Ægir - 01.06.1952, Blaðsíða 38
144
Æ G I R
„Ægir“,
mánaðarrit Fiskifélags íslands, flytur margs
konar fróðleik um útgerð og siglingar ásamt
fjölda mynda. — Argangurinn er um 300 bls.
og kostar kr. 25.00. — Gjalddagi er 1. júlí.
Afgreiðslusími er 80500. — Pósthólf 81.
Ritstjóri: Lúðvlk Kristjánsson.
Prentað í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg.
A förnum vegi.
Framhald af bls. 110.
Svipull er sjávarfengur. íslendingar hljóta
eðlilega að búast við misæri til sjávarins
og því miklu. Þeir munu því vafalaust
komast að raun um, að þeir verða meira
en orðið er að stuðla að fjölbreytni atvinnu-
veganna, svo að þeir geti betur mætt skakka-
föllunum, er sjávarútvegurinn kann að færa
þeim annað veifið, og verða þjóðinni þeim
mun tilfinnanlegri, sem stærri hluti hennar
styðst við hann.
L. K.
Bátur keyptur til Bíldudals.
í marzmánuði síðastl. var vélbáturinn
Frigg frá Vestmannaeyjum keyptur til
Bíldudals. Eigendur þessa báts voru bræð-
urnir Alfreð og Sveinbjörn, er keyptu Es-
Ljergbátinn Anna Nissen. Frigg er 21 rúml.
að stærð, 15 ára gamall. Sagt er, að kaup-
verð hans hafi verið 155 þús. krónur.
Iíaupendurnir eru nokkrir menn á Bíldu-
dal, þar á meðal formaðurinn á bátnum,
Guðbjartur Ólafsson.
S. I. S. lætur smíða skip.
Samband íslenzkra samvinnufélaga hefur
fengið leyfi til að semja um srníði tveggja
nýrra kaupskipa. — Minna skipið er í
smíðum í Hollandi. Það verður 900 rúml.
að stærð. Skip þetta er sérstaklega gert til
þess að fara inn á smáhafnir í landinu.
í botni þess verða olíutankar, svo að það
getur flutt um 300 lestir af olíu. Skip þetta
verður væntanlega afhent í janúarmánuði
næstkomandi.
Stærra skipið, sem verður álíka stórt og
Arnarfell, verður smíðað í Óskarshöfn í
Svíþjóð. Það mun geta borið 3000 smál.
farm. Þetta skip verður fullsmíðað árið
1954.
Nýir bátar til Vestmannaeyja.
í byrjun júlímánaðar voru keyptir til
Vestmannaeyja tveir bátar frá Esbjerg. —
Annan bátinn kaupa bræðurnir Alfreð og
Sveinbjörn Kjartanssynir. Heitir hann
Anna Nissen, 50 rúml. að stærð, smíðaður
1948. Hann er með 150—170 ha. tveggja
strokka Hundstedsvél. I bátnum er berg-
málsdýptannælir, talstöð og dráttarvinda.
Sagt er, að bátur þessi liafi verið talinn
einn fallegasti í Esbjergflotanum. Kaup-
verð Anna Nissen er 160 þúsund danskar
krónur.
Hinn bátinn, sem heitir Egot og er 45
rúml., keypti Guðni Grímsson. Bátur þessi
er smíðaður 1944 og hefur 150—170 ha.
Tuxamvél. Kaupverð þessa báts var 145
þús. kr. danskar.
Um þær mundir, sem þessi kaup f°ru
fram, var Kjartan Ólafsson útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum staddur í Danmörku
þeirra erinda að kaupa þar bát.
Grenaavélsmiðjurnar í Danmörku eru að
smíða fyrir Islendinga 330 ha. 3ja strokka
bátavél með vökvaskiptingu, er gerir þuð
fært að skipta gangi bátsins úr fullri ferð
áfram í fulla ferð aftur á bak.