Ægir - 01.04.1956, Page 11
ÆGIR
93
Brasilíu er frjáls sala á erlendum gjald-
eyri og hefur verið svo í nokkur ár. Vegna
þess að smáþjóðir, eins og Norðmenn, hafa
mjög takmarkað vöruval að bjóða, er eft-
ii’spurn eftir gjaldeyri þeirra miklu minni
en eftir gjaldeyri stórþjóðanna. Af því
leiðir, að norskar krónur eru miklu ódýr-
ari þar í landi en t. d. kanadískir dollarar.
Erfitt er að gera sér grein fyrir ástand-
inu í stjórnmálum Brasilíu, en vitað er, að
fyrrverandi fjármálaráðherra sagði af sér
af því að hann fékk ekki samþykkta þá
breytingu, sem hann vildi gera á gjaldeyr-
ismálum landsins, en hún var í því fólgin
að afnema uppboðsfyrirkomulagið á er-
lendum gjaldeyri, en það fyrirkomulag
hefur einmitt verið norskum útflutningi
mjög hagstætt. En þó að þessi breyting
hafi ekki fengizt í gegn að sinni, er ástæða
til að ætla að endurskoðun á gjaldeyrislög-
unum verði óumflýjanleg fyrr en síðar. Er
því óhætt að gera ráð fyrir vaxandi erfið-
leikum fyrir útflutning á norskum saltfiski
til Brasilíu.
Segja má, að sala og framleiðsla á salt-
fiski hafi verið hagstæð í Noregi undan-
farin 10 ár, eða frá stríðslokum, enda hafa
af andvirði saltfisks á þessum árum runn-
ið um 129 milljónir króna í verðjöfnunar-
sjóð á fiski, sem stofnaður var árið 1946.
Greinarhöfundur er frekar bjai’tsýnn á
niarkaðshorfurnar fyrir norskan saltfisk
í framtíðinni, en telur fyrirkomulagi á
fisksölumálunum innanlands og allri skipu-
lagningu þeirra mjög ábótavant, sé það
alltof flókið og þungt í vöfum.
I'Vfí Sti'cllandi
Bretar smíða togara fyrir Rússa.
Þann 13. jan. s. 1. tóku Rússar við fyrsta
úísiltogaranum af 20, sem þeir hafa samið
um smíði á í Englandi. Togari þessi er bú-
mn öllum nýtízku siglingartækjum og vél-
um.
Brúin og björgunarbátarnir eru smíðuð
úr aluminiummálmblöndu. —
Mesta lengd....... 189 fet 9 þumlungar
Lengd milli lóðlína.
Breidd ............
Dýpt ..............
Fiskirými .........
Mjölrými...........
Lýsistankar .......
Olíutankar ........
171 fet 9 þumlungar
32 fet
16 fet
420 m2
50 m2
20 lestir
95 lestir
Hinar tvær fiskilestir skipsins eru ein-
angraðar með plastplötum og fóðraðar með
aluminiunmálmblöndu. — Meðfylgjandi
mynd sýnir hvernig bárað aluminium er
notað í skilrúm lestarinnar.
Skipið er búið kælitækjum, fiskimjöls-
verksmiðju og lifrarbræðslu. Aðalvél
skipsins er 950/1000 ha. 8 strokka Mirrlees
vél. — Skipið er sérlega styrkt fyrir sigl-
ingu í ís, og sérstakar ráðstafanir eru
gerðar vegna ísingar, bæði að því er við-
kemur stöðugleika skipsins, svo og til þess
að eyða ísmyndunum með gufu.
Rússar gerast nú allumsvifamiklir í fisk-
veiðum á djúpmiðum. — Auk áðurnefndra
20 togara eru 24 stórir togarar búnir fisk-
vinnsluvélum í smíðum fyrir þá í Kiel.
Ennfremur eru pólskar skipasmíðastöðvar
önnum kafnar við smíði stórra togara fyr-
ir Rússa. — Þróunin í þessum málum er
þannig allör í Rússlandi — ef til vill má
segja, að hún sé of ör — því að skortur er
á vönum togarasjómönnum þar í landi
samkvæmt fregnum þaðan; hafa skipin af
þeim sökum ekki reynzt eins afkastamikil
og vonir stóðu til.