Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1954, Qupperneq 3

Ægir - 01.03.1954, Qupperneq 3
Æ G I R MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS 47. árg. I Reykjavík — Marz 1954 | Nr. 3 Bjartsýni norska fiskimálastjórans. Norski fiskimálastjórinn Klaus Sunnaná flutti fyrirlestur í norska útvarpið um síð- astliðin áramót. Sumt í ræðu þeirri er vert umhugsunar fyrir íslendinga. Sunnaná sagði meðal annars: Ástæðulaust er að vera svartsýnn, litlitiÖ gefur ekki tilefni til þess. Orsakirnar, sem valda þeim erfiðleikum, er við höfum ált við að glíma og snerta útflutninginn, eiga i'ót sýna að rekja til gjaldeyriserfiðleika ýmissa landa, eða stjórnmálalegi'a verzlunar- astæðna. Tilgangslaust er að fara í graf- götur um það, að framvegis nmn eitthvað I gjaldeyris- og verzlunarmálum vera á ann- an veg í heiminum en vera ælti. Hins vegar er ekki fyrir að synja, að á þessu geti orðið snögg breyting og er það von okkar. En í þessu máli er það mikilvægast, að ýmsar þjóðir heims vanhagar um þær fisk- afurðir, sem við framleiðum. Við eigum að framleiða vörur, sem þjóðirnar þarfnast og Sæði þeirra verða að vera slík, að þær séu teknar fram yfir vörur annarra þjóða. Jafn- Icngi og við framleiðum slíkar vörur, mun- um við sjá einhverjar færar leiðir til þess að yfirstiga stjórnmálalega verzlunar örðug- leika, sem öðrum þræði verða á vegi okkar. Og eitt er víst, að niargar þjóðir víðsveg- ar í veröldinni óska eftir fiskafurðum okkar. Vi8 höfum fylgzt með þróuninni á þessu sviði og við erum við því búnir að heyja sainkeppni við aðrar þjóðir, sem stunda fiskveiðar og framleiða sjávarafurðir. Það ei' ástæðulaust að hafa illan bifur á því, þótt aðrar þjóðir hagnýti sér fiskauðæfi sín við strendur lands síns, hvar sem er i heimin- um, og framleiði sjávarafurðir, svo sem ástæður leyfa. Norskur sjávarútvegur er bæði frá verzl- unarlegu og fjárhagslegu sjónarmiði það vel skipulagður, að við erum vel færir um að mæta erfiðleikatímabilum annað veifið, Þessi atvinnuvegur, mun sem aðrar atvinnu- greinar, sem vel hafa komið sér fyrir, vera fær um að fást við vandann. Síðar ræddi Sunnaná um ýmis atriði, sem renna stoðum undir ofangreint álit hans. Eg tel, að það, sem hér liefur verið til- fært lauslega úr ræðu norska fiskimálastjór- ans, mættu íslendingar ígrunda vel. Hvernig mundum við svara þeim ábendingum, sem fram koma hjá honum, ef þær væru lagðar fyrir okkur í spurnarformi? Mundu svör okkar vera á sömu leið og hans. Að sjálfsögðu bera að keppa að því á ís- landi ekki síður en í Noregi, að treysta svo grundvöll sjávarútvegsins, að hann þoli erf- iðleikaár endrum og sinnum. Og því er ekki að neita, að sitthvað hefur verið gert til þess að svo mætti verða. En þar sem afkoma vélbátaflotans ísl. er svo háð síldveiðum fyrir Norðurlandi eins og raun var á orðin, er ekki að undra, þótt aflaleysið þar í nær því áratug hafi lamað afkomu bátaútvegs- ins. Er ekki að efa að slík hefði einnig orðið raunin í Noregi, ef svo langætt síldarleysis- tímabil hefði komið þar. L. K.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.