Ægir - 01.04.1963, Blaðsíða 4
106
ÆGIR
Selvogsgrunni, 24 sjm úti af Krísuvíkur-
bergi, og þaðan allt austur undir Vest-
mannaeyjar.
f morgun höfðu 34 skip með samtals
29.700 tunnur tilkynnt um afla sinn.
V/s Fanney leiðbeindi skipunum á veiði-
svæðinu í nótt.
10. jan. Gott veiðiveður var á síldar-
miðunum í nótt. Veiðisvæðið er nú 8—15
sjm austur af Vestmannaeyjum. Þar fengu
13 skip samtals 12.600 tunnur s. 1. sólar-
hring.
Leitarskipið Guðmundur Péturs kann-
aði síldarsvæðið í Jökuldjúpi í nótt, en
torfurnar stóðu djúpt sem fyrr og varð
því ekki af veiði á þeim slóðum.
11. jan. Gott veður var á síldarmiðun-
um í nótt. Veiðisvæðið var um 8 sjm A
af Vestmannaeyjum og þaðan austur að
Reynisdýpi.
Leitarskipið Guðmundur Péturs leið-
beindi síldveiðiskipunum á þessu svæði.
I morgun höfðu 41 skip tilkynnt um
afla sinn, samtals 40.400 tunnur.
12. jan. Síðastliðna nótt var síldveiði-
svæðið aðallega um 6 sjm úti af Alviðru-
hömrum. Þar fengu 26 skip um 28.500
tunnur. Nokkur skip voru að kasta til kl.
10 í morgun, en ekki var vitað um afla
þeirra.
l.j. jan. Aðalveiðisvæðið var sem fyrr
austur í Meðallandsbugt við botn Skaft-
árdjúps. Þar fengu 19 bátar samtals
15.850 tunnur. f Jökuldjúpi fengu tveir
bátar aðeins 150 tunnur, enda var þar
slæmt veiðiveður og síldin stóð djúpt.
15. jan. Rysjótt veður var á síldarmið-
unum í nótt. 7 skip fengu samtals 3.350
tunnur austur í Meðallandsbugt. Ekki er
útlit fyrir veiðiveður á þessum slóðum í
kvöld, og flest síldveiðiskipin á vesturleið.
16. —30. jan. Lélegt veður var oftast á
síldarmiðunum á þessu tímabili. Ægir fór
í síldarrannsókna- og leitarleiðangur hinn
22. jan. Fyrst var svæðið frá Reykjanesi
að Vestmannaeyjum athugað, en engrar
síldar varð vart.
Dagana 28. og 29. jan. er leitað austur
í Meðallandsbugt og fannst þá allmikil síld
í Skeiðarárdjúpi.
31. jan. Blíðuveður var á síldarmiðun-
um í nótt. Samtals fengu 26 skip 17.500
tunnur í Skeiðarárdýpi, á svipuðum slóð-
um og Ægir fann síldina. Síldin var á
stóru svæði. 1 Jökuldjúpi fengu 4 skip
1.000 tunnur af smásíld.
1. feb. Rysjótt veður var á síldarmiðun-
um síðastliðna nótt. Síldin veiddist á
sömu slóðum og áður, þ. e. í Skeiðarár-
dýpi. Alls fengu 14 skip samtals 9.200
tunnur.
2. féb. Veiðiveður var allgott á síldar-
miðunum í nótt. Skipin voru öll að veiðum
í Skeiðarárdjúpi, og þar fengu 26 skip
samtals 18.250 tunnur.
12. feb. Veður var ágætt á veiðisvæðinu
í nótt. Öll síldin veiddist í Skeiðarárdjúpi-
13 skip fengu samtals 12.350 tunnur.
13. feb. Lóðað var á mjög mikla síld
í Skeiðarárdjúpi í nótt, en síldin stóð
djúpt og aðeins örfá skip fengu veiði. 5
skip voru með samtals 2.450 tunnur.
Nokkrir aðrir bátar fengu slatta, sem
þeir hafa enn ekki losað.
19. feb. Sæmileg veiði var í Skeiðarár-
dýpi í nótt. 8 bátar höfðu tilkynnt um
afla sinn, samtals 10.600 tunnur.
20. feb. Góð síldveiði var í nótt. 14 bátar
fengu samtals 14.150 tunnur utantil á
Síðugrunni. Lóðað var á mjög mikla síld-
21. feb. Síldveiðin í gær var á svipuðum
slóðum og áður, á utanverðu Síðugrunni-
Þegar leið á kvöldið kulaði talsvert, svo
að ekkert varð úr veiði.
9 bátar fengu samtals 5.300 tunnur.
22. feb. Síldveiðin í gær var á sömu
slóðum og undanfarna daga, utantil á
Síðugrunni. 9 bátar tikynntu um afla
sinn, samtals 6.700 tunnur. Er þá dagbók-
inn hætt um sinn, þar sem flestir bátar
hafa tekið til við þorskveiðar.
SUÐUR- og SUÐVESTURLAND.
1.—15. marz, 1963.
(Afli óslægður).
Hornafjör'öur. Þaðan réru 3 bátar með
i