Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1954, Qupperneq 14

Ægir - 01.03.1954, Qupperneq 14
44 Æ G I R Eftir veiðarnar á þessum tveim stöðum, þykir mér líkur benda til þess, að rotnunin liafi ekki verið yfirstaðin, þegar sildin kom áftur, ca. 6 mánuðum eftir að hún yfirgaf þá, samanber sjóinn í Kollafirði í ágúst— sept. 1947, og svo umsögn skipstjórans á m/b Kristjáni í marz 1948, eftir Hvalfjarðar- A'ertíðina. Sii rotnaða síld, sem hann fékk í nótina, mun mjög sennilega hafa verið frá fyrri hluta vertíðarinnar, og hendir það til þess, að síldin muni þurfa langan tima til að rotna, eftir að hún kynni að vera orðin að úldinni kös, sem ég geri ráð fyrir að hún verði í pyttum á botni sjávarins. Vegna þess hve feit lnin er mun hún renna saman i klessu, sem straumar ná ekki til að sundra, og því óæt fyrir fiska og dýr. Veiðisvæðin, rotnunarsvæði og óhreinindin í Oslófirði. Fyrir ári síðan voru nokkur skrif i norskum blöðum um óhreinindin í Osló- firði, og höfðu sambönd fiskimanna í inn- fjörðum Oslofjarðar myndað með sér sam- tök um það, að eitthvað yrði gert til þess að stemma stigu við eitrun sjávarins. Á mörg- um stöðuin, þar sem til skamms tíma voru góð fiskimið, sést nú ekki fiskur, og fjöldi fiskimanna hafa orðið að yfirgefa atvinnu sína. Prófessor Hjalmar Broch í Osló, sem tók þátt í fundarhöldum um þetta, skýrði frá því, að mikil óhreinindi stöfuðu frá skipum, sem losuðu oliuafganga í sjóinn í firðinum. Meginóhreinindin koma frá sorp- hreinsunarstöðvum og skólpleiðslum, en þau óhreinindi koma af stað gerjun, sem myndar brennisteinsvatnsefni, en það drep- ur allar lífverur. Stundum myndast mikið af smágróðri, þörungum, sem aðeins sjást i smásjá, og mynda þétt lag í sjónum. Þessi gróður eyðir súrefninu í sjónum, og súr- efnisvöntun myndast á stórum svæðum, sem hindrar þróun dýra og fiska. En unnið er að þvi að breyta sorpi og skólpleiðslu- frágangi i áburð, í stað þess að láta það fara í sjóinn. Það eru nú orðin meters þykk lög i sjónum um allan innri hluta Oslófjarðarins, og staðrevnd, að fiskur getur alls ekki þrif- izt þar. Einnig hefur dr. Alf Dannevig, for- stjóri klakstöðvarinnar í Flödevigen, rann- sakað sjóinn í Oslófirði síðan 1945. Hann hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að óhrein- indin skerði súrefnisinnihald sjávarins, svo að þar séu nú víða súrefnissnauð sjávar- lög allt að þrjátíu metra þykk, sem hefur þau áhrif, að hrogn og ungviði getur ekki þróazt. Jafnframt því að stemma stigu fyrir eitr- un sjávarins í Oslófirðinum, þá liafa sam- bönd fiskimannanna þar hafið fjársöfnun í því skyni, að koma upp nýjum fiskistofni á þessum slóðum á næstu 10 árum, og er kostnaðurin áætlaður kr. 5000.00 (norskar) á ári. Sambandið hefur hugsað sér að kaupa nú þegar 100 millj. þorskaseiði frá Flöde- vigen í Noregi. Lúðuseiðin verða keypt frá Danmörku. Er hægt að hlusta á komu síldarinnar? Að þessu athuguðu þykir mér mjög líklegt, að sildin hafi flúið úr Kollafirði vegna óhreininda inn í Hvalfjörð, — og að sá gróður, sem fannst í sýnishorni mínu, hafi einmitt verið svipaður hinum skaðlega gróðri Oslófjarðar. Enn fremur, að þótt hún hafi komið aftur í Hvalfjörð haustið 1948, þá geti svo verið, að hún hafi farið jafnóð- um út aftur af sömu ástæðum. Með því að nú er liægt að heyra hljóð fisk- anna, eins og hljómmynd sú, er ég nefndi, sannar, þá mundi það sennilega vera mjög auðvelt að fylgjast með því, hvort síld kem- ur á staði eins og Hvalfjörð og Kollafjörð, með því að hafa hljóðnema liti í sjónum á Hvaleyrarmiðinu og í Kollafirði í sam- bandi við einhverja af bæjunum eða sím- stöðvarnar í nágrenni þessara veiðisvæða. Tæknin er komin það langt á þessu sviði, að liægt er að sía frá hljóð vissra fisk- tegunda, sem ekki er óskað að hlusta á. Þess er getið í bókinni „Hafið og huldar lendur“ eftir Rachel L. Carson, að til þess að læra að þekkja hljóð hinna ýmsu fiska, þá hafi verið teknir lifandi fiskar og settir

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.