Ægir - 01.06.1952, Page 31
Æ G I R
137
Verðjöfnun
á olíu og benzíni.
Á síðasta Alþingi flutti Sigurður Ágústs-
son þingsályktunartillögu um að útsölu-
verð á olíu og benzíni verði eins um allt
land, þar sem olíugeymar eru og benzín-
dælur. — Þingsályktunartillaga þessi var
samþykkt. — Hinn 12. júní síðastl. sendi
viðskiptamálaráðuneytið frá sér svofellda
tilkynningu viðvíkjandi ályktun Alþingis
um jöfnunarverð á olíum og benzíni.
„Alþingi samþykkti 12. des. s. 1. ályktun
um jöfnunarverð á olíum og benzini. Með
ályktun þessari var ríkisstjórninni falið
að hlutast til um, að útsöluverð á gasolíu
og brennsluolíu (fuel oil) verði ákveðið
hið sarna á öllu landinu, þar sem olíu-
flutningaskip geta losað á birgðageyma
olíufélaga og olíusamlaga. Einnig, að út-
söluverð á benzíni verði hið sama um allt
land, þar sem það er selt frá benzíndæl-
um.
Viðskiptamálaráðuneytið hefur athugað
möguleika á því að framkvæma ályktun
þessa. Verðjöfnun á olíuin og benzini getur
því aðeins komið til framkvæmda, eins og
sakir standa, að samkomulag náist um það
við olíufélögin og aðra aðila, sem kunna
að flytja inn þessar vörur, sökum þess, að
verðjöfnun er ekki talin framkvæmanleg
nema með stofnun sérstaks verðjöfnunar-
sjóðs. Innflutningur á þessum vörum er
nú frjáls og því hverjum innan handar að
flytja þær inn. Ekki er hægt að skylda
neinn til að greiða gjald í verðjöfnunar-
sjóð nerna samkvæmt lögum, en slík laga-
heimild er ekki til.
Verðjöfnunin mundi hafa verðhækkun
í för með sér í Reyltjavík og á höfnum við
Faxaflóa, en verðlækkun annars staðar á
landinu. Ef innflytjendur, er selt geta olíur
á þeim stöðurn, sem verðið er lægst, eru
ekki skyldir til að greiða verðjöfnunar-
gjald og vilja ekki hlíta slíkri kvöð, væri
ógerningur fyrir aðra að selja olíur á sömu
stöðum og greiða af þeim verðjöfnunar-
gjald.
Af þessum sökum hafa olíufélögin fjög-
ur: H.f. Shell á íslandi, Olíuverzlun íslands
h.f., Olíufélagið h.f. og Hið ísl. steinolíu-
hlutafélag, því aðeins talið sig fús að taka
upp verðjöfnun á olíum og benzíni, „að
trygging yrði gefin út fyrir því, að allir,
sem nú verzla og síðar kynnu að hefja
verzlun með ofangreindar vörutegundir á
meðan jöfnunarverð væri í gildi, yrðu
skyldaðir til að gerast aðilar að væntan-
legum verðjöfnunarsjóði. á sama grund-
velli og stofnendur sjóðsins“. — Þessa
trvggingu er ekki hægt að gefa, því til þess
skortir lagaheimild.
Við umræður um málið á Alþingi, tók
viðskiptamálaráðherra fram, að hann
mundi ekki gefa út bráðabirgðalög um verð-
jöfnun á olíum og benzíni, ef ógerlegt
reyndist að framkvæma verðjöfnunina með
frjálsu samkomulagi, þar sem hann teldi
hlutverk Alþingis að ákveða slíkar aðgerð-
ir með lagasetningu.“
Fersksíldarverá á Norðurlandi.
Skömmu fyrir miðjan júní barzt svo-
hljóðandi tilkynning frá síldarútvegsnefnd
um fersksíldarverðið og sölu Norðurlands-
sildar:
„Síldarútvegsnefnd hefur nú gert fyrir-
framsamninga um sölu á samtals 186 þús-
und tunnum Norðurlandssíldar til Svíþjóð-
ar, Finnlands, Danmerkur og Bandaríkj-
anna. Langstærsti kaupandinn er Svíþjóð,
sem í ár hefur samið um kaup á 111 000
tunnum, þar næst kemur Finnland, síðan
Danmörk og þá Bandaríkin.
Auk þess hafði síldarútvegsnefnd náð
samkomulagi við Pólverja um, að þeir
keyptu 50 þús. tunnur, þar af 20 þúsund
tunnur Faxasíld, en þar sem pólsk yfir-
völd hafa eigi staðfest greiðslufyrirkomu-
lag, sem um var samið í verzlunarsamn-
ingi milli íslands og Póllands í des. s. 1.,
er sem stendur fullkomin óvissa ríkjandi