Ægir - 01.06.1952, Blaðsíða 43
Æ G I R
149
Útfluttar sjávarafurðir 31. maí 1952 og 1951 (frh.).
Maí 1952 Jan.—maí 1952 Jan.—mai 1951
Magn Verð Magn Verð Magn Verð
kg kr. kg kr. kg kr.
Reyktur flskur.
Samtals » » » » 2 415 14 035
Bandaríkin .... » » » » 2 415 14 035
Rækjur, humar (fryst).
Samtals » » 19 957 291 552 » »
Bandaríkin .... » » 5 077 184 915 » »
Bretland » » 14 880 106 637 » »
Þorskgall.
Samtals 237 17 000 237 17 000 » »
Bandaríkin .... 237 17 000 237 17 000 » »
Verðmæti samtals kr. » 44 977 214 » 208 607 621 » 230 775003
Úr skýrslu Eimskipafélags íslands.
Snemma í júnímánuði var haldinn aðal-
í'undur Eimskipafélags íslands. Skýrsla
um störf félagsins síðastliðið ár var lögð
fram á fundinum. Er þar að finna ýmiss
konar fróðleik, sem hér verður lítillega
vikið að.
Félagið á nú 8 skip, er fóru 66 ferðir til
útlanda og 33 ferðir út um land. Leiguskip
þess þetta ár voru 18. Fóru þau 25 ferðir
milli landa og 4 út um land. Reksturs-
hagnaður af skipum félagsins á árinu 1951
var um 14.3 millj. króna. En á leiguskip-
unum var um 279 þús. kr. tap. — Hagn-
aður af rekstri félagsins var um 2.887
millj. kr., og hefur þá verið fært til út-
gjalda 9.628 millj. kr. frádráttur á bók-
uðu eignaverði eigna félagsins. Eignir fé-
lagsins neina um 100 millj. kr., en skuldir
34 millj. kr. Skuldlaus eign þess er því
um 66 millj. kr.
Alls fluttu skip félagsins og leiguskip
212.5 þús. smál. á árinu, og er það um
33.6 þús. smál. meira en árið áður. Innflutn-
ingurinn jókst um 13.5 þús. smál. og út-
flutningurinn um 12.7 þús. smál. Milli er-
lendra hafna fluttu skip félagsins 7794
smál., og voru hreinar gjaldeyristekjur af
þeim flutningum um ein milljón krónur.
Gullfoss var leigður erlendis frá áramót-
um til 10. maí, og var leigan 2 millj. kr.
Sú upphæð kom eðlilega ekki heim í er-
lendum gjaldeyri, því að kostnaður í er-
lendum höfnum o. þ. h. dregst frá.
Félagið hefur í hyggju að reisa vöru-
geymsluhús í áföngum, og hefur það feng-
ið Ieyfi Fjárhagsráðs til að hyrja í ár. Hef-
ur komið til mála, að félagið hafi skipti
á því umráðasvæði, sem það hefur nú við
höfnina, og lóð þeirri á austurhafnarbakk-
anum, þar sem nú stendur vörugeymsla
sú, er reist var á stríðsárunum og nú er
eign Reykj avíkurhafnar, en félagið leigir
af höfninni. Með þessum skiptum mundi
Eimskipafélagið fá stærri lóð og vöru-
geymsluhúsið ekki vera nema þrjár hæðir.
Þá liefur félagið fengið nýtt athafnasvæði
milli Borgartúns og Sigtúns, en því hefur
verið sagt upp svæði því, sem það hefur
liaft vestur í Haga.