Ægir - 01.04.1956, Side 12
94
ÆGIR
Hraðfrysftihús á íslandi
Hraðfrystihúsin á öllu landinu eru nú 82
að tölu (þar af hafa 2 ekki verið starfrækt
um alllangt skeið). Auk þess hafa 4 tog-
arar hraðfrystitæki, og getur hver togar-
anna fryst 2 smál. af fiskflökum á 16 klst.
Eftirfarandi yfirlit sýnir fjölda hrað-
frystihúsa í hinum ýmsu landshlutum,
samanlagða afkastagetu þeirra (miðað við
16 klst.) og samanlagt geymslurúm þeirra:
1
i§ w ■O CO M rH ’w >> g
c3 ‘Cð O 'g
smál. smál.
1. Suöurland (Hornafj.-Grindavik) . 9 203 5.525
2. Faxaflói (Hafnir-Akranes) 24 433,5 17.425
3. Breiöifjöröur (Sandur-Flatey) ... 7 80 3.450
4. Vestfirðir (Patreksfj.-Langeyri) .. 15 149,5 3.975
5. Norðurland (Drangsnes-Þórshöfn) 17 151,5 5.285
6. Austurland (Vopnafj.-Djúpivogur) 10 84,5 2.610
82 1102 38.270.
Ofanritaðar tölur eiga við um afkasta-
getu og geymslurúm við ákjósanlegustu að-
stæður, en ef maður vill gera sér grein
fyrir því, hve mikið er hægt að fram-
leiða af hraðfrystum fiskflökum á landinu
á ári og hve mikið magn af freðfiski húsin
geta geymt í einu, verður m. a. að taka til-
lit til eftirfarandi:
1. Framleiösluafköst.
a. Afköstin takmarkast auðvitað af
því, hve mikið hráefni er fyrir
hendi á hverjum tíma. Utan vertíð
— og á vertíð þegar afli er léleg-
ur — berst lítið af fiski til húsanna
og framleiðslan verður lítil. Svo
getur farið, að ómögulegt reynist að
reka húsin af f járhagslegum ástæð-
um, þegar hráefni er lítið (allt of
hár framleiðslukostnaður á hverja
einingu).
b. Afköst þau, sem talin eru, eru af-
köst frystitækjanna. Þegar ekki er
fyrir hendi nægilegt vinnuafl,
minnka afköstin að sjálfsögðu. Sem
dæmi má nefna, að ómögulegt væri
fyrir húsin í Vestmannaeyjum að
framleiða jafn mikinn freðfisk á
hverri vertíð og þau hafa gert und-
anfarin ár, ef ekki væri þar mjög
mikið af aðkomufólki á hverri ver-
tíð. Svipað má segja um ýmsar aðr-
ar verstöðvar.
c. Ef geymslurúm hraðfrystihúss er
notað til annarra þarfa en freðfisk-
geymslu, eru t. d. full af kjöti, er
auðvitað ekki hægt að frysta í þeim
fiskflök, því enginn staður er til að
láta framleiðsluna, þegar hún kem-
ur úr frystitækjunum.
d. Ef framleiðslu hraðfrystihúsanna
er afskipað nokkurnveginn reglu-
lega, geta þau haldið áfram að
framleiða að óbreyttum öðrum að-
stæðum, en ef afskipun dregst um
nokkurt skeið, fyllast geymslurnar >
og framleiðslan stöðvast.
2. Geymshirúm.
a. Allmikið geymslurúm í hraðfrysti-
húsunum fer til geymslu á beitu-
síld, allt að 8000 smálestir, og
minnkar geymslugeta húsanna því
sem svarar beitumagni því, sem
geymt er í þeim á hverjum tíma.
b. Frá því slátrun hefst á haustin og
fram á sumar er allmikið af frysti-
geymslurúmi notað til kjötgeymslu.
Af þessum ástæðum minnkar pláss
það, sem hægt væri að nota til freð-
fiskgeymslu sennilega um allt að
6000 smál.
Ó. B.