Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1954, Page 6

Ægir - 01.03.1954, Page 6
36 Æ G I R bátsins og hafa þá fleiri og smærri, hvern eftir því sem rúm leyfir. Samkvæmt hinum nýju reglum skulu öll skip 150 lestir og minni hafa segl, stórsegl, fokku og skutsegl (messan). Þegar talað er um stórsegl, er átt við gaffalsegl, en skoð- unarmaður getur leyft, að i stað stórsegls komi eins stór þríhyrna og við verður kom- ið á framsiglu. Einnig skulu þá fylgja til- teknir varahlutir. Það getur riðið á miklu, að seglin séu góð og fljótlegt sé að grípa til þeirra. Þau eru þannig eitt hið mikilvæg- asta bjargtæki. Þegar um þríhyrnur er að ræða, þá er mjög mikilsvert að fokkan sé eins stór og mögulegt er, hún gerir mestan framdráttinn, þar sem nú orðið þýðir tæp- lega að nefna klífir. í hinum nýju reglum um eftirlit með skipum eru ákvæði um hluti, sem ekki hafa fyrr verið gerðar kröfur til að hafa í skip- unum. Veltur þá mjög á því, að þeir hinir sömu hlutir fáist sem víðast á landinu. Ekki er það þægileg aðstaða fyrir skoðun- armennina að heimta í skipin eftir bók- stafnum, og svo er ekki hægt að fá hlutina á staðnum. Er þá tvennt til, annað að stöðva skipið, hitt að veita frest til þess að útvega það, sem áfátt kann að hafa verið (venju- legra er að fara þá leiðina). Veltur þá allt á því, að forráðamaður skipsins hafi unnið vel að því að bæta það, sem vantaði á til- teknum tíma. Vissulega þarf að vinna að því, að allir þeir hlutir, sem reglurnar heimta að séu í skipum, fáist sem víðast á landinu, og þá um leið, að ekki séu á boð- stólum hlutir, sem ekki standast settar regl- ur um gerð þeirra. Aldrei verður það vinsælt að vera að skipta sér af því, hvernig liver og einn hag- ar sér, hvorki í þessum málum né öðrum. Er skip standa á landi eða liggja í höfn á milli vertíða, gefur oft að líta hina ömur- legustu sjón. Opin lestarop og ibúðir, falir og' kaðlar liggjandi um allt, seglin ef til vill ekki tckin af, svo að ónýt eru, þegar til á að taka aftur, argasta ómenning og hirðu- leysi blasir við augum. Þessu til viðbótar er jafnvel búið að stela flestu lauslegu, sem í skipinu kann að hafa verið, rífa lausar raflagnir eða lampastæði o. fl., o. fl. Þetta er vítavert og á að refsa harðlega fyrir, ef upp kemst. Skip eiga að vera friðhelg öðr- um hlutum fremur, hvar sem þau eru. Hér að framan hef ég minnzt á eitt og ann- að í sambandi við búnað skipa, og vildi ég með því vekja athygli manna a þvi, hve búnaður allur er nú orðinn fullkomnari en áður var, ef vel er á haldið og allir leggjast á eitt með að uppfylla settar reglur og lög, sem um búnað skipa gilda. Bætt skilyrði, aukin þekking og tækni ætti sannarlega að veita meira öryggi en áður var. Þrátt fyrir það allt eru sjóslysin allt of tíð. Menn spyrja, hvernig má þetta verða, þrátt fyrir allt eftirlit, lög og reglur? Erfitt mun að svar-a í öllum tilfellum. Ekki mega menn treysta um of á hin fullkomnu tæki nútímans, jafnframt verð- ur að mun eftir því, að þarna eru fundin dásamleg hjálpartæki, sem þurfa vandaða meðferð og sérstaka umhirðu, til þess að þau komi alltaf að fullum notum, er á liggur. Sem fyrr verður gætni og fyrir- hyggja, samfara djarfri sjósókn, ef til vill veigamesta bjargtækið. Saltfiskverá f Færeyjum. í færeyska blaðinu „Dimmalætting“, er út kom 20. febrúar siðastl. er greint frá verði því, sem ákveðið er, að útgerðarmenn fái fyrir fullstaðinn saltfisk úr skipi. Fer verð- ið hér á eftir miðað við íslenzka peninga: Stórfiskur yfir 26 tominur nr. I kr. 3.65, nr. II 3.18, nr. III 2.47 pr. kg. Fiskur 22—26 tommur nr. 1 3.43, nr. II kr. 2.96 og nr. III kr. 2.25 pr. kg. Fiskur 16—22 tommur nr. I kr. 2.78, nr. II kr. 2.31, nr. III kr. 1.60. Fiskur 12—16 tonnnur nr. I kr. 2.17, nr. II kr. 1.70, nr. III kr. 1.00. Hardfiskur kr. 1.53. Ufsi kr. 1.41 pr. kg og ýsa, langa og keila kr. 1.65 pr. kg. — Breytingin á saltfiskverð- inu frá því í júní í fyrra er eingöngu í því fólgin, að stórfiskur nr. I hefur hækkað um kr. 0.19, en smáfiskur lækkað um sömu upp- hæð.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.