skeið.
í marzmánuði varð mestur afli í róðri 6500
kg, minnstur 3 smál., en jafnaðarlegast
4—5 smál. 1 aprilmánuði fékk aflahærri
líáturinn röskar 6 smál. í róðri til jafnaðar.
V/b Sjöfn var aflahæstur, fékk tæpar
233 smál. i 51 róðri, eða 4563 kg í róðri
til jafnaðar. Er það 1220 kg meira en var
hjá aflahæsta bátnurn árið áður, en Sjöfn
var það einnig þá. Formaður á þessum bát
er Sölvi Ásgeirsson, og hefur liann verið
það mörg ár. — Heildarafli Flateyrarbáta
var um 446 smál., sem er 103 smál. meira
en árið áður.
Heimildarmaður: Hinrik Guðmundsson, oddviti,
Flateyri.
Suðureyri.
Fimm bátar voru gerðir út þaðan á þess-
ari vertíð, og er það einum bát færra en
árið áður. Allir veiddu bátar þessir með
linu.
Vertíð hófst þegar upp úr áramótum og
stóð fram um miðjan maí. Sá bátur, sein
oftast reri, fór 79 (55) róðra og skiptast
þeir þannig eftir mánuðum: Janúar 15
(11), febrúar 18 (7), marz 19 (12), apríl
16 (17), maí 11 (8). Þessi samanburður
synir, að gæftir liafa verið óvenju góðar á
þessari vertíð.
Miðað við afla undanfarandi ára var
þessi vertið óvenju góð, og þó var yfirleitt
Iregfiski nema síðari hluta aprílmánaðar,
°n gæftasæld bætti það upp að nokkru.
Eftir að kom fram i marzmánuð var mik-
hluti aflans steinbítur og nálega allur
Sölvi Ásgeirsson,
Flateyri.
í apríl. Mikið af steinbítnum var hraðfryst
og svo til allt, sem veiddist í apríl og maí.
Eftir mánuðuin var meðalafli í róðri sem
hér segir: Janúar 4110 kg, febrúar 3195 kg,
inarz 4168 kg, apríl 7314 kg, maí 3384 kg.
Meðalafli í róðri yfir vertíðina var 4557 kg,
en 4155 kg árið áður. V/b Freyja var afla-
hæstur, fékk um 372 smál. i 78 róðrum,
eða 4763 kg í róðri. Árið áður fékk afla-
hæsti báturinn 239 smál. í 55 róðrum. Há-
setahlutur á Freyju var um 15 þús. krón-
ur. Skipstjóri á þessum bát er Ólafur Frið-
bertsson.
Verð á síld veiddri 1950 var kr. 2.00 pr.
kg, síld veiddri 1951 kr. 2.20 pr. kg og
loðna kr. 2.50 pr. kg. Beituskortur hefði
orðið, ef eigi hefði komið loðnugengd syðra.
— Veiðarfæratjón var mjög lítið.
Heildarafli Suðureyrarbáta varð 1631
Ólafur Friðbertsson,
Súgandafirði.