Ægir - 01.04.1956, Qupperneq 3
49. árg.
Nr. 6
Æ G I R
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
Reykjavík, 1. apríl 1956.
IJtgerð og aflabrögð
Afli togaranna hefur verið njög tregur undanfarið og tíð rysjótt.
Afli línubátanna sunnan lands og vestan var og tregur f. hl. marz-
mánaðar og gæftir stirðar, enda hefur verið um langvarandi suðlægar vind-
áttir að ræða. Margir eru komnir með net, en aflinn hjá þeim hefur verið
fyrir neðan meðallag.
Úr öðrum landsfjórðungum, þaðan sem vetrarútgerð er rekin, er svip-
aða sögu að segja.
TOGARARNIR
Síðan fyrir áramót hefur afli togaranna
yfirleitt verið tregur; gæftir hömluðu
Kijög veiðum og má segja, að það sem af er
árinu hafi tíð verið stirð. Eins og getið var
j 3. tbl. þessa árgangs Ægis seldu tveir
togarar afla sinn í þýzkum höfnum í jan-
úarmánuði. Einn togari, Egill Skalla-
grímsson, seldi afla sinn í Bremerhaven
20. febrúar 231.355 kg. fyrir 357.070 krón-
ur; meðalverð var kr. 1.54 pr. kg.
Fádæma aflatregða hefur verið á tog-
aramiðum sunnanlands og vestan allan
marzmánuð; og kveðast gamlir og reyndir
togaramenn ekki muna aðra eins ördeyðu.
Ura miðjan mánuðinn fengu nokkur
skip dálítinn afla út af Vestfjörðum, en
sú hrota stóð mjög stutt. í marzmánuði
voru flestir togaranna á veiðum á svæðinu
írá Selvogsbanka að Jökli og fyrir vestan.
Norðlenzku og austfirzku togararnir héldu
sig samt að mestu úti af Norðurlandi
(Rauðanúp) og var reytingsafli á þeim
slóðum, en fiskurinn fremur smár.
Um 20 togarar veiddu í ís í marzmánuði,
10 veiddu í salt, en ýmsir veiddu bæði í ís
og salt.
SUÐVESTURLAND
(1.—15. marz 1956).
Hornafjörður. Frá Hornafirði réru 3
bátar með net. Gæftir voru fremur slæm-
ar. Afli bátanna á þessu tímabili var 183
lestir í 24 róðrum. Aflahæsti bátur á tíma-
bilinu var Gissur hvíti með 68 lestir í 8
róðrum. Á sama tímabili í fyrra nam afl-
inn um 297 lestum í 46 róðrum.
Vestmannaeyjar. Frá Vestmannaeyjum
reru um 80 bátar; voru flestir þeirra með
net, en 3 með línu. Afli var mjög misjafn
í netin — frá 5—12 lestir. Ýmsir netja-
bátanna voru með handfæri öðru hvoru og
fengu um 6 lestir í róðri. Aflahæstu bátar
á þessu tímabili voru:
Gullborg (net) með 110 lestir í 9 róðrum
ísleifur III (net) — 78 — í 8 —
Björg SU. (lína) — 73 — í 7 —
Heildaraflinn á þessu tímabili var 3.200
lestir í 490 róðrum. Á sama tímabili í fyrra
var heildaraflinn um 3.500 lestir í 500
róðrum.
Stokkseyri. Frá Stokkseyri reru 5 bátar
með línu. Gæftir voru afleitar; voru flest
farnir 2 róðrar. Afli bátanna á þessu tíma-
bili var 101,4 lestir í 10 róðrum. Mestur