Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1954, Page 9

Ægir - 01.03.1954, Page 9
Æ G I R 39 ÓLAFUR ÞÓRÐARSON: Síldin í Kollafirði og Hvalfirði. Hvers vegna kom hún og dvaldist þar? í janúar—marz 1947 var allmikil sild- veiði í Ivollafirði, en sildarinnar varð þó vart þar í okt.—nóv. 1946, en hentug veiðar- færi þá ekki fyrir hendi né vinnslumögu- leikar. í nóv.—des. var hafin tilraunaveiði (samkv. sérstöku leyfi) með trolli, sem heppnaðist, enda var síldin mjög þétt í firð- inum. Einar Sigurðsson, skipstjóri á m/b Aðalbjörgu, framkvæmdi þessar tilrauna- veiðar, og segir hann, að ekki hafi þurft að toga fyrir síldina, aðeins að sökkva troll- inu og hífa það svo inn aftur fullt af síld. Ivom það þá oft fyrir, að trollið rifnaði, sér- staklega í byrjun tilraunaveiðanna, og sökk þá mikið af dauðri síld til botns. Þegar svo veiðar hófust í janúar 1947, þá með herpi- nótum, fengu bátar mjög stór köst, svo að mikil brögð voru að þvi, að næturnar sprungu, ýmist vegna stórra kasta, eða vegna ónýtra veiðarfæra. Á þessari Kolla- fjarðarvertíð (janúar—marz) aflaðist ca. 13 238 900 kg. Eftir því sem ég hef komizt næst með ágizkun um, hve mikið magn hafi fallið þarna í sjóinn, þá mun hafa tapazt svipað magn og það sem aflaðist, og ef það hefur gengið svo hjá allflestum bátunum, þá ætti það síldarmagn, sem fallið hefur þarna til rotnunar í botni fjarðarins, að vera nálægt 13 þúsund smál. Ég vil taka það frain, að þetta er lausleg áætlun, og þó að eitthvað af þeirri síld, sem bátarnir misstu, hafi ekki drepizt áður en hún losnaði úr nótunum, þá hefur magnið verið gífurlegt. Einn sólskinsdag í lok ágústmánaðar 1947, var ég staddur niður við sjó í Kolla- firði sunnanverðum, nokkurn veginn mið- svæðis. Tók ég þá strax eftir því, að sjór- inn var áberandi mjólkurlegur að lit, eða likur jökulvatni. Datt mér strax í hug, að þetta kynni að stafa frá rotnandi síldarleif- um frá vertíðinni jan.-—marz það ár. Á heim- leiðinni athugaði ég sjóinn í Grafarvogi, en hann var blátær. Lét ég því Árna Frið- rikssson fiskifræðing vita um þetta strax daginn eftir, ef hann skyldi vilja athuga þetta eitthvað nánar. Vegna annríkis, þá bað hann mig að útvega sér sýnishorn af sjón- um, sem ég gat þó elcki gert fyrr en þann 9. september, og var sjórinn þá jafn mjólkur- blöndulegur og áður. Þetta sýnishorn var rannsakað, og reyndist innihalda mjög mik- inn gróður, en ekkert benti til þess, að um klak væri að ræða. Ég sagði síðan manni úr síldarútvegsnefnd frá þessu, og að ekki væri líldegt, að síld mundi setjast þar að aftur um liaustið, svo framarlega að útlit sjávarins breyttist ekki til hins betra. Menn vonuðust nú eftir því, að síldin mundi koma aftur í Kollafjörð, og settu Hvalfjörð ekkert í samband við væntanlegar veiðar. Rúmum mánuði eftir þetta eða seinni hluta október 1947, varð síldar vart í Kollafirði. Nálægt 20. okt. veiddist allt að 50 tunnur á bát og eitthvað næstu daga. Þann 31. okt. var þar dágóð veiði, allt að 250 tunnur á bát. Þann 1. og 2. nóvember félck Rifsnes 1700 mál í Hvalfirði, og 4 bátar samtals 3450 mál, og mun þetta hafa verið fyrsta Hval- fjarðarsildin. Þjappaðist nú síld saman inni í Hvalfirði á tiltöluleg lítið svæði, fyrir utan Katanes, sem er norðan fjarðarins, á móti Hvaleyri að sunnan. Rregður nú svo við, að síldin svo að segja hverfur úr Kollafirði, og er hámark veið- anna þar, þann 31. okt., en einmitt 2 næstu daga, sem eru fyrstu Hvalfjarðar-veiðidag- arnir, 1. og 2. nóv., afla þessi 5 skip þar

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.