Ægir

Årgang

Ægir - 01.03.1954, Side 12

Ægir - 01.03.1954, Side 12
42 Æ G I R hlaupið beint strik, Garðskagi og inn í Hval- fjörð, en ef við gerum ráð fyrir, að hún hlaupi beina leið á sama hátt og ég geri ráð fyrir að hún hafi gert, þegar hún yfirgaf Kollafjörð, þá ætti hún ekki að nema staðar fyrr en inn við Hrafnabjörg, ca. 11 km fyrir innan Katanes. Þá hefði hún ekki Skarðs- lieiðina og Hafnarfjall undan sól í hádegis- stað, eins og frá Hvaleyrarmiði, sbr. í Kolla- firði hvilftina í Esjunni. Þessi tvö birtusvæði hafa það sameiginlegt, að þau eru bæði und- an sól í hádegisstað, og endurkasta því sterk- um geislum upp i skýin, sem gefa margfalt birtumagn. Frá þessum veiðisvæðum getur síldin einnig hlaupið beint strik til baka, á þann stað, sem hún kom frá, Miðnessjó. Skammt vestur af Skarðsheiði, eru Hafnar- fjall og Hrossatungur, en ekkert fjall skygg- ir á þau, frá veiðisvæðinu að sjá, milli Akra- f jalls og Miðfellsmúla. Að síldin hópast ekki saman 10 km inn- ar í Hvalfirði, milli Saurbæjar og Hrafna- bjarga, tel ég einmitt benda til þess, að hún hafi verið á leið út úr Kollafirði og hlaupið af strikinu Kollafj.—Garðskagi og stefnt beint á birtusvæði Skarðsheiðar, sem hún hefur þekkt ef til vill frá því er hún var ungviði, eða þá orðið fyrir áhrifum frá birtusvæði Skarðsheiðar, á leið sinni úr Kollafirði. Það er gefið mál, að einmitt októbermánuðir 1946 og 1947, hafa Hval- fjörður og Kollafjörður verið næðisamir dvalarstaðir, því að svo að segja allan mán- uðinn var vindur ýmist sunnan eða austan. Birtusvæðin í Hvalfirði. Frá Hvaleyrarmiðinu er ekkert fjall, sem skyggir á inn fjörðinn á móts við Hrafnabjörg, ca. 10 km leið, og heldur ekki út í fjarðarmynni, sem er ca. 18 km. Þarna er fjörðurinn beint inn í landið frá SV til NA, en á móts við Hrafnabjörg beyg- ist hann svo til austurs. Nálægt því þvert á þessa stefnu, frá Hvaleyrarmiðinu, er svo Kjósardalurinn í SA í stefnu á Stíflisdals- vatn, en frá því er afrennsli niður Kjósar- dalinn. Beint framhald af þessari stefnu yfir fjörðinn til NV, er yfir láglendið milli Akra- fjalls og Miðfellsmúla, vestan Hafnarfjalls. Með tilliti til þessara atriða, þá liggur síldin þarna í miðri fjögurra arma birtusælli stjörnu. Þegar snjór er svo í fjöllum Hval- fjarðar, þá verður fjörðurinn enn bjartari. Kjósardalurinn hefur stefnu áfram frá Stíflisdalsvatni á Þingvallavatn, sem er mjög geislaríkt svæði. Einnig hefur Mosfellsdalur stefnu frá Ivollafirði á Þingvallavatn. Hvað snertir birtusækni síldarinnar, þá er vert að geta þess, að einmitt þessir staðir eru, sérstaklega þegar fjöllin eru hvit af snjó, mjög ríkir af fjólubláum geislum, sem eru langdrægir og koma sér vel, því þeir koma af stað D-vítamínhleðsIu. Það er talið í bókinni „Hafið og huldar lendur“, að rauðu geislanir séu horfnir á 70—80 m dýpi og öll hin rauðgula og gula hlýja sólar- innar. Er neðar dregur, hverfi grænu geisl- arnir smámsaman, og á 300 metra dýpi sjáist ekkert nema harður djúpur blámi. I mjög tærum sjó geti hinir fjólubláu geislar lit- rófsins, smogið enn 300 metra niður, en þar fyrir neðan sé helmyrkur. Vegna þessa er það ekki óeðlilegt, að vetrarsildin sæki á staði eins og t. d. Grund- arfjörð og pollinn á Akureyri. Það má segja, að þessir staðir séu með sldnandi veggjum svo að segja til allra hliða, þegar snjór er á jörðu. Er ekki ósennilegt, að þegar síldin fer að sakna sumarbirtunnar í hafinu, og nótt tekur að lengjast, að þá mætti leiða hana með fjólubláum neðansjávarljósum, hægt og rólega inn á vissa firði, þegar hún fer að nálgast landið, og jafnvel mætti kasta noklcru af þorskhrognum í sjóinn um leið. Þegar hún væri svo komin inn á ákvörð- unarstaðinn, þá ætti að halda henni áfram- haldandi hrognaveizlu, með nokkrum tunn- um á dag, sem svo yrðu greiddar hlutfalls- lega eftir aflamagni veiðiskipanna, þegar til kæmi. í sambandi við þessar athuganir, þá er það alls ekki ómögulegt, að þegar snjór sezt í fjöllin að hausti, að takast megi að beina athygli sildarinnar t. d. að Kolla- firðinum, með því að beina sterkum kast- ljósum upp eftir hlíðum Esjunnar í ná- grenni Ivollafjarðar, sem er opin fyrir stefn-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.